Bændablaðið - 23.09.2021, Side 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. september 2021 47
REKSTRARGANGAR
OG FJÁRVOGIR
234.900,-
*Öll verð eru með vsk.
Rekstrargangurinn er galvaniseraður og samanstendur af:
1 fellihlið - 1 flokkunarhlið - 1 tengirammi - 6 tengipinnar
4 stk. 2500mm hliðgrindur
188.176,-
Fjárvogir - Verð frá:
Ultrasonic Cleaner
Nokkrar stærðir
Verð frá 125.900 kr
Sandblásturskassar m/ryksugu
Verð 279.990 kr
Sandblásturskassi m/ryksugu
Verð 239.990 kr
Sandblásturskassi
Verð 74.990 kr
HREINSIEFNI - Íslensk
SANDBLÁSTURSSANDUR
SANDBLÁSTURSKASSAR
SANDBLÁSTURSKÚTAR
SANDBLÁSTURBYSSUR
KERAMIKSPÍSSAR
ÞVOTTAKÖR
ULTRASONIC CLEANER
O.m.fl.
SENDUM FRÍTT UM ALLT LAND MEÐ FLYTJANDA
ALK 150
ÞETTA SEM VIRKAR
og er einstaklega gott á
verkstæðið, í hesthúsið,
fjárhúsið og fjósið.
Umhverfisvænt sterkt
alkalískt hreinsiefni fyrir erfið
óhreinindi. Alhliða hreinsiefni
fyrir gólf, veggi, áhöld, vélar
og fl. Virkar sérstaklega vel á
fitu og sót.
Verð 5L, 3.590 kr
20L, 10.208 kr
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA
SÍÐAN 1985
ÖLL VERÐ ERU MEÐ VSK
Sandblásturskassi
Verð 37.690 kr Húnavatnshreppur:
Kanna hug íbúa til sam-
einingar við Blönduós
Sveitarstjórn Húnavatnshrepps
hefur ákveðið að kanna hug íbúa
sveitarfélagsins til þess hvort hefja
skuli sameiningarviðræður við
Blönduósbæ.
Hafi íbúar áhuga á að samein
ingarviðræður fari fram, er stefnt að
því að íbúar beggja sveitarfélaga kjósi
um sameiningu þeirra í byrjun árs
2022 með það fyrir augum að kosið
yrði til nýrrar sveitarstjórnar í maí
2022.
Frá þessu er greint á heimasíðu
Húnavatnshrepps og þess getið að
áður en til kæmi færi fram almenn
kynning. Íbúar geta sent sveitarstjórn
spurningar sem verður svarað á vef
síðu sveitarfélagsins.
Kosið verður á kjörstað alþing
iskosninga að Húnavöllum frá
kl. 11 til 19 á laugardag, 25. sept
ember. Kosið verður utankjör
fundar á afgreiðslutíma skrifstofu
sveitar félagsins og þeir sem eru á
sjúkrastofnun geta óskað eftir þátt
töku með því að senda beiðni. /MÞÞ
LÍF&STARF
Jón garðyrkjustjóri
í Múlaþingi
Jón Kristófer Arnarson hefur verið
ráðinn garðyrkjustjóri Múlaþings.
Hann er Austfirðingum að góðu
kunnur, bjó og starfaði í fjórð-
ungnum um árabil.
Jón hefur síðustu 14 ár starfað við
Garðyrkjuskóla Landbúnaðarháskóla
Íslands sem kennari, verkefnastjóri
og brautarstjóri. Áður var hann m.a
framkvæmdastjóri Skógræktarfélags
Eyfirðinga, framkvæmdastjóri Barra
á Egilsstöðum, forstöðumaður
Ræktunarstöðvar Reykjavíkurborgar
ásamt ýmsum öðrum störfum tengd
um garðyrkju. /MÞÞ
Jón Kristófer Arnarson.
Blönduós:
Stækkun hafin á gagnaveri
Framkvæmdir við stækkun
gagnavers Etix Everywhere
Borealis á Blönduósi eru hafnar.
Um er að ræða byggingu á nýju
húsi sem hannað er til að hýsa
fjölbreyttar þarfir viðskipta-
vina gagnaversins á öruggan og
umhverfisvænan máta. Munu
snjallnetslausnir verða nýttar til
að tryggja rekstraröryggi og auka
nýtni orkuflutnings.
Gert er ráð fyrir að framkvæmd
um við stækkun verði lokið í árslok.
Áætlanir félagsins gera ráð fyrir
frekari stækkun á komandi árum
að því er fram kemur í frétt á vef
Húna. Þar segir einnig að gagnaverið
á Blönduósi sé eina stóra gagnaverið
sem rekið er utan suðvesturhorns
landsins.
Þar er haft eftir Birni Brynjólfs
syni, framkvæmdastjóra félags
ins, að það hafi bjargfasta trú á
að Blönduós sé einstakt svæði til
uppbyggingar á gagnaversþjónustu.
Samspil nágrennis og landfræðilegra
þátta við Blönduvirkjun, ásamt
framsýni og stefnu sveitarfélagsins,
gerir svæðið eitt það besta sem völ
er á fyrir slíka uppbyggingu að sögn
Björns. Hann bætir við að Ísland
sé góður staður fyrir þá sem leiti
að öruggum og umhverfisvænum
gagnaverslausnum. /MÞÞ
Höfn í Hornafirði:
Nýjar flokkunarstöðvar
Í sumar var komið upp tveim
flokk unar stöðvum á Höfn í
Horna firði, við Miðbæ og á
Óslands hæð.
Stöðvarnar eru hugsaðar fyrir
ferðamenn og aðra vegfarendur
sem eiga leið hjá. Boðið er upp
á losun á óflokkuðu sorpi, endur
vinnanlegu plasti, pappír, pappa
og málmum og skilagjaldskyld
um dósum og flöskum. Á vefsíðu
sveitarfélagsins kemur fram að
þess sé vænst að vel verði tekið á
móti þessari viðbót við sorpþjón
ustuna á Höfn, fólk flokki rétt og
að vel verði gengið um. /MÞÞ
Tvær nýjar flokkunarstöðvar hafa verið settar upp á Höfn í Hornafirði.