Bændablaðið - 23.09.2021, Side 58

Bændablaðið - 23.09.2021, Side 58
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. september 202158 „Þetta verður fínt skjól,“ segir Ásta F. Flosadóttir en hún og Þorkell Pálsson, bændur á Höfða í Grýtubakkahreppi, hafa reist svonefnt vorhús, skýli fyrir lamb- fé til nota svo ekki þurfi að hýsa allan skarann inni í fjárhúsi þegar vorhretin ganga yfir. Ásta segir þau hafi dundað við verkefnið í hjáverkum, en húsið er 12 metrar á lengd og 5 á breidd. Gert er ráð fyrir að um það bil 80 kindur geti leitað skjóls í húsinu. Hún segir að miðað sé við að gefa fyrir utan húsið, „en ef í harðbakkann slær verður hægt að gefa inni,“ segir hún. Fyrirmyndin austan úr Þistilfirði „Við höfum lengi verið að velta þessu fyrir okkur, en við sáum svona hús í Þistilfirði, m.a. hjá Sigurði í Holti og Eggerti í Laxárdal, en þar hafa þau komið að góðum notum þegar kalt er að vorlagi,“ segir Ásta. „Það er ekki óalgengt að snjói hér um slóðir í maí og því fylgir nætur- frost og kuldi. Það er því gott að hafa aðstöðu þar sem lambfé getur leitað skjóls. Það er oft þröngt að hafa allt fé inni yfir sauðburðinn á vorin og mikil vinna og umstang,“ segir Ásta, en planið er að reisa annað svipað vorhús á öðrum stað á jörðinni síðar. Efniviðurinn héðan og þaðan Hún segir að þau hafi fyrir nokkru byrjað að viða að sér efni, en segja má að útsjónarsemi, nýtni og endur- vinnsla hafi verið þeim Höfðahjónum efst í huga við framkvæmdina. Þau fengu langa rafmagnsstaura sem RARIK var að taka niður í Bárðardal og víðar, 12 metra langa staura sem ákvarða lengd hússins. Þá var verið að gera við þak á Grenivíkurskóla og þar fengu þau einnig efnivið og sömuleiðis þegar gamla kaupfélagsbúðin á Grenivík var rifin. Þakið er fengið úr þeirri byggingu. Þau notuðu einnig timbur úr fjárhúsum sínum, m.a. slitnar spýtur úr króm. „Það má segja að þaksaumurinn sé dýrasti pósturinn í byggingunni,“ segir Ásta. /MÞÞ LÍF&STARF Ásta F. Flosadóttir, bóndi í Höfða, er ánægð með vorhúsið og segir að annað svipað verði reist síðar. Yfirsmiðurinn Helgi Jökull Hilmarsson og Þorkell Pálsson spá í næstu skref í framkvæmdum. Efniviður í húsbygginguna kemur héðan og þaðan, m.a. má þar finna gamla aflagða rafmagnsstaura úr Bárðardal. Sigurður Einar Þorkelsson, „litli bóndinn á bænum“, aðstoðaði for- eldra sína við byggingu vorhússins. Vorhúsið er hugsað fyrir lambfé sem skýli þegar vorhretin ganga yfir. Gert er ráð fyrir að um 80 kindur geti leitað skjóls í húsinu. Steinsagir – Kjarnaborvélar – Gólfsagir Allt fyrir atvinnumanninn MHG Verslun ehf / Víkurhvarfi 8 / 203 Kópavogi / S: 544-4656 / mhg.is Husqvarna K770 Sögunardýpt 12,5cmDM400 kjarnaborvél Hámark: 350mm LF75 LAT Jarðvegsþjappa Þjöppuþyngd 97 kg Plata 50x57cm Steinsagarblöð og kjarnaborar FS400 LV Sögunardýpt 16,5cm K7000 Ring 27cm Sögunardýpt 27cm

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.