Bændablaðið - 23.09.2021, Síða 62
Bændablaðið | Fimmtudagur 23. september 202162
LESENDARÝNI
Vörslumenn landsins:
Bændur
Það sárnaði mörgum ummæli um
að sauðfjárbúskapur væri hobbí
en kannski eðlilegt að það virðist
svo því starfið umlykur alla hans
tilveru: Starfið er lífið sjálft. Það
er enginn bóndi til án ástríðu.
Þessi mikli áhugi og ástríða má
þó ekki vera afsökun fyrir því að
bæta ekki kjör bænda. Okkur
stjórnmálamönnum ber skylda til
þess að búa bændum betri skilyrði
til að þróa búskap sinn og skapa
aukin verðmæti.
Framsókn á uppruna sinn í sveit-
um landsins og hefur sú taug aldrei
slitnað. Við í Framsókn skiljum að
búskapur er ekki eins og hver önnur
atvinnugrein. Búskapur er það sem
hefur viðhaldið byggðum hringinn
í kringum okkar fallega land.
Faraldurinn hefur haft mikil áhrif
á okkur öll en eitt af því jákvæða
sem ég sé við hann er að aldrei fyrr
hefur sókn Íslendinga í að ferðast
um eigið land verið meiri. Því fylgir
aukinn skilningur á því að við erum
ein þjóð og Reykjanesbrautin suður
á flugvöll ekki eina þjóðbrautin. Nú
trúi ég því að tilfinningin um að við
höfum öll svipaða hagsmuni, hvar
sem við búum á landinu. Við þurfum
öll á hvert öðru að halda.
Það sem hefur líka gerst með
yngri kynslóðum og þeirri miklu
umræðu sem hefur verið um lofts-
lagsmál og heilbrigði almennt er að
fleiri bera meiri virðingu fyrir þeirri
mikilvægu atvinnugrein sem er
fóstruð í sveitum landsins. Bændur
hafa frá landnámi verið vörslumenn
landsins og náttúrunnar og hafa á
síðustu árum sýnt stöðugt meiri
ábyrgð í því hlutverki. Íslenskir
neytendur, við öll, getum líka verið
ákaflega þakklát að íslenskur land-
búnaður er með sérstöðu í heiminum
hvað varðar notkun sýklalyfja. Þá
sérstöðu verðum við að vernda.
Verkefnin sem snúa að land-
búnaðinum eru mörg brýn. Við í
Framsókn viljum að frumfram-
leiðendum verði heimilað samstarf
eins og víðast hvar í Evrópu og að
afurðastöðvum í kjöti verði heimil-
að samstarf líkt og í mjólkurfram-
leiðslu. Við teljum mikilvægt að
tollasamningi við ESB verði sagt
upp og hann endurnýjaður vegna
forsendubrests, ekki síst vegna
útgöngu Breta úr sambandinu. Það
er einnig brýnt að tollaeftirlit verði
hert svo innlendir framleiðendur búi
við eðlileg samkeppnisskilyrði.
Á því kjörtímabili sem nú er að
renna sitt skeið hefur mikið verið
rætt um miðhálendisþjóðgarð.
Framsókn setti strax í upphafi fyr-
irvara í þeirri vinnu því að í málum
sem snerta svo stóran hluta lands-
ins verður að stíga varlega til jarð-
ar. Í byrjun árs þegar frumvarpið
leit dagsins ljós setti þingflokkur
Framsóknar fyrirvarana aftur fram.
Það hafa fáir bændur gleymt því
mikla stríði sem var háð í hinum
svokölluðu þjóðlendumálum.
• Styrkja þarf kaflann um hefð-
bundnar nytjar og tryggja
fyrir fram að núverandi nytja-
réttarhafar geti starfað með
óbreyttum hætti.
• Bera verður virðingu fyrir
eignarhaldi bænda og ekki
síður skipulagsvaldi sveitar-
félaga.
• Nauðsynlegt er að viðurkenna
og setja inn í lagatexta að
byggja þurfi upp vegi t.a.m.
Kjalveg
• Tryggja þarf frjálsa för
almannaréttar. Þannig að
gang andi, hjólandi, ríðandi og
akandi geti ferðast eins og nú
um hálendið án takmarkana.
• Tryggja verður að leggja
megi leggja raflínur og eða
jarðstrengi innan marka til
að tengja nýjar virkjanir og
til endurnýjunar, viðhalds og
styrkingar flutningskerfisins
til framtíðar.
Framsókn stendur við fyrirvarana
sem settir voru fram við frumvarp
um miðhálendisþjóðgarð.
Nú er göngum og réttum að ljúka
víða um landið. Fram undan eru
kosningar – og sláturtíð. Ég óska
eftir stuðningi þínum, lesandi góður,
í kosningunum þ.e.a.s., og hlakka til
að taka slátur með stórfjölskyldunni
þegar ryk stjórnmálanna verður sest.
Sigurður Ingi Jóhannsson,
formaður Framsóknar og
samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson
Það er best að kjósa XD
Í gegnum alla sögu Sjálfstæðis
flokksins hefur flokkurinn alltaf
staðið með bændum. Á því verður
engin breyting á minni vakt.
Það sem stendur upp úr heim-
sóknum mínum um kjördæmið er
þessi framsýni og athafnakraftur sem
einkennir bændur. Þar er engan bil-
bug að finna, þrátt fyrir að þeirra
rekstrarumhverfi og samkeppnis-
staða sé á köflum erfið. Í mér eiga
bændur samherja. Ég undrast mjög
hvernig önnur framboð, einkan-
lega á vinstri vængnum, tala niður
íslenskan landbúnað í stað þess að
taka mark á framvarðarsveit bænda.
Ég vil vinna þétt með fólkinu sem
er að rækta Ísland í stað þess að láta
báknið tefja uppbyggingu atvinnu-
greinar sem er og verður undirstaða
íslensks þjóðlífs. Það má nefna að
sífellt er verið að leggja auknar
kröfur til bænda bæði hvað varðar
aðbúnað dýra, sem og umhverfis-
mál. Þar strandar ekki á bændum að
standa sig vel.
Ég tek undir þá kröfu að
íslenskir bændur sitji við sama
borð og kollegar þeirra í Evrópu.
Innflutningur á landbúnaðarvörum
og tollar á þeim er málaflokkur sem
fáir stjórnmálamenn hafa tileinkað
sér og því skortir oft skilning á þeim
skilyrðum sem íslenskur landbún-
aður býr við. Það vill svo til að
ég þekki ágætlega til slíkra mála í
gegnum störf mín í fyrirtæki okkar
fjölskyldunnar. Tollar eru ekkert
endilega sérstakt áhugamál fyrir
íslenska bændur ef ekki væri fyrir þá
staðreynd að tollum á landbúnaðar-
afurðir er beitt í nær öllum viðskipta-
löndum Íslands.Það að flytja hingað
inn niðurgreiddar erlendar vörur, án
tolla, getur sett íslenskan landbúnað
í erfiða stöðu. Samningsstaða okkar
Íslendinga í viðskiptasamningum er
að minnsta kosti ekki sterk á meðan
svona er. Þessu þarf að sýna skilning
og hafa til hliðsjónar við undirbún-
ing nýrra búvörusamninga. Þar er
nauðsynlegt að búa svo um hnútana
að matvælaframleiðsla á Íslandi geti
eflst enn frekar og að bændur gegni
áfram lykilhlutverki í fæðuöryggi
þjóðarinnar.
Mér hefur fundist ánægjulegt að
fylgjast með framsýni innan greinar-
innar á svo mörgum sviðum. Ég horfi
mjög til aukinnar þekkingar sem þar
er að skapast með það að markmiði
að landbúnaður verði áfram megin-
stoð íslensks hagkerfis. Þar er að
myndast grunnur að uppbyggingu
í nýsköpun sem nýtist til framtíðar.
Sem væntanlega fyrsti þingmaður
kjördæmisins heiti ég því að taka að
fullu þátt í slíku uppbyggingarstarfi.
Atkvæði greitt XD á kjördag er
atkvæði til stuðnings íslenskum
landbúnaði.
Guðrún Hafsteinsdóttir,
oddviti Sjálfstæðisflokksins
í Suðurkjördæmi.
Guðrún Hafsteinsdóttir.
HLAÐVARP BÆNDABLAÐSINS https://www.bbl.is/hladan
líka hægt að lesa á bbl.is og Facebook
Smáauglýsingar 56-30-300
Ísland er ríkt land og hér á að
vera best í heimi að búa, eldast
og eiga gott ævikvöld. Því miður
á það ekki við um alla þá sem
eldri eru hér á landi.
Allt of margir eldri borgarar
og öryrkjar verða að draga fram
lífið á lífeyri sem er langt undir
lágmarkslaunum.
Munur á kjörum þeirra sem
þurfa að treysta á greiðslur frá
Tryggingastofnun og launa-
manna á lægstu launum, er
nú tæpar 90 þúsund krónur á
mánuði. Bilið breikkar ár frá ári
vegna þess að lífeyrir hækkar
ekki í takti við lægstu laun.
Í þessum hópi sem er haldið
fátækustum á Íslandi eru eldra
fólk og öryrkjar. Og það er póli-
tísk ákvörðun.
Þó að í þessum hópi séu eldri
borgarar af báðum kynjum og
vandamálið jafn slæmt þegar
litið er á hvern einstakling fyrir
sig, þá er erfitt að horfa fram
hjá því að kynbundinn launa-
munur hefur ekki aðeins áhrif
á laun kvenna þegar að þær eru
ungar. Hann hefur áhrif á öll
réttindi sem þær ávinna sér á
vinnumarkaði. Konur fá lægri
orlofsgreiðslur en karlar og lægri
lífeyri og margar hafa gert hlé
á veru á vinnumarkaði vegna
barneigna. Þess vegna eru konur
líklegri til að búa við fátækt á
efri árum.
Ef við höfum manndóm í
okkur til að skipta þjóðarkök-
unni með réttlátari hætti þá
getum við auðveldlega bætt kjör
eldra fólks. Það er engin reisn
yfir þjóð sem heldur öldruðum
og öryrkjum á allra verstu kjör-
unum, neðan við fátækramörk.
Samfylkingin ætlar að breyta
þessu og sjá til þess að lífeyrir
verði aldrei lægri en lægstu laun.
Við ætlum líka að fjórfalda frí-
tekjumark lífeyrissjóðsgreiðslna,
úr 25 þúsund krónum á mánuði
í 100 þúsund krónur og þrefalda
frítekjumark atvinnutekna úr 100
þúsund krónum á mánuði í 300
þúsund krónur.
Með mannsæmandi eftirlaun-
um og lífeyri, sveigjanlegri starfs-
lokum og einfaldari útreikningum
aukum við líkur á að fólk geti í
raun varið rétt sinn og lifað með
reisn ævina út.
Kjósið Samfylkinguna 25.
september – það borgar sig.
Oddný G. Harðardóttir,
skipar 1. sæti
Samfylkingarinnar í
Suðurkjördæmi.
Að lifa með reisn
Oddný G. Harðardóttir.