Bændablaðið - 02.12.2021, Qupperneq 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021
Um miðjan nóvember barst
Alþjóðadýraheilbrigðis stofn uninni
(OIE), fjölmargar tilkynningar um
alvarleg tilfelli fuglaflensu í Evrópu
og Asíu. Þykir það til marks um að
fuglaflensuvírusinn sé nú farinn að
breiðast hratt út að nýju. Ótti er
við að afleiðingin kunni að verða
slátrun á milljónum alifugla sem
yrði áfall fyrir alifuglaræktina sem
og kjötmarkaði víða um lönd.
Útbreiðsla fuglaflensu hefur sett
alifuglaiðnaðinn í viðbragðsstöðu
eftir að fyrri faraldrar leiddu til þess
að tugmilljónum fugla var slátrað.
Dæmi um slíkt er hjá frændum okkar
Dönum og nú er fuglaflensan einnig
farin að herja á norsk alifuglabú.
Í Noregi kom upp smit af H5N1
fuglaflensustofni í 7.000 fugla búi á
Rogaland-svæðinu suður af Stafangri.
Smit af H5N6 stofni
hefur borist í fólk í Kína
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
segir að það hafi vakið athygli
faraldsfræðinga að undanförnu að
H5N6 afbrigði fuglaflensuvírussins
geti borist í menn. Í Kína hefur
greinst sýking í mönnum í 21 tilfelli
af H5N6 vírusunum það sem af er
ári. Það eru fleiri tilfelli en allt árið
2020. Er talið að í öllum tilvikum hafi
fólk smitast við snertingu við fugla.
Í það minnsta 10 þessara tilfella var
vírusinn erfðafræðilega mjög skyldur
H5N8 vírusnum sem breiddist á milli
alifuglabúa í Evrópu á síðastliðnum
vetri. Sérfræðingar telja því líklegt að
afbrigðið H5N6 sem hefur orsakað
smit í mönnum í Kína sé nýtt afbrigði
af H5N8 vírusnum, að því er fram
kemur í frétt New York Post.
Á árunum 2013 til 2017 smitaði
annað afbrigði fuglaflensu sem
nefnt var H7N9 meira en 1.500
manns í Kína. Fólkið hafði lent í
náinni snertingu við sýkt hænsni.
Með þá reynslu í farteskinu kom það
yfirvöldum ekki á óvart að sjá einstaka
tilfelli af ýmsum fuglaflensustofnum
berast í menn. Er því fylgst náið með
því hvort einhver merki séu um að
smit berist á milli manna.
Verður H10N3 að næsta
alheimsharmleik?
Í umfjöllun á vefsíðu pharmalive.com
þann 8. júní síðastliðinn velta menn
fyrir sér hvort fuglaflensuafbrigðið
H10N3 sem fannst í 41 árs gömlum
manni í Jiangsu héraði í Kína í maí
geti orðið að næsta heimsfaraldri
sem mannkynið þurfi að glíma
við. Maðurinn er talinn hafa fengið
vírusinn í sig 23. apríl, en hann var
lagður inn á sjúkrahús þann 28.
apríl. Það var þó ekki fyrr en mánuði
seinna að greint var að maðurinn
væri smitaður af fuglaflensuvírus
H10N3. Það var svo í byrjun júní
sem kínverska heilbrigðiseftirlitið
tilkynnti að maðurinn væri tilbúinn
til útskrifast af sjúkrahúsi, að því er
sagði í umfjöllun The Wall Street
Journal. Ekki fengust upplýsingar
um hvernig maðurinn smitaðist af
H10N3 vírusnum en almenningi var
þó ráðlagt að forðast snertingu við
sjúka alifugla.
Þessi ráðgjöf var byggð á fyrri
uppkomu annarra stofna fuglaflensu
– einkum asísku afbrigðin H7N9 og
H5N1. Smit vegna þeirra afbrigða
áttu sér stað eftir nána snertingu
við sýkta alifugla, samkvæmt
upplýsingum Sóttvarnamiðstöðvar
Bandaríkjanna (Centers for Disease
Control & Prevention - CDC).
Enn sem komið er eru engar
vísbendingar um að H10N3-stofninn
smitist á milli manna og kínversk
stjórnvöld segja að smitrakning hafi
ekki leitt í ljós önnur tilvik.
Hafa menn borið þessi viðbrögð
saman við viðbrögð yfirvalda í Kína
þegar þau uppgötvuðu að Covid-19
vírusinn væri að verða að faraldri í
Wuhan. Bent er á að sagan sýni að
kínversk yfirvöld hafi tilhneigingu
til að tala niður mögulega útbreiðslu
faraldra.
Bráðsmitandi fuglaflensa tilkynnt
í átta Evrópuríkjum í haust
Átta Evrópuríki hafa tilkynnt um
bráðsmitandi fuglaflensutilfelli
(HPAI) í alifuglum síðan um miðjan
október síðastliðinn. Þar eru fyrstu
vísbendingar um að veturinn 2021-
2022 verði annar erfiði veturinn í
alifuglaræktinni í álfunni.
Í heild tilkynnt um smit í 19
Evrópulöndum í alifuglum
það sem af er ári
Þann 7. nóvember höfðu alls 1.219
tilfelli HPAI smits í alifuglum
verið tilkynnt í 19 Evrópuríkjum
það sem af er þessu ári. Þetta er
samkvæmt nýjustu uppfærslu
dýrasjúkdómaupplýsingakerfis
framkvæmdastjórnar Evrópu-
sambandsins. Hafði þá tilfellum
fjölgað um 27 frá 23. október
og komu þau upp í Danmörku,
Þýskalandi, Ítalíu, Hollandi og
í Póllandi og flest af veirustofni
H5N1. Til samanburðar voru alls
442 tilfelli af HPAI veiru í alifuglum
skráðar í gegnum kerfi ESB allt árið
2020. Á því ári komu upp smit í 16
ríkjum og varð Ungverjaland þá
verst úti með 273 tilfelli.
Smittilfelli í villtum fuglum í
Evrópu hafa meira en tvöfaldast
á milli ára
Í byrjun nóvember var búið að
tilkynna um smit í 1.790 villtum
fuglum í 29 Evrópulöndum það
sem af er ári. Hafði smittilfellum þá
fjölgað um 57 frá því 23. október. Til
samanburðar var samtals tilkynnt um
756 fuglaflensusmit í villtum fuglum
í 13 Evrópuríkjum allt árið 2020.
Því til viðbótar hefur verið tilkynnt
um smit í villtum fuglum á Rostov-
svæðinu í Rússlandi.
Smit á búum með tugum
þúsunda kalkúna, varphænsna
og kjúklinga á Ítalíu
Samkvæmt gögnum OIE þá kom
smit upp í fimm kalkúnaeldisbúum
í Verona- og Veneto-héruðum á
Ítalíu sem hvert um sig var með 15-
40 þúsund fugla. Þá kom upp smit
á búi með 184 þúsund varphænum
og öðru með 85.000 kjúklinga í
eldi. Smittilfelli undanfarna þrjá
mánuði varða alifuglabú með samtals
646.000 fugla.
Þá hefur einnig verið tilkynnt um
fuglaflensusmit í Wales í Bretlandi
og í Skotlandi. Þá eru yfirvöld í
Frakklandi í viðbragðsstöðu.
Í Danmörku kom upp smit á búi
með 27.600 kalkúnum í Slagelse
á Sjálandi í haust. Innan nokkurra
daga frá því smitið uppgötvaðist
hafði fuglahópur í bakgarði í minna
en eins kílómetra fjarlægð einnig
smitast. Er þetta dálítið sérstakt í
ljósi þess að Danir lýstu því yfir í
júlí í sumar að þeir væru lausir við öll
fuglaflensusmit í dönsku alifuglaeldi
eftir að smit kom upp í landinu
fyrravetur.
Fuglaflensusmit berst
í alifugla í Noregi
Í Noregi kom upp smit af H5N1
fuglaflensustofni í 7.000 fugla búi
á Rogaland-svæðinu sem nær frá
Haugasundi í norðri og niður undir
Flekkufjörð í suðri. Í nóvember og
í desember 2020 fundust farfuglar
á sama svæði sem smitaðir voru af
fuglaflensuvírus H5N8. Afbrigðið
H5N1 er afbrigði af H5N8. Þó smitið
sem nú hefur fundist í Noregi sé talið
hafa veikari smiteiginleika en H5N8,
þá taka menn þessum tíðindum af
fullri alvöru.
Hættusvæði lýst yfir í Jæren
í suðvesturhluta Noregs
Smitandi fuglaflensa hefur greinst í
alifuglabúi í sveitarfélaginu Klepp
í Rogalandi, eða nánar tiltekið á
Jæren-svæðinu suður af Stafangri.
Smithætta fyrir menn er talin mjög
lítil, en norska matvælaeftirlitið hefur
lýst hættusvæði í kringum alifuglabú
þar sem sannað þykir að sýking hafi
komið upp. Því til viðbótar hefur
verið tekið upp útgöngubann frá
þessu svæði og bannað er að flytja
þaðan egg og kjöt að því er fram
kemur á vefsíðu Landbrug 24.
Matvælaeftirlit Noregs hefur
komið á fót hættusvæði í þriggja km
radíus í kringum búið þar sem smit
hefur greinst. Þá er varúðarsvæði í 10
km radíus út frá búinu. Auk þess er
áhersla lögð á sérstakar reglur fyrir
eigendur eldisfugla og annarra fugla
eins og páfagauka. Um þá fugla gildir
eftirfarandi:
• Allir alifuglar og aðrir fuglar
sem eru í haldi verða að vera
einangraðir í sínum rýmum.
Ef það er ekki mögulegt eða er
óafsakanlegt vegna velferðar
dýra skal geyma fuglana þar sem
þeir komast ekki í snertingu við
aðra alifugla eða búfénað eða
villta fugla.
Þetta þýðir líka að ekki má vera með
hænur eða aðra alifugla í opnu rými í
lokuðum netgirðingum utanhúss sem
villtir fuglar geta sest á.
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Norðmenn taka upp harðar ráðstafanir vegna fuglaflensu sem komin er upp í alifuglaeldi í landinu:
Fuglaflensa breiðist út í Evrópu og
Asíu og hefur smitað fólk í Kína
– Smit hjá mönnum talið mun alvarlegra en af Covid-19 en er samt enn ekki farið að berast manna á milli
Fuglaflensusmit í alifuglaeldi í Noregi og Danmörku getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir íslenska alifuglabændur ef veiran breiðist frekar út.
Útbreiðsla fuglaflensu vekur auknar áhyggjur víða um heim. Mynd / FAO