Bændablaðið - 02.12.2021, Síða 30
30 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021
FRÉTTASKÝRING
Líftæknifyrirtækið Ísteka og
Matvælastofnun liggja undir
ásökunum um vanrækslu við
eftirlit á blóðmerabúskap eftir að
myndskeið sem sýnir ámælisverð
vinnubrögð við blóðtöku fylfullra
hryssna fór í dreifingu á vefnum.
Blóðmerahald á sér 40 ára sögu
hér á landi en hefur vaxið gríðarlega
á undanförnum árum. Myndbandið er
til rannsóknar hjá Matvælastofnun og
Ísteka hefur hafið vinnu við úrbætur
á eftirliti sínu.
Í heimildarmyndinni, sem
dýraverndarsamtökin AWF/TSB
(Anmial Welfare Foundation /
Tierschutzbund Zurich) birtu á
vefnum þann 19. nóvember sl., sjást
viðhöfð vinnubrögð og aðstæður
sem virðast augljóslega stangast á
við starfsskilyrði Matvælastofnunar
um blóðtöku úr fylfullum hryssum
samkvæmt reglugerð um velferð
hrossa.
Rannsókn hafin
Sigríður Björnsdóttir, sérgreina
dýralæknir hrossa hjá Matvæla
stofnun (MAST), segir málið enn á
rannsóknarstigi hjá stofnuninni þar
sem m.a. er unnið að atvikagreiningu.
„Við höfum sen t
dýraverndarsamtökunum bréf og
beðið um meiri gögn frá þeim og
kallað eftir óklipptum myndböndum.“
Hún segir það skilyrði fyrir
starfseminni að blóðtakan sem slík
sé ásættanleg út frá dýravelferð og
hún hafi alla jafna reynst vera það í
þeirra eftirliti.
„Myndbandið sýnir allt aðra
mynd og hefur eðlilega valdið
tilfinningalegu uppnámi hjá öllu
fólki sem lætur sig dýravelferð varða.
Matvælastofnun er að rannsaka
myndbandið mjög nákvæmlega til
að greina veikleika starfseminnar og
eftirlitsins þannig að hægt verði að
bæta þar úr.“
Eftirlitshlutverk MAST
Matvælastofnun sér um opinbert
eftirlit með starfsemi búgreinarinnar
hér á landi. Í frétt stofnunarinnar frá
22. nóvember sl. segir að eftirlitið sé
áhættumiðað og í forgangi. Það hafi
aukist samhliða vexti greinarinnar.
Eftirlitið er tvíþætt, annars vegar
með sjálfri blóðtökunni en hins vegar
með fóðrun og umhirðu hryssnanna
að vetrarlagi.
„Flesta daga ársins ganga
blóðtökuhryssurnar frjálsar, hluta úr
ári með afkvæmum sínum, þar sem
þær geta sýnt sitt eðlilega atferli,“
segir Sigríður.
MAST heimsækir 40%
starfsstöðva á ári, 20% meðan á
blóðtöku stendur og önnur 20%
fá heimsóknir eftirlitsmanna yfir
vetrartímann.
Í leiðbeiningum MAST um
skilyrði fyrir blóðtöku úr fylfullum
hryssum segir að aldrei megi taka
meira en 5 lítra af blóði vikulega
úr hverri hryssu og að hámarki í 8
vikur, að hver dýralæknir megi ekki
hafa fleiri en 4 hryssur í blóðtöku
samtímis og ekki skuli vera fleiri
en 100 hryssur með folöldum í
hverjum blóðtökuhópi. Einnig
segir að ef blóðtakan veldur hryssu
þjáningu eða ógnar velferð hennar
skuli dýralæknir umsvifalaust hætta
blóðtöku á viðkomandi hryssu.
Innt eftir aðbúnaðarkröfum
segir Sigríður að sömu kröfur séu
gerðar um fóðrun og umhirðu
blóðtökuhryssna og annarra hrossa í
landinu að því undanskildu að ríkari
krafa er gerð til ríflegs holdafars við
blóðtöku (holdastig 3,5) og eftirlitið
er tíðara.
Hins vegar eru harðari viðbrögð
við alvarlegum frávikum þar sem
ekki má taka blóð úr hjörðum
sem ekki hafa verið fóðraðar með
viðunandi hætti.
Sigríður segir að fóðrun og
umhirða blóðtökuhrossa hafi batnað
mikið á síðustu árum.
„Þar held ég að aukið eftirlit og
eftirfylgni skipti máli en einnig betri
afkoma í búgreininni. Það skilar sér
til hrossanna.“
Blóðtakan sjálf er hins vegar á
ábyrgð Ísteka og dýralæknir á þeirra
vegum framkvæmir hana. MAST
gerir kröfur um virkt innra eftirlit
Ísteka með velferð hryssnanna á
blóðtökutímabilinu og árlega skýrslu
þar að lútandi.
Veikleiki í eftirlitinu
Sigríður segir að eftirlitsmenn MAST
hafi ekki séð svo grófa meðferð á
hrossum við blóðtöku og sjást í
myndbandinu.
„Við höfum alltaf gert okkur
grein fyrir því að þrátt fyrir að við
mætum í óboðað eftirlit þá geti aðili
látið af slæmri háttsemi um leið
og hann sér eftirlitsmann mæta. Sá
veikleiki opinberast að einhverju leyti
í myndbandinu sem við verðum að
bregðast við. En einmitt þess vegna
hefur mikið verið lagt upp úr innra
eftirliti fyrirtækisins, sem á alltaf
að vera til staðar og sem líka hefur
verið aukið á síðustu árum með
dýravelferðarfulltrúa sem fer milli
starfsstöðva.“
Hún vill leiðrétta misskilning um
að MAST hafi ekki fjárheimildir til
að auka eftirlitið.
„Það er ekki rétt. MAST inn
heimtir eftirlitsgjöld af eftirlitsþega,
sem er Ísteka þegar um blóðtöku
er að ræða, annars umráðamaður
hryssnanna.“
Vöxtur blóðmerarbúskapar
Tilraunir til blóðsöfnunar úr
fylfullum hryssum til framleiðslu á
PMSG á Íslandi hófst hér á landi á
vegum fyrirtækisins G.Ólafssonar
árið 1979. Þá var blóð tekið úr um 80
fylfullum hryssum í Skagafirði. Árið
1980 var tekið blóð úr 680 hryssum
víðs vegar um landið og árið 1981
voru hryssurnar liðlega 1.000 talsins.
Engar opinberar tölur eru
fyrir hendi um línulegan vöxt og
umfang starfseminnar frá upphafi.
Samkvæmt upplýsingum frá Ísteka
hefur meðalársaukning hrossa síðustu
10 ár verið um 16%.
Staðan í dag er þó skýr. Á vefsíðu
Ísteka kemur þó fram að árið 2020
hafi fyrirtækið verið í samstarfi við
99 bændur og velta fyrirtækisins
hefði verið 1,7 milljarðar króna. Á
vefsíðu Matvælastofnunar kemur
fram að í ár hafi 5.383 hryssur verið
nýttar í blóðtöku á 119 bæjum.
Afkoma bænda og Ísteka
Í allmörgum tilfellum er
blóðmerabúskapur meginafkoma
þeirra bænda sem hana stunda.
Afkoman byggist á því afurðaverði
sem Ísteka greiðir fyrir blóðið.
Töluverðra tekna má vænta af
búskap með blóðmerar. Samkvæmt
upplýsingum frá Ísteka er samið við
bændurna um afurðaverð til langs
tíma þar sem verðhækkanir koma
fram ár frá ári. Núgildandi verðskrá
gildir út árið 2023. Einingaverð (ein
blóðgjöf einnar hryssu) á komandi
söfnunartímabili er 9.86413.016
kr. án vsk. Meðalhryssa er því að
gefa um 70.000 kr. á ári fyrir blóð,
góð hryssa um 100.000 kr. Verðmæti
folalds bætist svo við.
Umfang framleiðslu PMSG hér á
landi er ekki opinber en samkvæmt
starfsleyfisumsókn Ísteka þarf um
600.000 lítra af blóði til að framleiða
20 kg af PMSG. Miðað við fjölda
hryssa má þó gróflega áætla að unnið
sé úr 150–200.000 lítrum af blóði.
Básar á ábyrgðarsviði bóndans
Blóðtökubásar og önnur
blóðtökuaðstaða er á ábyrgðarsviði
bóndans samkvæmt gæðahandbók
sem bændur í þjónustusamningi við
Ísteka fá.
Þar eru tilteknir nokkrir hönnunar
punktar að gerðum sem leiða að
blóðtökubásum og finna má teikningu
af blóðtökubás til leiðbeiningar og
hvernig aðstaða sé æskileg, s.s. að
básinn sé hlutfallaréttur og veiti
aðhald, fjalir séu settar fyrir aftan
hryssu, hún sé með múl og band sé
yfir herðakamb. Tiltekið er að bóndi
eða annar ábyrgðarmaður eigi að sjá
um að mönnun sé nægjanleg til að
blóðtakan geti gengið snurðulaust
fyrir sig og biðtímar séu ekki
óhóflegir.
Arnþór segir í tilsvörum að smíð
bása geti verið ýmiss konar og útlit
mismunandi. Blóðtökubás þurfi í
öllum tilvikum að halda vel utan
um hryssuna. Endurunnið efni er
oft notað og slys í básum séu fátíð.
Alþjóðlega staðla skortir
um starfsemina
Í fræðigrein um velferð hrossa sem
notuð eru í framleiðslu á PMSG,
sem birtist í tímaritinu Animals í
desember árið 2019, kemur fram að
erfitt sé að fylgjast með starfseminni
þar sem engir alþjóðlegir staðlar
eða reglugerðir liggi fyrir um slíka
starfsemi.
Þó sé vitað að blóðsöfnun eigi sér
aðallega stað í Úrúgvæ, Argentínu,
Íslandi, Rússlandi, Mongólíu og
Kína.
Magn blóðs sem safnað er sé
mjög breytilegt milli aðila og landa.
Til dæmis þekkist það að eyða
fóstri hryssunnar á nítugasta degi
meðgöngu á sumum stöðum þar sem
ekki sé þörf á frekari meðgöngu eftir
að PMSG framleiðsla hryssunnar
hætti. Það sé gert svo hægt sé að
endurtaka þungun sömu hryssu
tvisvar á ári og ná þá fram tvöfaldri
framleiðslu blóðs. Slík meðhöndlun
er bönnuð með öllu hér á landi.
Höfundar greinarinnar benda á að
án alþjóðlegra staðla og reglugerða
með starfsemi blóðmerabúskapar sé
erfitt að móta heilsteypt eftirlitskerfi.
Löndin eigi það til að hafa sínar
innanlandsreglur en í mörgum
tilfellum séu þær ekki bindandi,
heldur frekar ráðleggjandi.
„Flesta daga ársins ganga blóðtökuhryssurnar frjálsar, hluta úr ári með afkvæmum sínum, þar sem þær geta sýnt sitt
eðlilega atferli,“ segir Sigríður Björnsdóttir hjá MAST. Mynd tengist ekki starfsemi blóðmerarbúskapar. Mynd/ghp
„Myndbandið hefur eðlilega valdið tilfinningalegu uppnámi hjá öllu fólki
sem lætur sig dýravelferð varða,“ segir Sigríður.
Plasmasýni í Ísteka. Mynd/ehg
Blóðtökubásar og önnur blóðtökuaðstaða er á ábyrgðarsviði bóndans.
Myndir/Skjáskot úr myndbandi AWF/TSB
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
STÝRISENDAR
gerðir dráttarvéla
Hvað er PMSG?
Lífvirka efnið equine chorionic
gondotropin, skammstafað eCG,
er í daglegu kallað PMSG sem
er skammstöfun á pregnant
mare serum gonadotrophin.
Þetta er hormón sem frumur
í fósturhimnu fylfullra mera
mynda. Meginhlutverk
hormónsins er að hvetja til
myndunar gulbúa og stuðla
að því að þungun viðhaldist.
PMSG mælist í fylfullum
hryssum að jafnaði frá um 40.
degi meðgöngu og styrkur hans
vex fram að degi 60. Eftir það fer
hann lækkandi fram að degi 120.
Hér á landi er blóðtöku
tímabil frá síðustu viku
júlí fram til 5. október.
Frjósemishormónin eru
hreinsuð úr blóðinu hjá Ísteka
og úr þeim búin til afurð sem
seld er úr landi. Efnið er hægt
að nota til að stilla gangmál og
örva þroska eggbúa í öðrum
dýrategundum en hrossum, s.s.
í svínum, nautum og kindum.
Guðrún Hulda Pálsdóttir
gudrunhulda@bondi.is
Dýravelferð og blóðtaka fylfullra hryssna í eldlínunni:
Úrbætur aðkallandi í blóðmerabúskap
– Er ör vöxtur og umfang búgreinarinnar eftirlitinu ofviða?