Bændablaðið - 02.12.2021, Side 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021
Imba var heilmikill örlagavaldur
Rafn var mörg sumur í sveit á
Jarðbrú í Svarfaðardal hjá Halldóri
Jónssyni og Ingibjörgu Helgadóttur
sem þar ráku myndarbú og segir
hann að sú dvöl hafi aukið áhuga
hans enn frekar á landbúnaði og
störfum honum tengdum.
„Mér leið vel á Jarðbrú, féll vel
inn í hópinn sem þar var, svo vel
kannski að margir héldu að ég væri
einn úr systkinahópnum. Mér þótti
vænt um það,“ segir hann og bætir
við að óbeint megi rekja það að hann
hóf störf við sæðingar til Ingibjargar
á Jarðbrú. Hún hafði á fundi naut
griparæktarfélags í Svarfaðardal
stungið upp á að prófa hann í starfið
þegar sá sem því sinnti lét af störfum.
„Hún var heilmikill
örlagavaldur í því að ég
fór í þetta.“
Rafn stundaði
búfræði nám við Bænda
skólann á Hólum á
árunum 1969 til 1971.
Hann sótti um nám í
framhaldsdeildinni á
Hvanneyri að því loknu
og var á leið suður þá
um haustið þegar tilboð
um starf barst frá Félagi
nautgriparæktenda í
Eyjafirði. Velti hann
málum aðeins fyrir sér
og var niðurstaðan sú
að fresta náminu, enda
hægt að hefja það eitt
hvað annað haust og
þiggja starfið.
„Það gerði nú útslag
ið í þessum vangaveltum
mínum að ég var kom
inn með kærustu upp
á arminn og við áttum
von á barni. Þannig að ég
ákvað að vera heima og
prófa þetta nýja starf,“
segir hann.
Ljóst var að Rafn
myndi í sínu starfi vera
í búfjársæðingum og því
byrjaði hann á að sækja
námskeið syðra áður en
hann hélt út á akurinn og
hóf sín störf í eyfirskum
sveitum.
Farið á mun færri
bæi en áður
„Eðli starfsins hefur
ekki breyst, það er
enn hið sama, tækni
og áhöldin svipuð
en það sem aftur á
móti hefur breyst og
það mikið eru sam
göngurnar hér á svæð
inu, samskiptatæknin
og eins fjöldi bæja
sem farið er á,“ segir
Rafn en í fyrstu sinnti
hann svæði kringum
Dalvík, Svarfaðardal
og Árskógsströnd inn
að Rauðuvík auk þess
að fara í Ólafsfjörð.
„Þetta var mitt starfs
svæði á fyrstu árunum,
og alls voru 74 bæir á
mínu svæði með kýr
auk þess sem kýr voru á 12 bæjum
í Ólafsfirði. Það hefur aldeilis orðið
breyting á hvað fjöldann varðar,
bæjunum hefur snarfækkað með
árunum, en kýrnar eru líklega álíka
margar og var. Nú eru á þessu svæði
13 bæir með kýr þannig að yfir
ferðin er allt önnur en var í fyrri tíð.“
Þá nefnir hann að vegir hafi
víðast hvar ekki verið upp á marga
fiska og vetrarsamgöngur oft og
tíðum erfiðar, enda var í þá daga
ekki endilega mikið kapp lagt á að
halda vegum opnum alltaf.
„Þetta var nú þannig að ef snjóaði
og vegir urðu ófærir þá var það bara
þannig. Og fólk var ekki að kvarta
mikið yfir því, þetta var staðan og
menn bara biðu þess að aftur yrði
fært,“ segir Rafn sem iðulega var
á ferðinni í vonskuveðri og jafnvel
stórhríðum. Það var bara farið af
stað þegar kallið kom.
Samskiptin voru líka með öðrum
hætti, það var hægt að komast
í síma heima á bæjunum og láta
vita af sér og menn hringdu sín á
milli til að spyrja fyrir um hvort
Rafn hefði komið við og þá reynt
að áætla hvenær hann hugsanlega
væri á ferðinni á þessum eða hinum
bænum.
„Ég var nú almennt mjög
heppinn í þessum ferðum mínum
þó veður og færð væri ekki alltaf
upp á það besta. Yfirleitt komst ég
klakklaust á milli bæja og heim en
auðvitað kom það stöku sinnum
fyrir að maður ók aðeins út fyrir
veg eins og gengur,“ segir Rafn.
Hann rifjar upp eitt mesta
norðanbál sem hann lenti í fyrir
allmörgum árum. Var á heimleið
og staddur á Hámundarstaðahálsi
í snælduvitlausu veðri. Þegar hann
kemur niður af hálsinum sést vart
út úr auga. Kemst hann heim að
Hálsi og reynir að fá vaska menn á
Dalvík til að sækja sig á vélsleða en
veður þótti ekki fýsilegt til þannig
ferða. Úr varð að Rafn gekk heim til
Dalvíkur, nokkurra kílómetra leið.
Snjóflóð í Múlanum
Í annað skipti komst hann í hann
krappan í Ólafsfjarðarmúla, en
hann hafði farið þangað til að sinna
sínu starfi. Þetta var á Þorláksmessu
og var bróðir hans með í för, þeir
áttu systur í Ólafsfirði sem þeir
heilsuðu upp á þennan dag. Þegar
þeir höfðu lokið sínum erindum var
haldið heim á leið.
„Það gerist svo að við keyrum
inn í snjóflóð sem var að falla yfir
veginn, ég var nokkrar sekúndur
að átta mig á að þetta væri flóð,
það kom mikill slinkur á bílinn og
snjórinn náði upp fyrir vélarhlífina
og aðeins upp á framrúðuna. Ég
náði að bakka út úr þessu og komast
fyrir flóðið, en var ekki kominn
langt þegar annað flóð fellur og nú
á afturhluta bílsins. Hann kastaðist
svolítið til en ég gaf vel í og komst
sem betur fer út úr þessu líka. Þegar
við skoðuðum aðstæður sáum við
að þetta voru tvær litlar spýjur, en
við vorum fegnir að sleppa þetta
vel frá þeim. Ég hugsa að þetta sé
nú það mesta sem ég hef lent í á
mínum starfsferli,“ segir Rafn.
Beint inn í fjós og út aftur
Nú hin síðari ár eru tveir frjótæknar
að störfum hjá Búnaðarsambandi
Eyjafjarðar og skipta svæðinu á
milli sín. Rafn tekur norðurhlutann,
byrjar á Akureyri og heldur heim
á Dalvík með viðkomu á þeim
bæjum sem óskað hafa eftir honum.
Hann fer einnig út með ströndinni
austanmegin og byrjar gjarnan þar,
en hinn sinnir Eyjafjarðarsveit þar
sem flest kúabú eru. Bændur panta
frjótækni í símatíma snemma á
morgnana eða eftir öðrum leiðum
og gefa upp númer á þeirri kú sem
þarf að sæða og hvar hana sé að
finna í fjósinu. Frjótæknar finna
til heppilegt sæði og lesa sér til í
gagnabanka frá Bændasamtökum
Íslands eða velja naut í gegnum
Tarf sem Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins heldur úti. Rafn
segir að þegar sé búið að velja
sæði fyrir þær kýr sem farið hafi í
gengum kynbótamat.
„Við tökum okkur til og græjum
okkur og höldum svo út í sveitirn
ar,“ segir hann. Og bætir við að nú
heyri til undantekninga að rekast
á bændur og búalið heima á bæj
unum, „við förum bara beint inn
í fjós og vinnum okkar vinnu og
svo er haldið áfram,“ segir hann.
Af sem áður var að staldrað var við
og drukkið kaffi á hverjum bæ.“
Má ekki slaka á kröfum
Rafn segir að þegar hann líti
yfir farinn veg sé hann ánægður
með að hafa valið sér þennan
starfsvettvang. Hann hafi alla tíð
lagt metnað í starfið og sinnt því
af vandvirkni.
„Ég hef verið heppinn að starfa
hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar
þar sem stjórnendur hafa skilning
og metnað fyrir því að sæðinga
starfsemi gangi sem best. Það hefur
alltaf verið vel að okkur frjótækn
um búið, við höfum góða vinnuað
stöðu og þess gætt að bílakostur sé
eins og best verður á kosið,“ segir
hann. Einnig hafi hann átt því láni
að fagna að starfa með frábæru
fólki á góðum vinnustað, þar sem
jákvæðni, léttleiki og gleði hafi
verið í fyrirrúmi.
Rafn er enn að störfum og segir
að lífinu sé langt í frá lokið þó
menn nái því að verða sjötugir, að
halda áfram að vinna gefi sér aukin
tækifæri á samveru og samskiptum
sem geri lífið enn skemmtilegra.
„Það er nauðsynlegt að mínu mati
fyrir kynbótastarfið í nautgriparækt
að litið sé á sæðingastarfsemina
sem mikilvægan þátt og að ekki
verði slakað á kröfum til að árangur
verði sem bestur. Ég fann mína
ástríðu í þessu starfi og hef alltaf
haft að leiðarljósi að þeir bestu
geti alltaf gert betur ef áhugi og
metnaður er fyrir hendi til að halda
merkinu á lofti.“
Á góðri stundu með Þorsteini Ólafssyni dýralækni heima í Öldugötu á Dalvík. Mynd / Úr einkasafni.
Rafn Arnbjörnsson með skíðin hans
Hjartar á Tjörn.
Við skafl á hlaðinu á Steindyrum.
Rafn kom einu sinni sem oftar
heim að Bakka í Svarfaðardal,
sat þar í eldhúsi og gæddi sér
á veitingum. Móðir Helgu,
Engilráð, var í herbergi sínu,
heyrir umgang og spyr hver sé
á ferðinni. Æi, það er Rabbi
bara, svarar Helga móður sinni.
Eftir drykklanga stund heyrist í
þeirri gömlu: Nú varð hann ekki
ónýtur í frostinu í haust?
Einhverju sinni var Rafn
á ferð hjá Jónasi í Koti í
Svarfaðardal að sinna vinnu
sinni og fékk þá þessi skilaboð
sem komið hafði verið fyrir á
bréfsnepli við mjólkurtankinn:
Hún herjar víða þessi þrá,
það fer að nálgast æði,
Helga á Bakka hún vill fá,
heilan skammt af sæði.
Æi, það er
Rabbi bara
Rafn og Hjörtur á Tjörn komu sér upp ákveðnu merkjamáli, enda ekki
alltaf gott að ná á sæðingamanni á ferð um dalinn þegar símar voru ekki
í hverjum vasa. Þegar Rafn ók fram hjá heimreiðinni að Tjörn og rauð
veifa blakti við úti á brúsapalli þýddi það að hann ætti að koma við.
„Þetta var merkið sem hann gaf mér ef á sæðingamanni þurfti að
halda á Tjörn þann daginn. Gárungarnir í sveitinni göntuðust með
það að Hjörtur hefði notað rauðan náttkjól af Sigríði konu sinni sem
veifu,“ segir hann.
Rauða veifan