Bændablaðið - 02.12.2021, Blaðsíða 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021
Fliegl í Þýskalandi fagnaði 30 ára
afmæli á árinu sem er að líða. Í
tilefni þess heimsótti Bændablaðið
verksmiðju fyrirtækisins sem er
staðsett rétt við Triptis í suðaust-
urhluta Þýskalands, skammt frá
landamærum Tékklands.
Upphaf fyrirtækisins má rekja
til þess að árið 1970 keypti Josef
Fliegl eldri land í Kastl í Bæjaralandi
í Suður-Þýskalandi. Draumur hans var
að vinna að hönnun og smíði landbún-
aðartækja. Í dag er Fliegl samsteypan
með starfsemi í mörgum löndum og
selur framleiðslu sína víða um heim
og þar á meðal á Íslandi. Þekktasta
framleiðsla Fliegl hér á landi eru
vélavagnar, flatvagnar og beislis-
vagnar svo eitthvað sé nefnt, einnig
hefur fyrirtækið sérsmíðað vagna fyrir
íslenskan markað.
Landbúnaðartæki
Miðstöð landbúnaðartækjahluta
Fliegl, Fliegl Agro-Center, er í Kastl
í Bæjaralandi en auk þess er fyrirtækið
með framleiðslu í Ungverjalandi og
á Spáni. Í dag starfa hátt í þúsund
manns hjá hinum ólíku deildum
samsteypunnar.
Meðal landbúnaðartækja sem
fyrirtækið framleiðir eru Push-Off
vagnar sem njóta mikilla vinsælda í
Evrópu og hafa selst vel til Bandaríkja
Norður-Ameríku, Kína og fleiri landa.
Vinsælustu Push-Off vagnarnir á
Íslandi eru Gigat heyvagnar auk
þess sem AS100 skítadreifarar,
mykjudreifarar og annar búnaður
fyrir landbúnað og skógrækt selst
einnig vel. Auk þess framleiðir
Fliegl götusópa fyrir bæjarfélög,
búnað tengdum timburframleiðslu
og flutningsvagna fyrir þýska herinn.
Fliegl samsteypan hefur frá
upphafi stefnt að því að hafa
framleiðslu sína eins umhverfisvæna
og kostur er. Viðleitni í þá átt er
meðal annars á þökum verksmiðju-
og skrifstofuhúsnæðis fyrirtækisins í
Triptis, sólarsellur sem framleiða nægt
rafmagn til allrar starfseminnar, auk
þess sem umfram rafmagn er selt inn
á veitukerfi sveitarfélagsins.
RAG import - export
Rafn Arnar Guðjónsson,
framkvæmdastjóri og eigandi RAG
import – export og umboðsmaður
Fliegl á Íslandi, segist hafa átt í
viðskiptum við Fliegl í um 20 ár og
flutt inn yfir 100 vagna frá þeim.
„Viðskiptin hófust eftir að ég sendi
um tíu erlendum fyrirtækjum sem ég
fann í trukkatímariti fyrirspurn um
hvort þau gætu framleitt gámagrind,
þriggja öxla fyrir tvöföld dekk fyrir
íslenskar aðstæður og Fliegl var eina
fyrirtækið sem svaraði mér. Ég man
vel þegar ég kom fyrst til Triptis þar
sem grindurnar voru framleiddar.
Eiginlega var ekki neitt þar nema
nokkur hús og það sem í dag er kölluð
gamla smiðjan. Okkur tókst að ná
samningi og höfum átt í farsælum
viðskiptum síðan þá.“
Hröð uppbygging
Eftir fall Berlínarmúrsins og
sameiningu Þýskalands leitaði
fyrirtækið nýrra markaða og
keypti gamla járnsmiðju í Triptis
og hóf framleiðslu á vélavögnum,
gámagrindum og flatvögnum. Í dag
eru aðallega smíðaðir minni vagnar
og vagnar með sérútbúnaði í gömlu
smiðjunni auk þess sem þar er að
finna skrifstofur.
Vilmundur Hansen
vilmundur@bondi.is
LÍF&STARF
Rafn Arnar Guðjónsson, framkvæmdastjóri og eigandi RAG import – export og umboðsmaður Fliegl á Íslandi við grind af Flatvagni sem er svipaður þeim sem komu til Íslands í sumar. Myndir / VH
Fliegl í Þýskalandi fagnar 30 ára afmælinu:
Framleiðir fimm þúsund vagna á ári
Vagnarnir eru álags- og hallaprófaðir. Framleiðslusalurinn.
Nánast allar gámagrindur sem fluttar eru til Íslands eru sérsmíð-
aðar eftir íslenskum teikningum.
Þriggja öxla StoneMaster malarflutningavagn. Mynd / Fliegl Ljósin sett á og prófuð.