Bændablaðið - 02.12.2021, Page 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021
Í undirbúningi er stórfellt átak
í ræktun stafafuru hér á landi á
vegum Skógræktarinnar og hefur
almenningur verið hvattur til að
safna fræi í þetta verkefni. Því
fylgir hins vegar mikil áhætta með
hliðsjón af umhverfissjónarmið-
um og fjölþættum öðrum hags-
munum sem taka þarf tillit til.
Dvínandi vinsældir stafafuru
Margt er hægt að læra af reynslu
annarra þjóða og í heimsókn
fyrri höfundar þessarar greinar
til Skotlands í haust notaði hann
tækifærið til að kynna sér gróður-
setningu, vöxt og nýtingu stafafuru
þar í landi. Eftirfarandi upplýsingar
bárust síðan frá umhverfisskóg-
fræðingi stofnunar sem hefur um-
sjón með þjóðskógum Skotlands,
með þeim fyrirvara að við slíkum
spurningum væri ekki til neitt
einfalt svar.
Áður fyrr tíðkaðist það í Skotlandi
að gróðursetja stafafuruna í lífrænan
jarðveg, einkum mýrar. Algengt var
að planta sitkagreni með því. Það var
gert í þeirri trú að stafafuran myndi
næra sitkagreni með köfnunarefni en
síðan lúta í lægra haldi þegar grenið
færi að yfirskyggja furuna.
Á öðrum svæðum var stafafur-
an gróðursett í einræktun, en það
var einkum gert þar sem jarðvegur
var ófrjór og sömuleiðis í djúpar
mýrar þar sem bæði þurfti fram-
ræslu og umfangsmikla jarðvinnslu.
Stafafuran óx illa í slíkum jarðvegi,
og nú er verið að fella hana til að
endurheimta lífríki þessara búsvæða.
Það er aðeins á örfáum svæð-
um í Skotlandi sem stafafura hefur
verið gróðursett í góðan jarðveg
sem megintegund til viðarfram-
leiðslu. Gert var ráð fyrir að við
slíkar aðstæður gætu þessi tré
vaxið vel og gefið af sér nógu gilda
boli fyrir timbur. Þar kemur þó til
mikill munur eftir kvæmum. Best
löguðu trén eiga uppruna sinn í
Alaska eða á svæðinu með Skeena
ánni, en fljótvöxnustu trén eru frá
strandhéruðum. Þau vaxa hratt en
eru illa löguð, þannig að þótt stofn-
inn geti orðið nógu gildur verður
hann sjaldan nógu beinn til að vera
sögunarhæfur til framleiðslu á
timbri. Vindskemmdir spilla einnig
notagildi stafafurunnar.
Annað stórt vandamál sem nú
hefur komið í ljós í Skotlandi er að
stafafuran er mjög viðkvæm fyrir
sveppasjúkdómnum Dothistroma
Septisporum sem getur eyðilagt
barrið og drepið trén (Mynd 1).
Þetta getur einnig haft áhrif á
aðliggjandi tré og þar með skaðað
upprunalega skoska furuskóga, en
þeir eru undir sérstökum verndun-
aráætlunum vegna mikilvægi þeirra
fyrir líffræðilegra fjölbreytni.
Meðal annars þess vegna er verið
að fjarlægja stafafurur úr skoskum
skógum í stórum stíl. Enn fremur
er lögð mikil áhersla á endurheimt
þarlendra trjátegunda og fjölbreytt
vistkerfi. Vaxandi umræða er einnig
um sjálfsáningu sitkagrenis sem
hefur mikil áhrif á lífríki og lands-
lag. (Mynd 2).
Þessi tengiliður okkar bætti því
við að á Írlandi væri enn verið að
gróðursetja stafafuru til að rækta
lífmassa til framleiðslu á viðarelds-
neyti. Slík ræktun væri hins vegar
orðin mjög umdeild.
Reynsla Skotlands og
íslenskur veruleiki
Í hnotskurn sýnir reynslan frá
Skotlandi að stafafura getur vaxið
nánast hvar sem er. Hún nær hins
vegar óvíða góðum vexti og er
næstum alltaf notuð sem efniviður
fyrir þilplötugerð, sem er rýr
tekjulind (Mynd 1). Vandamál með
sjúkdóma og ásókn inn í náttúruleg
skóglendi hafa leitt til þess að víða
er verið að fjarlægja stafafuruna
og það er orðið sjaldgæft að hún
sé gróðursett þar. Sömu sögu er að
segja frá fleiri löndum, til dæmis
Nýja-Sjálandi sem við fjölluðum
um nýverið hér í Bændablaðinu.
Það er full ástæða til að fara
með gát í notkun stafafuru hér á
landi. Það blasir raunar við víða
um land að með hlýnandi loftslagi
og auknum fjölda kynþroska trjáa
fer geta hennar til sjálfsáningar
hraðvaxandi (Myndir 3 og 4).
Áætlanir um stórfellda rækt-
un stafafuru, sem fela í sér aukna
útbreiðslu hennar, þurfa því að
byggja á heildrænu mati á lang-
tímaáhrifum hennar á náttúru
Íslands. Á meðan slíkt mat er ekki
fyrir hendi verður varúðarreglan
að gilda.
Sveinn Runólfsson
og Andrés Arnalds
Mynd 3. Sjálfsáð stafafura í Austur-Skaftafellssýslu. Ef ekki er höfð stjórn á
útbreiðslu stafafuru er hætt við að í stað fjölskrúðugra vistkerfa vaxi víða upp
fábreytnari barrskógar, til mikils tjóns fyrir líffræðilega fjölbreytni.
Mynd / Pawel Wasowicz
Stafafura
Mynd 1 . Í hnotskurn sýnir reynslan frá Skotlandi að sjálfsáning stafafuru getur haft mikil áhrif á lífríki og landslag. Hún nær hins vegar óvíða góðum vexti
og er einna helst notuð sem efniviður fyrir þilplötugerð, sem er rýr tekjulind. Mynd / Sveinn Runólfsson
Sveinn Runólfsson. Andrés Arnalds.
Mynd 2. Stafafuruskógur sem varð sveppasýkingunni að bráð. Hver yrðu örlög
íslenskra furuskóga ef slík sýking bærist til landsins? Mynd / Roger Crofts
Mynd 4. Sjálfsáð stafafura að vaxa upp meðfram veginum í Grafningi.
Mynd / Sveinn / Runólfsson
LESENDARÝNI