Bændablaðið - 02.12.2021, Side 53

Bændablaðið - 02.12.2021, Side 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021 Ölni frá Akranesi og Sunnu frá Sauðanesi. Silfurskotta hlaut 8,38 fyrir sköpulag, hún er framfalleg og fótahá með afar góða yfir- línu í baki en þar hlaut hún 9,0. Hæfileikaeinkunn hennar er 8,88 þar sem hæst fékk hún 9,5 fyrir frábæran samstarfsvilja þar sem hvort tveggja í senn fer mikil framhugsun og þjálni. Hún er gæð- ingur á gangi og hlaut 9,0 fyrir tölt, skeið og fegurð í reið en að öðrum kostum óupptöldum hlaut hún einkunnina 8,5. 238 hryssur komu til dóms í elsta flokki hryssna Í elsta flokki hryssna, 7 vetra og eldri, komu 238 hryssur til dóms eða um 27% sýndra hrossa. Þriðju hæstu einkunn ársins eða 8,54 hlaut Hávör frá Ragnheiðarstöðum. Ræktandi hennar er Helgi Jón Harðarson en eigendur eru Fanndís Helgadóttir og HJH Eignarhaldsfélag ehf. Hávör er undan Hrannari frá Flugumýri II og gæðingamóðurinni Hátíð frá Úlfsstöðum. Hávör er reist, fótahá með langa og öfluga lend. Þá er hún gæðingur á gangi með 8,72 fyrir hæfileika, þar sem hæst ber 9,0 fyrir tölt, brokk og samstarfsvilja, 8,5 fyrir skeið, greitt stökk, fet og fegurð í reið. Næsthæstu einkunn ársins 8,65 hlaut Þrá frá Prestsbæ. Ræktendur hennar og eigendur eru Inga og Ingar Jensen. Þrá er undan Arion frá Eystra-Fróðholti og heiðursverð- launa hryssunni Þóru frá Prestsbæ. Þrá er glæsileg hryssa á velli enda með 9,0 fyrir háls, herðar og bóga og samræmi. Fyrir hæfileika hlaut hún 8,71 og ber þar hæst 10 fyrir samstarfsvilja, 9,5 fyrir tölt, greitt stökk og fegurð í reið. Hæstu einkunn ársins 8,77 hlaut Katla frá Hemlu II og er það jafn- fram hæsta aldursleiðrétta aðal- einkunn ársins. Ræktendur henn- ar eru Anna Kristín Geirsdóttir og Vignir Siggeirsson en eigandi hennar er Anja Egger-Meier. Katla er undan Skýr frá Skálakoti og Spyrnu frá Síðu. Katla er frábær alhliða gæðingur með 8,56 fyrir sköpulag, m.a. með 9,0 fyrir höfuð, háls, herðar og bóga, samræmi og prúðleika. Hæfileikaeinkunn henn- ar er 8,88 en hún er með 9,5 fyrir samstarfsvilja, 9,0 fyrir tölt, skeið og fegurð í reið og 8,5 fyrir aðra eiginleika. Efstu þrír stóðhestar í hverjum aldursflokki Í flokki fjögurra vetra stóðhesta voru sýndir 45 hestar eða um 5% sýndra hrossa. Þriðju hæstu einkunn ársins hlaut Drangur frá Steinnesi en hann hlaut 8,33 í aðaleinkunn. Ræktandi hans og eigandi er Magnús Jósefsson. Drangur er undan Draupni frá Stuðlum og Ólgu frá Steinnesi. Drangur er skrefmikill myndar- gripur, með 8,41 fyrir sköpulag. Hann er með 8,5 fyrir flesta þætti sköpulags og 9,0 fyrir hófa. Fyrir hæfileika hlaut hann 8,28, þar ber hæst 9,0 fyrir tölt. Næsthæstu aðaleinkunn ársins hlaut Tappi frá Höskuldsstöðum, en hann hlaut 8,33 í aðaleinkunn eins og Drangur en á milli skilja nokkr- ir aukastafir. Ræktandi og eigandi hans er Snæbjörn Sigurðsson. Tappi er undan Kolskeggi frá Kjarnholtum I og Tign frá Höskuldsstöðum. Tappi er framhár og léttbyggður gæðingur með 8,35 fyrir sköpulag, 9,0 fyrir samræmi og 8,5 fyrir háls, herðar og bóga, bak og lend og hófa. Tappi er með 8,32 fyrir hæfileika, þar af 9,0 fyrir tölt og samstarfsvilja. Hæstu einkunn ársins í flokki fjögurra vetra stóðhesta hlaut Fróði frá Flugumýri, með aðaleinkunn 8,36. Ræktendur hans eru Eyrún Ýr Pálsdóttir og Teitur Árnason en eig- andi er Eyrún Ýr Pálsdóttir. Fróði er undan Hring frá Gunnarsstöðum I og Fýsn frá Feti. Fróði hlaut 8,45 fyrir sköpulag en hæst hlaut hann 9,0 fyrir háls, herðar, bóga og samræmi. Þá fékk hann 8,31 fyrir hæfileika þar sem hæst ber 9,0 fyrir tölt, brokk, greitt stökk, sam- starfsvilja og fegurð í reið. Fróði er úrvals klárhestur, hágengur, skref- mikill og samstarfsfús. 80 fimm vetra stóðhestar í fullnaðardóm Í flokki fimm vetra stóðhesta komu fram 80 hestar í fullnaðardóm eða 9% sýndra hrossa. Þriðju hæstu einkunn ársins í þessum flokki hlaut Sóli frá Þúfu í Landeyjum með 8,43 í aðaleinkunn. Ræktendur og eigendur hans eru Anna Berglind Indriðadóttir og Guðni Þór Guðmundsson. Sóli er undan Sólon frá Skáney og Þöll frá Þúfu í Landeyjum. Sóli er ágætlega gerður með 8,0 fyrir háls, herðar og bóga, þá hlaut hann 9,0 fyrir bak og lend og prúðleika og úrvalseinkunn- ina 9,5 fyrir hófa. Fyrir hæfileika hlaut Sóli 8,35, þar af 9,0 fyrir tölt og 8,5 fyrir brokk, hægt og greitt stökk, samstarfsvilja og fegurð í reið. Næsthæstu einkunn ársins hlaut Töfri frá Þúfum með 8,50 í aðal- einkunn. Ræktendur og eigendur hans eru Gísli Gíslason og Mette Camilla Moe Mannseth. Töfri er undan Trymbli frá Stóra-Ási og Völvu frá Breiðstöðum. Töfri er með einkunnina 8,41 fyrir sköpulag, þar ber hæst 9,0 fyrir bak og lend. Töfri er fjölhæfur alhliða gæðingur með þjála og trausta lund en hann er með 8,55 fyrir hæfileika. Hann hlaut 9,0 fyrir tölt, samstarfsvilja og fegurð í reið. Hæstu einkunn í þessum flokki hlaut Magni frá Stuðlum eða 8,52 í aðaleinkunn. Ræktendur hans eru Edda Björk Ólafsdóttir og Páll Stefánsson en eigendur eru Páll Stefánsson, Hrafnkell Áki Pálsson og Ólafur Tryggvi Pálsson. Magni er undan Konsert frá Hofi og Stöku frá Stuðlum. Magni er glæsilegur hestur með 8,74 fyrir sköpulag, hæst hlaut hann 9,0 fyrir bak og lend, samræmi, hófa og prúðleika. Fyrir hæfileika hlaut Magni 8,40, mjúkur og takt- hreinn á tölti og skeiðið ferðmikið og öruggt, enda fékk hann 9,0 fyrir skeið og samstarfsvilja. 78 hestar í flokki 6 vetra stóðhesta Í flokki 6 vetra stóðhesta voru sýndir 78 hestar í fullnaðardóm eða um 9% sýndra hrossa. Þriðju hæstu einkunn ársins hlaut Pensill frá Hvolsvelli með 8,55 í aðaleinkunn. Ræktendur og eigendur hans eru Ásmundur Þór Þórisson og Helga Friðgeirsdóttir. Pensill er undan Ölni frá Akranesi og Hörpu Sjöfn frá Hvolsvelli. Pensill er stórglæsilegur hestur með sköpulagseinkunn upp á 8,98. Hann hlaut 9,0 fyrir háls, herðar og bóga og 9,5 fyrir bak og lend og samræmi. Pensill er rúmur, léttstígur og þjáll gæðingur en hann fékk 8,32 fyrir hæfileika, þar ber hæst 9,0 fyrir tölt, brokk, samstarfsvilja og fegurð í reið. Næst hæstu einkunn ársins hlaut Gandi frá Rauðalæk, 8,57 í aðal- einkunn. Ræktandi og eigandi er Elisabet Norderup Midhelson. Gandi er undan Konsert frá Hofi og Garúnu frá Árbæ. Gandi er glæsilegur hestur með 8,79 fyrir sköpulag, þar af 9,5 fyrir samræmi og 9,0 fyrir háls, herðar og bóga og hófa. Hann er alhliða gæð- ingur með 9,0 fyrir brokk og fegurð í reið. Brokkið er rúmt og svifmikið. Hæstu einkunn ársins í þessum flokki hlaut Seðill frá Árbæ, með aðaleinkunn 8,68. Ræktandi og eigandi hans er Maríanna Gunnarsdóttir. Seðill er undan Sjóð frá Kirkjubæ og Veronu frá Árbæ. Seðill er stórglæsilegur alhliða gæðingur, fyrir sköpulag hlaut hann 8,79, þar af 9,0 fyrir háls, herðar og bóga, bak og lend, samræmi og hófa. Seðill hlaut fyrir hæfileika 8,62, þar ber hæst 9,0 fyrir greitt stökk, samstarfsvilja og fet. Seðill er fjölhæfur á gangi og með ljúfa lund. 44 hestar í elsta flokki stóðhesta Í elsta flokki stóðhesta voru sýndir 44 hestar eða um 5% sýndra hrossa. Þriðju hæstu einkunn ársins hlaut Nökkvi frá Hrísakoti, með aðal- einkunn 8,52. Ræktandi og eigandi hans er Sif Matthíasdóttir. Nökkvi er undan Ramma frá Búlandi og Hugrúnu frá Strönd II. Nökkvi er vel gerður alhliðagæðingur með 8,39 fyrir sköpulag en hann er með 8,0 eða 8,5 fyrir alla þætti sköpulags. Fyrir hæfileika hlaut hann 8,58, þar ber hæst 9,5 fyrir skeið og 9,0 fyrir samstarfsvilja. Næsthæstu einkunn ársins hlaut Huginn frá Bergi, með aðaleinkunn 8,55. Ræktandi hans og jafnframt eigandi er Anna Dóra Markúsdóttir. Huginn er undan Króki frá Ytra- Dalsgerði og heiðursverðlauna- hryssunni Hildu frá Bjarnarhöfn. Huginn er ákaflega prúður og vel- gerður alhliða gæðingur með 8,45 fyrir sköpulag. Fyrir hæfileika hlaut hann 8,60, en hann hlaut 9,0 fyrir skeið og samstarfsvilja. Hæstu einkunn ársins í elsta flokki stóðhesta hlaut Glampi frá Kjarrhólum með 8,68 í aðaleinkunn. Ræktendur hans eru Axel Davíðsson og Bragi Sverrisson en eigandi er Gæðingar ehf. Glampi er undan Arion frá Eystra-Fróðholti og Gígju frá Árbæ. Glampi hlaut 8,59 fyrir sköpulag, þar af fjórar níur, fyrir bak og lend, samræmi, fótagerð og hófa. Glampi er reistur og afar fótahár. Fyrir hæfileika hlaut hann 8,72, enda fjölhæfur á gangi en hann hlaut m.a. 9,0 fyrir tölt, skeið, samstarfsvilja og fegurð í reið. A Wendel ehf. Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík, S:551 5464 - wendel@wendel.is www.wendel.is Hilltip Icestriker 900–1600L Salt og sanddreifari í tveim stærðum fyrir stóra pallbíla og minni vörubíla. Rafdrifinn 12V. Hilltip Icestriker 380–550L Salt og sanddreifarari í tveim stærðum, fyrir minni pallbíla. Rafdrifinn 12V. Hilltip Icestriker 600 TR Rafdrifinn kastdreifari fyrir dráttarvélar m/öflugum efnisskömmtunarbúnaði. Hilltip Snowstriker VP Fjölplógur fyrir pallbíla, minni vörubíla og jeppa. Fáanlegur í 185–240 cm breidd. Hilltip Snowstriker SP Snjótönn fyrir pallbíla, minni vörubíla og jeppa. Fáanleg í 165–240 cm breidd. Hilltip Fjölplógur MVP Fjölplógur fyrir ameríska pallbíla t.d. RAM 3500, GMC 3500 og FORD 350. LÍF&STARF Daníel Jónsson á Glampa frá Kjarrhólum. Mynd/ Gísli Guðjónsson / Eiðfaxi Katla frá Hemlu II hlaut hæstu einkunn ársins, 8,77. Knapi er Árni Björn Pálsson. Mynd/Anja Egger-Meier Guðmundur Björgvinsson á Ganda frá Rauðalæk. Mynd/ Gísli Guðjónsson / Eiðfaxi

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.