Bændablaðið - 02.12.2021, Side 54

Bændablaðið - 02.12.2021, Side 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021 „Ég fékk þessa skrýtnu hugmynd að gefa út bók um kleinur fyrir þremur árum en á þeim tíma hafði ég sjálf aldrei steikt kleinur en var eins og flestir Íslendingar mikill aðdáandi kleina,“ segir Ingunn Þráinsdóttir, höfundur bókarinnar Bestu kleinur í heimi. Ingunn, sem er myndlistarkona og grafískur hönnuður á Egilsstöðum, hefur safnað kleinuuppskriftum um land allt og nú fyrir jólin er bók með öllum herlegheitunum væntanleg. Alls eru 57 uppskriftir í bókinni, gott sýnishorn af heimagerðum íslenskum kleinum. Auk uppskriftanna, sem eru hver annarri girnilegri, er að finna í bókinni ýmsan skemmtilegan fróðleik um kleinur. Bókin verður prentuð í Héraðsprenti á Egilsstöðum. Kleinur úr eldhúsi mömmu og ömmu gleymast seint Ingunn segir að kleinan lifi góðu lífi í íslensku samfélagi og í flestum matvöruverslunum sé hægt að næla sér í poka af fjöldaframleiddum kleinum, auk þess sem bakarar um land allt bjóði upp á ágætiskleinur. „Þrátt fyrir að framboðið sé ágætt þá gleymast seint kleinurnar sem urðu til í eldhúsinu hjá mömmu og ömmu,“ segir Ingunn. „Það eru til alls konar uppskriftir og sérviskur ef þannig má komast að orði. Þannig að ég ákvað að auglýsa eftir uppskriftum og það stóð ekki á svörum, fólk um land allt deildi með mér uppskriftum, sögum, bröndurum, samfélagsmiðlaskilaboðum og myndum. Það var algjörlega yndis leg upplifun að sjá áhugann og ástríðuna,“ segir hún og bætir við að hver og ein uppskrift hafi að sjálfsögðu verið talin besta uppskrift að kleinum sem til er. Uppáhaldið með Royal karamellubúðingi Í bókinni má einnig finna ýmislegt um sögu kleinunnar, aðferð og áhöld. „Eftir að vinnuferli bókarinnar hófst tók ég mig til við að prófa að steikja kleinur en hef reyndar ekki enn prófað allar uppskriftir sem finna má í bókinni, en uppáhaldsuppskriftin er líklega þessi með Royal karamellubúðingnum,“ segir Ingunn. Hún segir kleinubakstur ofur einfaldan og skemmtilegan, „ég tala nú ekki um þegar börnin á heimilinu taka þátt, spennan við að smakka nýsteiktar kleinur er alltaf jafnmikil og eins gott að hafa ískalt mjólkurglasið klárt á kantinum.“ /MÞÞ „Ég hef lengi átt mér þann draum að skrifa bók og nú hefur sá draumur ræst,“ segir Hrund Hlöðversdóttir, starfandi skólastjóri Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit, en hún hefur sent frá sér spennu- og ævintýrabókina ÓGN, ráðgátan um Dísar-Svan. Hrund er frá Akureyri en hefur búið hin síðari ári í Hrafnagilshverfi í Eyjafjarðarsveit með fjölskyldu sinni. Hún á tvö börn, 17 og 23 ára. Tómstundir sínar notar hún til að skrifa, syngja í kór, spila á harm- oniku og nýtir umhverfið í sveitinni til að stunda útivist, hlaupa, fara í sund og ganga á fjöll. Hún segist hafa setið við skrifin með hléum síðastliðin tvö ár, tekið bókina upp margoft og endurskrifað, lagfært og endurbætt eftir ábendingum sem hún fékk frá „fólki sem var svo elskulegt að lesa bókina og gefa mér góð ráð,“ segir hún. „Ég er afskaplega þakklát fyrir það og svo er ég ótrúlega spennt að þetta ævintýri mitt sé nú að verða að veruleika. Bókin mín fær að öðlast eigið líf meðal lesenda.“ Heill ævintýraheimur við Hraunsvatn Hrund segir að töluvert sé um liðið frá því hugmyndin kviknaði, eða sjö ár. „Ég gekk þá ásamt nemendum og starfsfólki Hrafnagilsskóla upp að Hraunsvatni í Öxnadal. Við vatnið er heill ævintýraheimur og mikil náttúrufegurð þar sem Hraundrangar tróna yfir manni, tignarlegir og ægifagrir,“ segir hún. „Ég var upp- numin af staðnum, en á þessum tíma hafði ég verið að kynna mér þjóð- sögur og lesið um álfa, huldufólk, skrímsli og aðrar kynjaverur.“ Eftir ferðina að Hraunsvatni fékk Hrund þá hugmynd að skrifa ung- mennabók sem gerist í þessu ævin- týralega umhverfi. Hún vildi nýta þjóðsagnaarfinn, ævintýraheiminn sem gengið hefur mann fram af manni og tengja hann við nútímann. Tengir saman raun- og hulduheima Bókin fjallar um Svandísi, fjórtán ára stelpu sem flytur úr borginni norður í land. Þar eignast hún vinina Brján og Sylvíu en saknar vinkonu sinnar, Láru, og getur ekki beðið eftir að hún komi í heimsókn í jólafríinu. Margt er einkennilegt á kreiki í kringum Svandísi. Köttur með rauð augu, dularfullir hestar og fólk sem ef til vill er annað en það sýnist vera. Svandís flækist inn í baráttu góðs og ills, kynnist ástinni og þarf ásamt vinum sínum að glíma við ógurlegar kynjaskepnur. Hrund segir söguna byggða á þjóðsagnaarfi Íslendinga og tengja saman tvo heima, raun- heima sem við þekkjum öll og hulduheima sem færri þekkja. Hrund segist hafa fengið gott fólk í lið með sér við útgáfuna, Guðjón Inga Eiríksson, útgefenda í bókaútgáfunni Hólum og hans fólk. Íris Auður Jónsdóttir listamaður málaði mynd á bókakápu og hún ásamt börnum sínum, Emil Loga og Agnesi Lóu Heimisbörnum, teiknuðu myndir í bókina. /MÞÞ Hrund Hlöðversdóttir, starfandi skólastjóri Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit, en hún hefur sent frá sér spennu- og ævintýrabókina ÓGN, ráðgátan um Dísar- Svan. Hún fékk hugmyndina að sögunni eftir gönguferð upp að Hraunsvatni í Öxnadal með nemendum og starfsfólki í Hrafnagilsskóla fyrir nokkrum árum. Spennu- og ævintýrabók fyrir ungmenni: Gaman að sjá ævintýrið sitt verða að veruleika BÆKUR& MENNING Bókin Bestu kleinur í heimi komin út: Kleinan lifir góðu lífi í íslensku samfélagi Fátt jafnast á við nýsteiktar kleinur og ískalt mjólkurglas. Ingunn Þráinsdóttir, myndlistarkona og grafískur hönnuður á Egils- stöðum, er höfundur bókarinnar um bestu kleinur í heimi. Kleinubakstur er ofur einfaldur og skemmtilegur að mati höfundar bókarinnar. Nú er nóg komið! er spreng- hlægileg og spennandi bók eftir þær Hildi Knútsdóttur og Þórdísi Gísladóttur, en bókin er sjálfstætt framhald bókarinnar Hingað og ekki lengra! sem gefin var út árið 2020 og hlaut afar góðar viðtökur. Nú er nóg komið! fjallar um vinkonurnar Vigdísi Fríði, Geirlaugu og Rebekku sem allar eru í áttunda bekk en neyðast til að halda sig heima við vegna Covid- 19 veirunnar. Þær láta sér þó ekki leiðast og deyja ekki ráðalausar þótt þessi nýi raunveruleiki sé ekki efstur á óskalistanum – því ýmislegt er jú hægt að bralla heima við. Dularfullir nágrannar, sjoppurekstur og annað er meðal þess sem þær taka sér fyrir hendur enda með eindæmum vel vakandi stúlkur. Og stundum þurfa stelpur einfaldlega sjálfar að ganga í málin. Hildur Knútsdóttir og Þórdís Gísladóttir, sem auk Hingað og ekki lengra! hafa áður skrifað saman bækurnar um Dodda. Sú fyrri, Doddi – Bók sannleikans!, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, Fjöruverðlaunanna og Barna- bókaverðlauna Reykjavíkur. /SP Sprenghlægileg og spennandi: Nú er nóg komið! Helga Valdís Árnadóttir sá um myndskreytingu bókarinnar.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.