Bændablaðið - 02.12.2021, Síða 57
57Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021
ekki alveg hvað ég ætlaði að gera. Ég
er með Bsc í sálfræði frá HÍ og var
jafnvel að spá í meistaranám, og rakst
svo á auglýsingu frá Nordisk heste-
og hundeterapiskolen og áður en ég
vissi var ég búin að skrá mig í þriggja
ára nám í hestanuddi og sjúkraþjálf-
un. Það var skemmtilegasta nám sem
ég hef farið í, engin spurning,“ segir
Auður og heldur áfram:
„Þar meðhöndlaði ég alla
mögulegar tegundir af hestum, og
við Íslendingar erum afar stolt af
íslenska hestinum okkar og það er
mjög skiljanlegt, hann er svo samof-
in menningu okkar og uppruna. Það
lærði ég fljótt þegar ég fór að með-
höndla aðrar tegundir hesta og ræða
við hestaeigendur sem rækta, þjálfa
og ríða út á öðrum hestategundum.
Það skilja ekki allir þessa sérstöku
tengingu sem við Íslendingar eigum
við hestinn okkar. Það hjálpar líka
að íslenski hesturinn er mjög með-
færilegur í umgengni sem hjálpar
alltaf þegar maður þarf að meðhöndla
hesta á þennan hátt. Enda þekktur
fyrir einstaklega gott geðslag og
yfirvegun.“
Hestanuddari, ekki dýralæknir
– Hestanuddari, hvað gerir hann og
hvernig gengur hjá þér að vinna við
það og hvað ertu aðallega að gera í
því sambandi?
„Hestanuddari byrjar á því að
greina, skoða og veita svo með-
höndlun eftir þörfum. Fyrsti tíminn
fer yfirleitt í það að ég byrja á því að
fara með eiganda/þjálfara yfir heilsu-
sögu hestsins. Einnig er farið yfir
hvert vandamálið eða vandamálin
eru en stundum vill eigandinn bara fá
ástandsskoðun á hestinn. Líkamleg
skoðun fylgir yfirleitt þar á eftir sem
og stundum hreyfigreining. Stundum
tel ég þörf á að fara yfir reiðtygi,
járningar, tannheilsu, knapann sjálf-
an eða annað sem getur haft áhrif.
Meðferðina svo framkvæmi ég eftir
því hvað kemur úr greiningu og
skoðun.
Meðferðin sjálf tekur yfirleitt um
45-60 mínútur. Stundum getur eitt
skipti gert mikið en stundum þarf
fleiri skipti og/eða reglulegir tímar
eins og bara hjá okkur þegar við
förum til sjúkraþjálfara. Þetta fer
alveg eftir því hvað við erum að eiga
við hverju sinni. Stundum vísa ég
líka beint á dýralækni ef mig grunar
að eitthvað sé í gangi sem ég ræð
ekki við eða það er einhver óvissa
með heilsu hestsins. Sem nuddari má
ég aldrei sjúkdómsgreina, ég er ekki
dýralæknir, en ég vísa á dýralækni ef
mér finnst ástæða til. Í lokin útbý ég
nákvæma skýrslu yfir hvað var farið
yfir og ráðlegg eiganda t.d. æfingar
sem hann getur gert til að hjálpa ferl-
inu, oftar en ekki er það sú vinna sem
skilar mestu.“
Frábær viðbrögð
– Hvernig hefur þér verið tekið sem
hestanuddari og hvernig gengur
starfið?
„Við hjónin fluttum aftur heim
2019 og fann ég mér þá vinnu. Ég
var með stóra drauma um að geta
kannski unnið sem hestanuddari í
fullu starfi, en gallinn er sá að það
krefst mikillar líkamlegrar vinnu
og markaðurinn ekki nógu stór til
að vera með tekjur allt árið af því.
Þannig að ég ákvað að reyna að hafa
þetta sem aukavinnu með annarri
vinnu, helgar og í fríum.
Viðbrögðin hér heima hafa verið
frábær. Og ég er búin að vera svo
lánsöm að geta ferðast um landið,
fengið að meðhöndla hesta á öllum
aldri, á öllum stigum þjálfunar og hitt
yndislega hestaeigendur unga sem
aldna. En svo veiktist ég og síðan
hefur það verið erfitt fyrir mig lík-
amlega að sinna þessu eins og ég
hefði viljað, en ég reyni að fara t.d. á
höfuðborgarsvæðið eða Suðurlandið
reglulega og sinna fastakúnnum og
þeim sem ég kemst yfir.
Ég hef líka lagt áherslu á að fólk
getur bókað mig til að halda stutt
nuddnámskeið sem eru hönnuð
fyrir alla sem hafa áhuga á að sinna
hestinum sínum á þennan hátt og þau
hafa fengið afar góðar undirtektir.
Bæði hestamannafélögin hafa sýnt
því mikinn áhuga sem og hópar sem
hafa tekið sig saman og fengið mig
til sín,“ segir Auður.
Mjög ánægð með hestaeigendur
- Er eitthvað að lokum sem þú vilt
koma á framfæri?
„Já, ég er afar ánægð að upplifa
það að hestaeigendur hér á landi, og
þá sérstaklega unga fólkið okkar, er
mjög duglegt að huga að öllum þátt-
um sem koma að velferð hestanna
okkar. Viljinn til að læra meira um
líkama hestsins og t.d. skilja hvernig
hann hreyfir sig getur ekki annað
en skilað sér í enn betri skilning á
hvernig við getum búið þannig um
hnútana að við getum haft gaman
saman, og er það ekki akkúrat það
sem hestamennskan snýst um?
Hesturinn er að mínu mati hinn
fullkomni íþróttamaður, líkami hests-
ins er magnaður, ekki bara krafturinn
heldur einnig geta hestsins til að bera
knapa og um leið hafa getu til að
sýna ótrúlega fimi og styrk,“ segir
Auður um leið og hún gerir sig klára
í að fara að nudda næsta hest og ljúka
við bókina sína.
/MHH
Æðardúnn
Það hefur verið mjög góð sala á æðardún í haust.
Óska ég því enn eftir æðardúni til útflutnings.
Hátt nettóverð.
Hafið samband í síma: 8938554
Tölvupóstur: leifm@simnet.is
Leifs Æðardúnn
Útflutningur síðan 2001
Nýja bókin verður lita- og verkefnabók.
Höfuðhlutverk vöðvanna, úr nýju bókinni.
á bbl.is og líka á Facebook
Hamrahlíð 17
Hús Blindrafélagsins
Sími • 552-2002
ÓDÝR
Margskipt gleraugu
Verð 39.900 kr
Margskipt gler frá Essilor (afgreiðslutími +/- tvær vikur)
Gleraugu með glampa og rispuvörn
Sérsmíðum samdægurs í
styrk +/- 6,0 með cyl. til 2,0
19.900 kr.
Margskipt gleraugu
Margskipt gler frá Essilor
(afgreiðslutími +/- tv r vikur)
39.900 kr.
gleraugu
umgjörð og gler