Bændablaðið - 02.12.2021, Síða 60
60 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021
LÍF&STARF
Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði á Keldum
Útrýmum vöðvasullsbandorminum á Íslandi!
Árið 2017 birtist grein í Náttúru
fræðingnum þar sem farið er yfir
árangursríka útrýmingarsögu
fjögurra bandormstegunda
hér á landi, bandorma sem
lifðu allir á fullorðinsstigi
í hundum. Þrjár þessara
tegunda eru ígulbandormurinn,
netjusullsbandormurinn og
höfuðsóttarbandormurinn.
Lirfustig þeirra, svonefndir
sullir, lifðu aðallega í sauðfé en
sumir líka í geitum, nautgripum
og svínum en aldrei í hrossum.
Sullstig ígulbandormsins gat auk
þess lifað í fólki sem orsakaði hina
illræmdu sullaveiki sem um fimmti
hver landsmaður var smitaður af
fyrir hálfri annarri öld. Sullaveiki
var hræðilegur sjúkdómur sem dró
fólk iðulega til dauða á kvalafullan
hátt. Mannafló hýsti lirfustig fjórðu
tegundarinnar, flóarbandormsins
svonefnda, en sá hvarf þegar flónni
var útrýmt í híbýlum fólks um miðja
síðustu öld. Þeim sem vilja fræðast
nánar um þessa bandorma er bent á
að áðurnefnd grein (Bandormafána
landspendýra á Íslandi að fornu og
nýju) er aðgengileg í opnum aðgangi
á netinu og er hún auðfundin með því
að gúggla greinarheitið.
Fimmta tegundin sem fundist
hefur í hundum hér á landi –
vöðvasullsbandormurinn Taenia
ovis – er umfjöllunarefni þessarar
samantektar. Hann lifir nefnilega
enn í landinu og honum verður ekki
útrýmt á Íslandi nema með samstilltu
átaki þar sem þekking, vilji og virk
bandormalyf þurfa að vinna saman.
Greininni er ætlað að stuðla að því að
vöðvasullsbandorminum verði útrýmt
hér sem allra fyrst og árangursríkast
er talið að gera það með staðgóða
þekkingu í vopnabúrinu:
Um vöðvasullsbandorminn
Lífsferill vöðvasullsbandormsins er
sýndur á mynd 1. Lirfustigið, litlar
blöðrur í vefjum sauðfjár, var fyrst
greint hér á landi við kjötskoðun
í sláturhúsi haustið 1983. Í fram-
haldinu fóru dýralæknar að leita
skipulega að vöðvasullum í kjöti og
ákveðnum líffærum (einkum hjarta
og þind). Árangurinn lét ekki á sér
standa því eftir haustslátrun 1985,
tveimur árum síðar, hafði vöðva-
sullur fundist í sláturfé frá 40 sauð-
fjárbýlum í átta varnarhólfum um
vestan- og norðavert landið.
Þessi víðtæka dreifing hefur
vakið sérstaka athygli. Það að ná
svo víðfeðmri útbreiðslu hlýtur að
hafa tekið sníkjudýrið marga áratugi.
Á yfirlitskortinu sem hér er birt (2.
mynd) er útbreiðslusvæðið árið 1985
skyggt með fölgulum lit. Öllum sem
þekkja hömlurnar sem voru á fjár-
flutningum milli sauðfjárveikivarn-
arhólfa innanlands áratugina þar á
undan má vera ljóst að vöðvasullur
hafði árið 1985 dulist mönnum á
þessu svæði áratugum saman. Þar
að baki liggja sjálfsagt ýmsar ástæð-
ur, ekki hvað síst sú staðreynd að
sullblöðrurnar eru oft lítt áberandi
(þunnveggja litlar, vökvafylltar
blöðrur, um 5 mm í þvermál, sjá 1.
mynd), ekki hvað síst þegar sull-
blöðrurnar eru fáar.
Um lífsferilinn
Hér skal áréttað að bandormurinn
lifir ekki í mönnum. Skoðum sull-
stigið aðeins betur. Sullirnir geta
sest víða að í líkama sauðfjárins,
oft eru blöðrurnar mest áberandi í
blóðþurftarmiklum líffærum eins
og hjarta og þind. Og lirfan, ein í
hverri blöðru, nær fullum þroska á
6-8 vikum berist hún niður í hund
og í honum getur fullorðni band-
ormurinn lifað árum saman. Frysting
á kjöti við mínus 10 gráður í viku
tíma drepur vöðvasulli sem kunna að
leynast í sauðfjárafurðum. Kalk sest
fljótlega í sullveggina. Þá hverfur
blaðran og verður að lítilli, harðri
örðu í kjötinu. Líklegt er að ýmsir
hafi orðið varir við þessa litlu hnúta
án þess að gera mikið veður út af
þeim, sérstaklega þó meðan ekki var
vitað að þarna gátu verið kalkaðir
vöðvasullir á ferðinni.
Hvenær barst
vöðvasullsbandormurinn
til Íslands?
Eftir á að hyggja er helst talið að
bandormurinn hafi borist hingað
til lands með platínurefum frá
Bandaríkjunum í byrjun seinni
heimtyrjaldarinnar, fyrst 1939.
Þessir alirefir (stökkbreytt afbrigði af
rauðref sem eru vel þekktir lokahýslar
tegundarinnar) voru í framhaldinu
fluttir yfir á loðdýrabú víðs vegar um
landið (3. mynd). Þegar loðdýrabúin
voru hreinsuð var refaskítur og annar
úrgangur, sem þar hafði safnast upp,
gjarnan borinn á völl eins og hver
annar áburður þannig að væru egg
vöðvasullsbandormsins í skítnum
gátu þau borist yfir á gróður sem
sauðfé náði síðan að bíta í námunda
við loðdýrabúin. Þannig gat smitið
fljótlega hafa borist í sauðfé og
svo áfram frá smituðu fé yfir í
heimilishunda. Og þar sem engin
höft hafa í gegnum tíðina verið á
flutningi hunda milli landshluta
gat vöðvasullsbandormurinn borist
hratt og örugglega með hundum um
langa vegu innanlands, þar með yfir
sauðfjárveikivarnarlínur.
Gífurlegt smitmagn
Hver bandormur framleiðir gjarnan
um 250.000 egg á degi hverjum og
dreifast eggin næstu vikur og mánuði
yfir á beitarlandið í námunda við skít-
inn, jafnvel tugi metra frá skítnum.
Við hagstæðustu skilyrði, raka og lágt
hitastig, geta eggin lifað þar í allt að
10 mánuði. Og þar sem bandormur-
inn er langlífur í görn smitaðra hunda
og hundurinn fær um að skíta víða á
langri ævi, getur gífurlegt eggjasmit
magnast upp þar sem smitaðir hundar
halda sig.
Þáttur villta refsins enginn?
Á 9. áratug síðustu aldar, fljótlega
eftir að vöðvasullurinn greindist
hér fyrst í sauðfé, skoðuðu Karl
Skírnisson og Matthías Eydal á
Keldum 50 villta refi (melrakka) sem
felldir höfðu verið á útbreiðslusvæði
bandormsins frá Hvalfirði norður á
Svalbarðsströnd með það í huga að
leita sérstaklega að þessum bandormi.
Enginn þessara refa reyndist vera með
vöðvasullsbandorm. Áframhaldandi
rannsóknir Matthíasar á tugum refa til
viðbótar nú síðasta áratuginn sýndu
sömu niðurstöðu, íslenski melrakkinn
hefur sem sagt aldrei fundist smitaður
af vöðvasullsbandormi. Hundar eru
því greinilega mikilvirkastir í því
að dreifa eggjum bandormsins hér
á landi og dreifingin verður fyrst og
fremst í námunda við sauðfjárbýlin
þar sem hundarnir halda sig mest.
Áskorun um aukið eftirlit
og forvarnir
Í mars 2019 sendi Félag Sauðfjár-
bænda í Skagafirði Landsambandi
Sauðfjárbænda og Matvælastofnun
áskorun þess efnis að beita sér fyrir
auknu eftirliti og forvörnum vegna
vöðvasulls í sauðfé. Í greinargerð
með áskoruninni kom fram að
vöðvasullir fundust ekki í sauðfé á
árabilinu frá 2001 fram til 2013 en
árið 2014 og næstu ár þar á eftir hafi
vöðvasullur fundist á fjölda býla, 6
býlum árið 2016, fjórum 2017 og
hvorki meira né minna en á 16 búum
árið 2018 (2. mynd).
Vöðvasullsbandormurinn 2021
Staðsetning sauðfjárbýla þar sem
smit hefur verið staðfest undan-
gengin 7 ár er sýnd á 2. mynd.
Þar vekur sérstaka athygli að smit
hefur verið að greinast á nýjum
slóðum, á þremur sauðfjárbýlum
á Vestfjörðum, þremur býlum
á Norðausturlandi og tveimur á
Austurlandi. Eðlilega spyrja menn
sig hvað þarna hafi verið að gerast.
Svarið er augljóst, þarna hafa hundar
smitaðir af vöðvasullsbandormi
verið að dreifa eggjum yfir bithaga
sauðfjárins sem vöðvasullir fundust
síðan í við kjötskoðun í sláturhúsi.
Hundarnir hafa greinilega ekki verið
meðhöndlaðir með lyfi sem drepur í
þeim bandorma. Þetta eru ótrúlega
margir bæir.
Þótt engin vöðvasullssýni hafi
verið send að Keldum þetta haustið
(2021), né heldur tvö undangengin
haust, þá er ekki þar með sagt að
bandormurinn sé ekki um þess-
ar mundir einhvers staðar enn til
staðar í hundum þannig að sauðfé
sé enn að smitast. Mestar líkur eru
á því að þetta geti gerst á bæjum
þar sem trassað hefur verið að gefa
bandormalyf sem sannarlega drepur
Taenia bandorma, á bæjum þar sem
hundar hafa komist í hráar sauðfjár-
afurðir eða jafnvel verið fóðraðir á
ófrosnu kjöti.
Um lögbundna
bandormahreinsun á hundum
Í grein 57 í reglugerð nr. 941/2002
um hollustuhætti er kveðið á um
að fyrirbyggja skuli sýkingar af
völdum bandorma og spóluorma í
hundum með því að gefa hundum
sem náð hafa fjögurra mánaða
aldri árlega inn ormalyf, lyf sem
Lyfjastofnun hefur viðurkennt til
þeirra nota.
Sérstakur kafli er um hunda þar
sem búrekstur er stundaður. Þar
skulu hundar ormahreinsaðir að
liðinni aðalsláturtíð eða í síðasta
lagi í desember ár hvert, nema að
annað komi fram í samþykkt hlut-
aðeigandi sveitarfélags. Enn fremur,
setji sveitarfélag sér samþykkt um
hundahald, skal í henni kveða á um
hreinsun hunda.
Lyf til að útrýma þráðormum
drepa ekki endilega bandorma
Hundaeigendur og dýralæknar sem
gefa hundum ormalyf þurfa að hafa
það í huga að nota þarf lyf með
virkni gegn bandormum svo sem
praziquantel. Á lista Lyfjastofnunar
eru nokkur lyf sem ætluð eru til
ormahreinsunar í hundum, lyf sem
innihalda paraziquantel en einnig
annars konar lyf sem drepa þráð-
orma. Bandormalyf eru til að mynda
„Prazitel Plus“, „Drontaste í hunda“
og „Zantel“ og öll fást þessi lyf á
töfluformi hjá dýralæknum.
Til eru svokallaðar blettunar-
lausnir (spot on lyf). Um er að ræða
lyf á vökvaformi sem ætluð eru til
útvortis notkunar gegn þráðormum
eins og spóluormum sem og ytri
sníkjudýrum (mítlum, lúsum og
flóm). Lyfinu er dreypt á húðina.
Þær blettunarlausnir sem fáanlegar
eru hér á landi til notkunar á hunda
drepa ekki bandorma! Mikilvægt er
að átta sig á því þegar ætlunin er að
meðhöndla hunda gegn bandormum
í lögbundinni árlegri ormahreinsun
allra hunda hér á landi.
Vöðvasullur í
nágrannalöndunum
– markaðsvara
Vöðvasullur er viðvarandi vanda-
mál í flestum stærri sauðfjárrækt-
arlöndum heims, svo sem í Ástralíu,
á Nýja-Sjálandi, Kanada, Norður-
Evrópu og í Wales. Auk fjárhunda
geta til dæmis rauðrefir og úlfar hýst
bandorminn og dreift eggjum yfir
beitarlönd sauðfjár og geita. Þar er
sums staðar mælt með því að varð-
hundar hjarðanna séu meðhöndlaðir
með bandormalyfi á fjögurra til sex
vikna fresti. Erlendis er vöðvasull-
ssmitað kjöt ekki markaðsvara fyrir
fólk, sama er upp á teningnum hér
á landi þannig að það að vera með
smitaða hjörð hefur vissulega nei-
kvæð áhrif á afkomu.
Lokaorð
Við hvetjum hunda- og sauðfjár-
eigendur sem og dýralækna til þess
að taka höndum saman og freista þess
að útrýma vöðvasullsbandorminum
hér á landi sem allra fyrst. Regluleg
ormahreinsun sem beinist að því að
drepa bandorma (lyf sem innihalda
praziquantel) er lykilatriði. Rétt er
þó að undirstrika að engar blettun-
arlausnir (lyf gefin í dropaformi á
húð) virka enn sem komið er til að
drepa bandorma í hundum. Til að
ná árangri þarf algjörlega að koma í
veg fyrir að hundar á sauðfjárbýlum
séu fóðraðir á hrámeti. Sé ætlunin
að nota hráar sauðfjárafurðir til fóð-
urs þurfa þær að hafa verið frystar
það lengi (í amk. tíu stiga frosti í
viku) að vöðvasullir í fóðrinu (þeir
geta verið í öllum vefjum í líkama
sauðfjárins) séu ekki enn lifandi og
þar með smithæfir fyrir hundana. Til
sveita er ráðlegt að bandormahreinsa
alla hunda áður en þeir eru fluttir
milli bæja eða svæða. Þá eru selj-
endur hunda, ungra sem gamalla,
ekki hvað síst fjárhunda, hvattir til
að gefa ormalyf áður en hundarnir
eru afhentir nýjum eigendum. Rétt er
að gefa ormalyf oftar á svæðum þar
sem vöðvasullssmits hefur orðið vart
á undanförnum árum og brýnt er að
engir hundar sleppi við meðhöndlun.
Höfundar þakka Hákoni
Hanssyni, dýralækni á Breiðdalsvík,
fyrir gagnlegar ábendingar í tengsl-
um við ritun greinarinnar.
Karl Skírnisson og
Kristbjörg Sara Thorarensen,
sníkjudýradeild,
Tilraunastöðinni
á Keldum.
Mynd 1. Lífsferill vöðvasullsbandormsins Taenia ovis. Bandormurinn getur orðið hálfs annars metra langur í iðrum
hundsins, eggin dreifast út frá hundaskít yfir á beitarlandið og berast með gróðrinum niður í sauðféð. Bandormurinn
getur lifað árum saman í hundinum, egg hans lifa mánuðum saman, stundum í allt að ár, á beitarlandinu.
Mynd 2. Staðsetning sauðfjárbýla þar sem vöðvasullur hefur verið staðfestur
á Íslandi frá árinu 2014 en þá jókst útbreiðslan allt í einu eftir áralangt hlé.
Hvert býli er stjörnumerkt. Útbreiðslusvæði vöðvasulls á 9. áratug 20. aldar
er gullitað en þá fannst vöðvasullur á 40 sauðfjárbýlum í átta aðskildum
sauðfjárveikivarnarhólfum.
Mynd 2. Staðsetning sauðfjárbýla
þar sem vöðvasullur hefur verið
staðfestur á Íslandi frá árinu 2014
en þá jókst útbreiðslan allt í einu eftir
áralangt hlé. Hvert býli er stjörnu-
merkt. Útbreiðslusvæði vöðvasulls
á 9. áratug 20. aldar er gullitað en þá
fannst vöðvasullur á 40 sauðfjárbýl-
um í átta aðskildum sauðfjárveiki-
varnarhólfum.