Bændablaðið - 02.12.2021, Síða 62
62 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021
Í gegnum árin hafa margir
Íslendingar verið hrifnir af
Mercedes-Benz Sprinter sem
sendibílum, pallbílum og húsbílum.
Sjálfur á ég einn slíkan, 18 ára öðling
sem ég nota nánast daglega sem
sendibíl, farartæki sem kemur mér
í og úr vinnu og húsbíl.
Alltaf hefur mér líkað vel við
Sprinter að flestu leyti fyrir utan að
aldrei hef ég verið að fullu sáttur við
ökumannssætið fyrr en mér bauðst að
prófa nýjasta útspil Benz af Sprinter
sem er 100% rafdrifinn sendibíll.
Framhjóladrifinn með
47 kWh rafhlöðu
Þegar ég fékk bílinn var aðeins búið
að keyra hann 25 km og daginn áður
hafði hann verið settur á ónegld
vetrardekk þannig að ég taldi mig
vera í nokkuð góðum málum.
Bíllinn fullhlaðinn, þegar ég kveikti
á honum sagði mælaborðið mér að
drægnin væri 98 km. Mér fannst í
fyrstu þetta vera fulllítil drægni, en
í mjög mörgum tilfellum ætti þessi
drægni að duga fyrir daglega notkun
og sérstaklega fyrir sendibílaakstur
með léttar vörur á milli staða hjá
mörgum fyrirtækjum sem eru mest
í borgarakstri einum.
Eins og flestir aðrir rafmagnsbílar
má sjá í mælaborðinu við alla
rafmagnsnotkun hvað drægnin
styttist við aðra notkun á rafmagni
en drifmótor. Það rafmagn sem
„stelur“ mest af drægninni er nánast
undantekningarlaust miðstöðin í
bílnum, en bara við það að stilla
miðstöðina á 22 gráðu innihita og
blásturinn á 3 af 7 sýndi mælaborðið
að þetta mundi minnka drægnina úr
98 km í 86 km, en þar sem ég var
ágætlega klæddur ákvað ég að spara
rafmagnið og drap á miðstöðinni í
byrjun og prófaði bílinn á möl, í hálku
og hávaðamældi bílinn á 90.
Hávaðamælingin kom vel út, en
rak mig á hættu í mikilli hálku
Hávaðamælingin var alveg ásættan-
leg, 71,2 db., en til samanburðar þá
mældist Maxus sendibíllinn 74,1db.,
en hann er eini samanburðurinn sem
ég hef í rafmagnssendibíl. Á malar-
vegi var fjöðrunin alveg í lagi, fram-
hjóladrifið er jafnvel aðeins betra á
þessum í samanburði við hefðbundnu
afturhjóladrifnu Sprinter-dísilbílana
gömlu.
ABS bremsukerfið var að virka
fínt á möl og í hálku, en á flughálum
kafla varð ég var við hættu sem eflaust
innflytjandinn og framleiðandinn hafa
sennilega ekki áttað sig á.
Flestir rafmagnsbílar eru þannig að
þegar slegið er af þá hleður bíllinn inn
á rafhlöðuna, en það er mismikið hvað
þessi hleðsla bremsar bíla mikið við
að slá af. Þegar ég sló af á flughálum
vegi á ónegldum dekkjunum læstust
framhjólin og bíllinn byrjaði að leita
út í kant. Ég náði því ekki fullri stjórn
á bílnum fyrr en ég hafði sett hægri
fótinn aðeins á gjöfina, en þá hætti
bremsunin og ég náði að stýra bílnum
eðlilega. Þarna hefði sennilega verið
betra að hafa nagladekk til að gefa
betra grip.
Frekar þungur bíll sem
minnkar hleðslugetuna
Bíllinn er frekar þungur og 116
hestafla vélin frekar „letileg“ að koma
bílnum áfram, aksturskerfin eru þrjú,
E, E+ og C, en mér fannst bíllinn
snarpastur í C stillingunni, en þá eyðir
hann meira rafmagni (minnst virtist
mér hann vera að eyða, eða telja niður
kílómetra í mælaborðinu með stillt á
E+ stillinguna á). Flestir Sprinter bílar
eru með hleðslu og burðargetu upp á
1.000 til 1.300 kg, en þar sem rafhlaðan
er þung undir endilöngum bílnum og í
ofanálag búið að setja vörulyftu aftan á
bílinn sem var prófaður er burðargetan
á „rafmagns-Sprinternum“ ekki nema
á bilinu 600-700 kg. Vörulyftan aftan
á bílnum stelur smá þyngd til að hlaða
bílinn, en er auðbeld í notkun og léttir
eflaust mörg handtökin og burðinn
(kostar nálægt 1.000.000 aukalega
ofan á innkaupsverð bílsins).
Í lokin var ég sáttur við bílinn fyrir
utan að drægnin mætti vera meiri.
Bíllinn heitir Benz Sprinter 312, með
47kWh rafhlöðu, kostar frá 9.290.000
og er uppgefinn með drægni upp á 155
km við bestu aðstæður. Ég var alsæll
með bílstjórasætið, rafmagnsmiðstöð-
in fljót að hita bílinn upp að innan.
Þægilegt að keyra bílinn.
Það sem ég get sett út á er að það
vantar varadekk, lítil hleðslugeta og
drægnin hjá mér í kuldanum entist
ekki vel. Ég keyrði bílinn alls 71,2
km og samkvæmt mælaborði átti
ég eftir 13 km, en í byrjun sýndi
mælaborðið að í boði væru 98 km
þannig að miðað við það, þá telur
mælaborðið tiltölulega rétt niður, en
mesta aukaeyðslan var miðstöðin
og sætishitarinn sem „stálu“ af mér
nálægt 10-15 km.
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Hæð 2.610 mm
Breidd 2.345 mm
Lengd 4.325mm
Helstu mál og upplýsingar
Fín hljóðmæling miðað við sendibíl.
Vörulyftan fór létt með mann og hjól sem er um 350 kg.
Benz Sprinter 312 rafmagnsbíll. Myndir / HLJ.
Vörulyftan snyrtilega sett á bílinn.
Rafhlaðan er undir bílnum endilöngum og því þyngdarpunktur neðarlega.
Pínulítil bakkmyndavél er í baksýn-
isspeglinum.
Hálkustundin óþægilega þegar
hleðslubremsurnar læstu fram-
hjólunum.