Bjarmi - 01.12.2010, Page 2
Jólin nálgast og Bjarmi ber þess ein-
hver merki þó svo ekki sé um að ræða
það sem kalla megi jólablað. Samfé-
lagið allt er að vissu marki undirlagt
þó svo víða sé spilað á neysluhyggju
og kaupæði. Margvísleg menningar-
dagskrá er einnig í boði, ekki síst fjöldi
tónleika á aðventunni. Mestu skiptir
þó að aðventa og jól eigi sér sitt eig-
inlega innihald og að við eigum sam-
fund með Jesú á jólum.
Aðventan er tími biðar, þar sem við
fáum að bíða jólanna í eftirvæntingu.
Vonandi fáum við, eða réttara sagt,
gefum við okkur tima til að staldra
við og skoða eigin hug og hjarta. Sú
var tíðin að lögð var áhersla á föstu á
aðventu og fjólublái liturinn á enn að
minna okkur á iðrun hjartans. Þar sem
sjálfsskoðun og iðrun ríkja verður jólin
mikil gleðihátíð yfir að eiga frelsara
sem fæddur er og er fús að fyrirgefa
sérhverja synd.
Frelsun, fyrirgefning og friður fara
saman í boðaskap jólanna. Vonandi
nær sá boðskapur eyrum íslensku
þjóðarinnar í ríkari mæli um þessi jól
en verið hefur. Skellurinn sem íslenskt
samfélag fékk á sig fyrir rúmum
tveimur árum og sem þjóðin glímir
við enn í dag og áfram um einhver ár
er sorgleg staðreynd. Enn sorglegra
verður það ef við sem þjóð lærum lítið
af þessari reynslu. Framtíðin ein mun
sýna í hvaða mæli það verður.
Meðal þess sem við, sem störfum
fyrir kirkjur og kristileg samtök, von-
umst til að sjá í framtíðinni er aukinn
áhugi fólks á að kynna sér innihald
kristinnar trúar. Það er von okkar að
það gerist nú um þessi jól 13 að fólk
skoði í alvöru hvers vegna við höfum
haldið þessa hátíð hér á landi öldum
saman. Það er ekki til að tryggja versl-
unarrekstur á íslandi eða að fá tæki-
færi til að hitta ættingja og vini og gera
vel við okkur í mat og drykk þó svo það
séu vissulega mikilvægir þættir. Jólin
snúast um Jesú og sönn jólahátíð felur
í sér að við eigum fund með honum.
Saga jólanna gefur okkur tækifæri
til stíga inn í hana, slást í för með fjár-
hirðunum og vitringunum og veita
Jesú lotningu okkar. Við beygjum huga
okkar og hjarta fyrir konungi kon-
unganna. Á jólum syngjum við fjölda
jólasálma sem fela í sér lofgjörð og
tilbeiðslu til frelsarans. Við megum
fagna og gleðjast sem börn. 13í Betle-
hem er barn oss fætt, því fagni gjörvöll
Adams ætt.E
Þetta tölublað Bjarma geymir
margvíslegt efni, þar á meðal efni
sem tengist jólunum. Jafnframt er
litið í ýmsar áttir og brugðist við ýmsu
sem gerst hefur hér á landi og annars
staðar á liðnum vikum. Vonandi verður
blaðið til uppörvunar og gleði, hvatn-
ingar og fróðleiks.
Með þeim orðum óska ég les-
endum blaðsins gleðilegra jóla í Jesú
nafni.
Ragnar Gunnarsson ritstjóri
S. Waage sf
Garðabæ
^GáINGI
HÓPFERÐIR
5544466
Hjálparstarf
yir/ kirkjunnar
GARÐHEIMAR
GA
SMÍDAJARN
5peedcV
Bjarmi 4. tbl. 104. árgangur desember 2010 ISSN 1026-5244
Útgefandi: Salt ehf í samstarfi við Samband íslenskra kristniboðsfélaga
Ritstjóri: Ragnar Gunnarsson Ritnefnd: Haraldur Guðjónsson, Agnes Ragnarsson og Hermann Ingi Ragnarsson.
Prófarkalestur: Þorgils Hlynur Þorbergsson
Afgreiðsla: Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, sími 533 4900, fax 533 4909.
Kennitala Salts: 600678 0789, reikningsnúmer 0117 26 017476,
IBAN: IS18 0117 2601 7476 6006 7807 89, SWIFT: NBIIISRE
Vefslóðir: www.bjarmi.is,www.sik.is og www.saltforlag.is. Netpóstur: ragnar@sik.is
Árgjald: 3.900 kr. með greiðsluseðli (3.600 kr. ef greitt er beint eða með korti)
innanlands, 4.800 kr. til útlanda. Gjalddagi 1. april. Verð í lausasölu 900 kr.
Forsíðumynd: © Twentieth Century Fox Film Corporation og Warner Media, LLC.
Umbrot og hönnun: Hermann Ingi Ragnarsson
Prentun: Oddi, umhverfisvottuð prentsmiðja