Bjarmi - 01.12.2010, Qupperneq 9
AGNES T. RAGNARSSON
Þriðja kvikmyndin um ævintýralandið Narníu
Enn er kominn desember og undirbúningur jólanna ífullum
gangi. Að venju birtast hefðbundnar „jólakvikmyndir" á hvíta
tjaldinu. Harry Potter hefur lagt undir sig markaðinn síðustu
átta árin en enn önnur röð ævintýramynda má ekki gleymast:
Ævintýralandið Narnía.
10. desember var myndin Sigling Dag-
fara (The Voyage of the Dawn Treader)
frumsýnd hér á landi sem og víða
um heim. Þetta er þriðja kvikmyndin
byggð á ritröðinni, en sú fyrsta var
Ljónið, nornin og skápurinn (2006) og
önnur Kaspían konungsson (2008).
Margir lesenda Bjarma kannast við
Ævintýralandið Narníu, röð ævintýra
sem samin voru á 6. tug síðustu aldar
af breska höfundinum C. S. Lewis.
Bækurnar sjö hafa verið mjög vinsælar
meðal yngri kynslóðarinnar og teljast
meðal sígildra barnabókmennta í Bret-
landi og Bandaríkjunum. Bækurnar
hafa allar komið út á íslensku.
Ævintýri Narníu snúast um sérstaka
reynslu barna sem sb'ga inn ítöfraheim
sem kallast Narnía og gegnir lykilhlut-
verki í framvindu sögunnar. Narnía er
heimur samhliða raunveruleikanum og
er sérstakur staður þar sem dýrin tala
og töfrar eru daglegt brauð. En eins og
í okkar eigin heimi á sér þar stað bar-
átta ills og góðs.
ífyrstu tveimur kvikmyndunum (og
bókum með sama titli) eru aðalsögu-
hetjurnar Pétur, Súsanna, Játvarður
og Lúsía Pevensie. Sagan gerist á Bret-
landseyjum í seinni heimsstyrjöldinni.
Börnin eru send út í sveit vegna stríðs-
ins og þar uppgötva þau Narníu þegar
þau fara inn í klæðaskáp.
Börnin fjögur verða að hetjum
sem berjast fyrir hinu góða og réttlæti
með því m.a. að ganga í lið með Aslan,
leyndardómsfullu og kröftugu Ijóni.
Þrátt fyrir það þurfa þau alltaf í lok
sögunnar að snúa aftur til veruleikans.
Það sem virbst vera ár eða áraraðir í
Narníu tekur aðeins nokkrar mínútur í
okkar eigin heimi.
í Siglingu Dagfara snúa Játvarður
og Lúsía aftur til Narníu í þriðja sinn
ásamt frænda þeirra Elfráði Skúta.
Pétur og Súsanna eru orðin of gömul
til að komast inn í Narníu. Hin tvö slást
í för með Kaspían konungssyni á skip-
inu Dagfara í þeim tilgangi að bjarga
Narníu enn einu sinni frá illum kon-
ungi sem hefur náð kórónu Kaspíans.
Á hættulegri ferð sinni mæta þau alls
kyns furðuverum og hættum þegar
leið þeirra liggur til lands Aslans á enda
veraldar.
Þegar þetta er ritað er ekki enn
búið að frumsýna myndina hér á landi
og aðeins hægt að sjá myndbrot á net-
inu. En að sjálfsögðu mun ég slást í för
með öðrum aðdáendum Narníu og
horfa á þessa þriðju kvikmynd í ævin-
týraröðinni sem byggir á meistaraverki
C. S. Lewisar en sjálf naut ég þess að
lesa bækurnar sem táningur.
Ævintýralandið Narnía er stórkost-
legt tækifæri tíl að íhuga nokkur mikil-
væg þemu Biblíunnar og má þar nefna
tilveru hins andlega heims, baráttu
góðs og ills, hvernig hið illa hefur náð
tökum á Narníu, kærleika og umhyggju
9