Bjarmi - 01.12.2010, Side 10
Alans (hins eiginlega konungs Narníu),
fórn hans og algjöra endurlausn.
Þó svo að C. S. Lewis hafi aldrei
ætlað sér að skrifa kristilega skáldsögur
er Ijóst að trú hans hefur mótað Nar-
níusögur hans. Og gleymum því heldur
ekki að Lewis var án efa einn áhrifa-
mesti kristni rithöfundur, útvarps-
maður og guðfræðingur 20. aldar. Sum
rit hans (Aðeins kristindómur (Mere
Christianity), Með kveðju frá Kölska
(til á íslensku, The Screwtape Letters)
og Vandi þjáningarinnar (The Problem
of Pain) svo fáein séu nefnd) eru talin
meðal meistaraverka og hafa haft áhrif
á milljónir lesenda.
Ef þú, lesandi góður, hefur ekki
þegar lesið bækurnar, hvet ég þig til
að lesa þær annaðhvort á ensku eða
íslensku og kynna þér heim Narníu.
Það skiptir ekki máli hvort þú ert 7 ára
eða 77 ára, töfrapenni C. S. Lewis mun
flytja þig á vit nýrrar veraldar.
Einnig er vel þess virði að kynna sér
ýmis gögn sem kristið fólk og kirkjur
sem hafa hug á að nýta sér þessar
kvikmyndir geta notað tíl að efna tíl
umræðna, nota í prédikunum eða
fræðslu fyrir börn. Vefsíðan www.
narniafaith.com býður upp á námsefni,
prédikanir og annað efni í fallegri grafík
með stuðningi einstakra gesta eins og
t.d. Douglas Gresham, stjúpsyni C. S.
Lewisar.
Einnig má benda á bókina „Roar!
A Christian Family Guide to the
Chronicles of Narnia". Það er mikil
og þykk handbók með uppástungum
um ýmisilegt sem fjölskyldan öll getur
gert saman. Þar eru próf fyrir börnin,
hugsanir fyrir fullorðna fólkið, „Prófið
þetta heima" og fleira. Bókin er einnig
leiðsögn um heim Narníu og yfirlit yfir
skepnur, persónur, staði og samsvörun
þess í Biblíunni og svo má nefna lista
yfir orðfæri Narníu. Þess má geta að
bókin er tíl í Basarnum, Austurveri,
Háaleitísbraut 68, 103 Reykjavík og
kostar 2.100 krónur.
Einnig er hægt að taka Narníu pers-
ónuleikapróf á netínu, þ.e. á ensku,
á vefsíðunni http://www.jamiefrost.
co.uk/narniaquiz/
Ýmsar aðrar hugmyndir má einnig
nota tíl að nýta sér þetta efni á skap-
andi hátt:
• Haldið Narníu-samkeppni fyrir
börnin. Börnin í fjölskyldunni eða
kirkjunni geta á listrænan hátt
dregið upp mynd af Narníu með
því að nota lití, penna, Ijósmyndir
og annað. Halda má sýningu á
verkunum og sigurvegarinn eða
sigurvegararnir fengið gefins miða
á myndina.
• Einnig mættí útbúa krossgátu
eða spurningaleik þar sem börnin
fengju að vita fyrirfram hvað
skiptír mestu máli, hverju ber að
taka eftir í sögunni og því sem
læra má af henni. Hlutí þessa geta
verið ritningarvers sem þau fletta
upp og útskýra þá þættí sem koma
fram í sögunni.
• Einnig mættí halda C. S. Lewis
kvöld í kirkjunni og fara yfir líf og
sögu höfundar Narníu. Á netínu er
fjöldi Ijósmynda sem styðjast má
við. Einnig mættí lesa úr verkum
hans, t.d. Surprised by Joy sem
er e.k. ævisaga hans. Trú og verk
Lewisar eru djúp og við getum öll
lært eitthvað af honum.
• Efnið tíl fjölskyldusamkomu í
kirkjunni eða samfélaginu ykkar.
Margar góðar hugmyndir er að
finna á vefsíðunni www.narniafa-
ith.com. Þannig má nota mynd-
skeið úr fyrstu tveimur mynd-
unum, Ljónið, nornin og skápurinn
ÍO
© Twentieth Century Fox Film Corporation og Warner Media, LLC.