Bjarmi - 01.12.2010, Page 13
RAGNAR GUNNARSSON
Viðtal við Eric Johnson, einn af prestum
Bethel kirkjunnar í Redding, Bandaríkjunum.
Margir útlendingar heimsækja ísland
í því skyni að taka þátt í ráðstefnum,
námskeiðum eða samkomum á vegum
kristinna kirkna. Stundum reynir tals-
maður Bjarma að króa þá af til að
heyra hvað þeir hafa fram að færa
og hvernig mynd þeirra er af kristni á
íslandi. Einn þeirra er Eric Johnson, en
hann er einn af prestum Bethel kirkj-
unnar í Redding, Bandaríkjunum. Hann
kom hingað í sumar og gaf sér tíma
til að setjast niður í sófa í Fjölbraut-
arskólanum í Garðabæ. Á meðan hlupu
dætur hans um ganga og niður í kjall-
ara þar sem skynjari nam þær og setti
þjófavarnakerfið í gang. En það fór þó
allt vel.
Eric er einn af prestum kirkjunnar.
Hann segist vera alinn upp á kristnu
heimili, reyndar í sjötta ættlið öðrum
megin og þann fjórða hinum megin.
Arfleifð kristinnar trúar er því sterk og
í hópi nánustu fjölskyldumeðlima eru
prestar, kristniboðar og prédikarar.
Foreldrar hans eru aðalprestar Bethel
kirkjunnar. Starfið er tvíþætt, ann-
ars vegar er um að ræða staðbundna
kirkju í Redding með þrjú til fjögur
þúsund manns og hins vegar fræðslu
og þjálfunarmiðstöð, School of Min-
istry, með um 1300 nemendum sem
skiptast niður á þrjú ár. Meginstarf
hans snýr að skólanum þar sem hann
ber ábyrgð á starfi annars ársins.
UNDIRBÚNINGUR
FYRIR VAKNINGU
Eric segir hugsjóna sína vera í takt við
hugsjón kirkjunnar, að byggja upp fólk
vakningarinnar. Mikilvægur hluti þess
er að vera opinn fyrir hinu yfirnátt-
úrulega og gefa því rými í starfi kirkj-
unnar, ekki bara heima fyrir heldur
einnig úti um allan heim. Það sem
þau sjá Guð gera heima fyrir vilja þau
gjarnan sjá gerast annars staðar. Að
því þurfi að vinna markvisst eins og
hverjum öðrum útflutningi. Sjálfur
er hann mikið á ferðinni bæði innan-
lands í Bandaríkjunum og úti í heimi.
Margir af starfsmönnum þeirra segja
sömu sögu og faðir hans, Bill Johnson,
er hálft árið á ferðalögum. Eric hefur
nokkrum sinnum heimsótt Norður-
löndin, Rússland, Asíu, Afríku og Róm-
önsku Ameríku. Nú var hann í annað
sinn á íslandi og viðbúið að ferðirnar
verði fleiri í framtíðinni.
GUÐ ERGÓÐUR
Aðspurður segir Eric að megináhersla
boðskapar hans sé á gæsku Guðs,
„Guð er góður." Sem kristið fólk og
kirkja Jesú Krists skuldum við heim-
inum að mæta honum með þann
boðskap. Það gerist þegar veruleiki
himinsins birtist á jörðu. Þeir vakning-
arstraumar sem komu með svokallaðri
Toronto-blessun á síðasta áratug lið-
innar aldar opnuðu nýja sýn og vakning
varð í kirkjunni þeirra eins og víðar. En
vakningar eiga það til að deyja út með
næstu kynslóð. Markmið þeirra er að
halda lífi vakningarinnar og að hún nái
áfram til næstu kynslóðar.
Aðspurður um það hvernig tengslin
við ísland hafi komist á segir Eric að
það hafi byrjað með Katrínu, dóttur
13