Bjarmi - 01.12.2010, Page 14
Tómas Stankiewizc
Tómasar Stankiewizc og Unnar Maríu
Ingólfsdóttur, sem kom á skólann hjá
þeim fyrir þremur árum. Ári seinna
kom fjölskyldan öll og er því búin
að vera með þeim í tvö ár. Katrínu
dreymdi um að Eric væri með þeim
á íslandi og í framhaldinu buðu þau
honum í fyrra. Nú kom hann hingað
ásamt fjölskyldu sinni, eiginkonu sinni
og tveim dætrum.
HVAÐ UM ÍSLAND?
Nú hafa heyrst ýmsir spádómar um
ísland og Norðurlöndin. Ég inni Eric
eftir því en hann fer varlega í að koma
með yfirlýsingar.
„Það sem kirkjan gerir núna á eftir
að móta hana og samfélagið næstu
50-100 árin. Við þurfum að stíga fram
og taka okkur stöðu. Mjög mikilvægt
er að biðja og þá einnig að biðja um
markmið og leiðir að markinu. Það
er kominn b'mi tíl að kirkjan á íslandi
vakni, fari að hafa aukin áhrif og breytí
samfélaginu og menningunni. Við
sjáum of mikinn svefn og það þarf að
breytast. Drottínn þarf að fá að kom-
ast að tíl að breyta kirkju sinni á íslandi.
En þetta á svo sem við alls staðar. Við
sjáum að kirkjan hefur vaxandi áhrif
víða um heim, í Norður-Ameríku og
þeirri Rómönsku, í Asíu og Afríku.
Því miður er kirkjan einkum þekkt
fyrir að vera trúarstofnun en ekki fyrir
kraft sinn og spámannlega framgöngu.
Við höfum mikið af orðum en minna af
því að fólk stígi fram eins og Jesús og
umbreytí lífi fólks með lækningum. Við
eigum að lifa í hinu yfirnáttúrulega rétt
eins og Jesús gerði. Það var hlutí af lífi
hans og þjónustu. Við þurfum að taka
áhættu tíl að svo verði. Við þurfum að
horfast í augu við sjúkdóma, fátækt og
segja: Hingað og ekki lengra. Jörðin,
þ.e. fólkið í kringum okkur, þarf á himni
Guðs að halda, þar sem Heilagur andi
vinnur sitt verk, læknar og líknar og
leiðir fólk á fund Jesú og það frelsast.
Við teljum líka mikilvægt að horfa
ekki aðeins á kraftinn og hið yfirnátt-
úrulega. Persónuleikinn skiptír líka
miklu máli, það að við erum mótuð af
Jesú Kristí og kærleika hans í umgengni
okkar við annað fólk. Þetta tvennt þarf
að fylgjast að svo að starf okkar sé
trúverðugt."
ÞÁTTUR BÆNARINNAR
Eric er ákafur og heldur áfram að
tala um bæn og starf: „Kirkjan er góð
í að biðja en oft látum við þar staðar
numið. Við eigum bæði að biðja um
vakningu og vinna að henni.
Það er kominn tími til að
kirkjan á íslandi vakni# fari
að hafa aukin áhrif og breyti
samfélaginu og menningunni.
14