Bjarmi - 01.12.2010, Blaðsíða 15
Kraftaverk eru ekki óeðlileg
heldur eðlileg í ríki Guðs. Og við
sjáum að Guð er smám saman
að breyta þessum hugsunarhætti.
En þetta felur í sér áhættu#
þá áhættu að gera sig að kjána
eða einhverju öðru í augum manna.
Við þurfum ekki heldur að vera
alltaf á bremsunni og segja „ef Guð
vill..." því Guð vill það sem gott er:
Jesús læknaði alla sem til hans komu.
Við erum komin svo langt frá þess-
ari hugsun á Vesturlöndum að við
reiknum oft ekki með að Guð vilji, geti
eða muni gera kraftaverk. Við þurfum
að breyta hugsunarhætti okkar hvað
þetta varðar. Kraftaverk eru ekki
óeðlileg heldur eðlileg í ríki Guðs. Og
við sjáum að Guð er smám saman að
breyta þessum hugsunarhætti. En
þetta felur í sér áhættu, þá áhættu að
gera sig að kjána eða einhverju öðru í
augum manna.
Við höfum mismunandi leiðir til að
nálgast fólk, en við höfum séð marga
læknast við það að beðið var fyrir
þeim. T.d. fór eitt sinn hópur fólks úr
kirkjunni okkar í almenningsgarð í
því skyni að bjóða fólki fyrirbæn. Þau
komu að konu ( hjólastól en hún vildi
ekki þiggja fyrirbæn svo þau héldu
áfram. Þá komu þau að manni á bekk
sem var með spelku við bakið. Hann
sagði strax „já" þegar þau spurðu hann
og hann læknaðist, tók af sé spelkurnar
og hann var alveg heilbrigður. Þegar
konan sá þetta kom hún til þeirra og
bað um fyrirbæn, læknaðist líka og
gekk heim."
Eric segir þau hvetja fólk til að
leggja stund á fyrirbæn í daglegu
lífi, ekki aðeins í tengslum við sam-
komur og guðsþjónustur. Þetta eigi
að verða eðlilegur hlutur fyrir okkur.
„Guð snertir við okkur í vakningunni
og þá er einmitt svo mikilvægt að við
sköpum skilyrði, umhverfi eða menn-
ingu sem vakningin getur lifað áfram í.
Við þurfum að leyfa Guði að komast að
og vinna sitt góða verk."
Eric talar einnig um að minna fólk
á að hugsa ekki aðeins um það hvað
Guð getur gert heldur einnig um það
hver hann er. „Þegar upp er staðið
snýst þetta allt um hann, ekki um
okkur. Hugur okkar þarf að beinast
að Guði, köllun okkar er að elska Guð
af öllu hjarta. Til að svo verði þurfum
við sífellt að lifa í nánu sambandi við
hann."
MENNTAHROKI
OG GAGNRÝNISANDI
„Norðurlöndin, og ísland þar með
talið, eru á ýmsan hátt frábrugðin
öðrum heimshlutum. Hér er mikil virð-
ing borin fyrir menntafólki en ég held
15