Bjarmi - 01.12.2010, Page 16
Það er auðvelt að gagnrýna margt
því mikið fór úrskeiðis. Svar kirkjunnar
við þessu er að ganga fram í gleði
og gjafmildi. Það mun leiða
til nýrrar hugsunar og endurnýjun
kirkjunnar og samfélagsins.
að Guði finnist allt í lagi að móðga
eða hneyksla menntafólk með því að
hann fær að gera ýmislegt óvenjulegt
og koma fólki á óvart. Við þurfum ekki
að reikna allt út fyrirfram, vera viss
um að allt sé á hreinu og ekkert komi
á óvart. Guð starfar ekki þannig. Við
getum upplifað eitthvað nýtt, fundið
fyrir nýjum tilfinningum, okkur liðið
öðruvísi og við jafnvel fundið annars
konar lykt vegna þess sem Guð gerir.
Við þurfum að hlusta með hjartanu
jafnmikið og með höfðinu.
Ég finn mikinn anda gagnrýni á
Norðurlöndum og eins á íslandi þessa
mánuðina. Það er auðvelt að gagn-
rýna margt því mikið fór úrskeiðis.
Svar kirkjunnar við þessu er að ganga
fram í gleði og gjafmildi. Það mun leiða
til nýrrar hugsunar og endurnýjun
kirkjunnar og samfélagsins. Gagn-
rýni kemur hins vegar í veg fyrir þetta
flæði."
BJARTSÝNN
Aðspurður nánar um ástandið hér
á landi segist Eric mjög uppörvandi
að sjá hve margt fólk hér á landi er
andlega hungrað og margir sem eru
brennandi í andanum. „Ég er þess
vegna bjartsýnn. Ég er það yfirleitt
og tel að við eigum að vera það. Guð
elskar ísland og augu hans hvíla á landi
og þjóð þó svo að allt líti illa út og við
sjáum ekki hvernig málin munu leys-
ast. En Ijósið lýsir alltaf best í myrkrinu.
Aðstæður hér á landi eru þess vegna
frábært tækifæri fyrir kirkju Krists til
að mæta fólki í kærleika og umhyggju,
gjafmildi og gleði. Við getum valið að
horfa á allt hið neikvæða en við getum
líka valið að horfa á hið jákvæða, við
getum valið að vera bjartsýn. Við
ráðum hvað við horfum á."
Að lokum vill Eric minna á að Jesús fór
oft inn í erfiðar aðstæður. Samfélagið
sem hann varð hluti af í Mið-Austur-
löndum á þessum tíma var flókið og
erfitt að starfa þar. Aðstæður voru
svo erfiðar að hann var tekinn af lífi.
En það varð upphaf umbreytingar. Og
Jesús sagði að við myndum vinna meiri
verk en hann vann. Aðstæður okkar
eru aldrei vonlausar. Jesús getur alltaf
komið umbreytingu til leiðar. Til þess
vill hann fá að nota okkur.
Frá mótinu Himinn á jörð, Eric Johnson var einn af aðalræðumönnum mótsins.
16
© hag