Bjarmi - 01.12.2010, Page 17
LABBITÚR MEÐ FREL5ARANUM
Það var á jóladag sem prestur nokkur í söfnuði út á landi
tók eftir því að einhver hafði átt við uppstillinguna af fæð-
ingu Jesú fyrir framan kirkjuna. Allar brúðurnar voru þarna
uppstilltar; hirðingjarnir með lömbin sín, vitringarnir þrír
sem og öll dýrin í fjárhúsinu ásamt Maríu og Jósep. En litla
Jesúbarnið var ekki lengur í jötunni sinni.
Prestinum leist nú ekki á blikuna og velti því fyrir sér
hverjum dytti það í hug að stela sjálfu Jesúbarninu á jól-
unum.
Hann var á leiðinni inn á skrifstofu hjá sér að hringja í
sýslumanninn þegar hann sá Nonna litla á rölti hinum megin
við götuna hjá kirkjunni. Nonni litli var með rauðan vagn og
var Jesúbarnið liggjandi í vagninum. Presturinn labbaði í
rólegheitunum yfir götuna og spurði Nonna litla hvar hann
hafði fengið Jesúbarnið.
„Ég tók hann þarna úr uppstillingunni," sagði Nonni litli
og benti sposkur í átt að kirkjunni þar sem uppstillingin var.
„Af hverju tókstu hann?" spurði presturinn.
„Sko, það var nefnilega þannig að í síðustu viku bað ég
Jesú um að gefa mér svona rauðan vagn í jólagjöf og ef ég
fengi svoleiðis vagn þá lofaði ég að ég myndi taka hann með
í dálítinn labbitúr í honum."
JÓLAFÖTIN
Ung kona var á rölti niður Laugaveginn og langaði hana
mikið að kaupaséreinhver hugguleg föt fyrir jólin. Hún hafði
hugsað sér að það væri gott að kaupa föt í dag sem hún gæti
þá notað í jólaveislunni í vinnunni hjá sér um kvöldið og svo
gæti hún notað fötin áfram yfir jólin.
Hún var orðin úrkula vonar þegar hún var komin niður
í Bankastrætið en leit síðan við og sá þennan stórglæsilega
jólakjól í einum búðarglugganum.
Konan stökkyfirgötuna ogvarkomin inn ífataverslunina
á augabragði. Hún spurði síðan afgreiðslukonuna hvort að
hún mætti máta kjólinn í glugganum.
Afgreiðslukonan leit snöggt upp með vandlætingarsvip
og sagði: „Það kemur sko ekki til greina!"
Ung konan spurði þá: „Bíddu, af hverju ekki?"
Afgreiðslukonan svaraði henni þá um hæl og sagði: „Þú
verður að nota mátunarklefann eins og hver annar við-
skiptavinur!"
hérna í bænum sem hafði auglýst allt að 90% afslátt af
völdum vörum aðeins á þessum degi. Mannhafið var svo
mikið að lögreglan þurfti að loka fyrir umferð fyrir framan
verslunina.
Þegar klukkan var að slá 9 reyndi smávaxinn maður sem
stóð aftast í röðinni að troða sér fram fyrir þá sem stóðu
þarna en honum var bara ýtt aftast í röðina. Litli maðurinn
lét ekki deigan síga og tók tilhlaup inn í þvöguna en það
eina sem hann uppskar var sprungin vör og glóðurauga eftir
stympingarnar við kaupóða viðskiptavinina.
Maðurinn lá í götunni og sagði þá upphátt: „Jæja, nú er
mér nóg boðið, ef einhver lemur mig einu sinni enn þá opna
ég bara ekkert búðina!"
JÓLIN í GAMLA DAGA
Það var 4 ára drengur sem fór í sunnudagaskólann í kirkj-
unni sinni á aðventunni og fékk hann dálitla fræðslu um það
hvernig fyrstu jólin voru þegar Jesúbarnið fæddist. Hér fer
eftir sönn frásögn af því hvernig ungi drengurinn upplifði
þessa fræðslu.
„Mamma, mamma, veistu hvað? Gamla konan í kirkj-
unni var að segja okkur frá því þegar Jesús fæddist fyrir
mörgum árum."
„Já, en hvað það er gaman," sagði móðirin. „Og hvað
fékkstu að vita um fyrstu jólin?™
Drengurinn svaraði: „Sko, þetta var allt rosalega skrýtið,
í staðinn fyrir 13 jólasveina þá voru bara einhverjir 3 gaurar
á kameldýrum sem þurftu að fara út um allt og gefa öllum
jólgjafir og svo af því það voru ekki til neinir aðventukransar
þá þurftu fólkið í gamla daga að nota bara Betlhemstjörn-
una til þess að sjá í myrkrinu!"
STÓRA JÓLAÚTSALAN
Klukkan var að verða 9 að morgni Þorláksmessu og mann-
fjöldinn var gríðarlegur fyrir framan eina raftækjaverslun
Hvernig er þetta eiginlega með Norðurpólinn?
Er þetta bara eitthvað skattaskjól
eða eitthvað svoleiðis???
17