Bjarmi - 01.12.2010, Blaðsíða 19
Þráin eftir valdi hefur orðið leiðtogum innan kirkjunnar að falli.
Bretlandi halda því jafnvel fram að
því stærri sem peningagjöfin sé, þeim
mun meiri verði blessunin, eða hagn-
aðurinn, sem gefandi geti vænst.
J. Lee Grady, sem ritstýrði banda-
ríska tímaritinu Charisma, gaf út
áhrifamikla bók, sem ber titilinn Heil-
agur andi er ekki til sölu. Þar hvetur
hann sérstaklega karismatíska söfnuði
og hvítasunnukirkjurtil að hverfa aftur
að biblíulegum grundvallaratriðum og
endurnýja heiðarleika og auðmýkt í
andlegu lífi.
Grady telur að kenningar um vel-
gengni og áherslu á veraldlegan ávinn-
ing, sem hófst upp úr 1980, hafi verið
barn síns tíma í bandarísku þjóðfélagi.
í dag taki menn þessum kenningum
með miklum fyrirvara en bendi jafn-
framt á að vilji Guðs sé ekki að fólk
lifi í eymd, fátækt eða barningi. Hann
leggur áherslu á, að það sem Biblían
eigi við með velgengni sé, að menn
hafi nóg fyrir eigin þörfum og geti
miðlað þurfandi, en að ekki sé átt við
eignir eða auð í óhófi.
Þjónustan við náungann minnkar
stórlega þegar gjafir Heilags anda eru
eingöngu notaðar til eigin ávinnings.
Þá verða hinir kristnu æ líkari hinum
vantrúuðu.
Sjónvarpsútsendingar eru ekki eina
orsök spillingar. Freistingarnar eru
þær sömu fyrir hina kristnu á íslandi,
sérstaklega þá sem hafa aðgang að
fjármunum sem eiga að fara til kirkju-
starfs. Má þar nefna safnanir af ýmsu
tagi. Hvar drögum við mörkin milli þess
að biðja um fjárframlög með hógværð
eða harðri hendi? Hverju erfólki lofað
í slíkum fjársöfnunum og hverjar verða
efndirnar? Þessar spurningar ýta undir
umræðu um siðferði og andleg viðmið,
sem gætu orðið efni í aðra grein.
Spurningin er: Eru leiðtogar með-
vitaðir um þær freistingar sem pen-
ingagjafir til kirkjunnar skapa?
En spilling á fjármálasviðinu er ekki
eina freistingin sem leiðtogar kristinna
safnaða þurfa að horfast í augu við.
Misnotkun á valdi og áhrifum hefur
komið upp í kirkjum og söfnuðum,
einnig á íslandi. Misnotkun á andlegu
valdi er minna áberandi, en ekki síður
skaðleg og hneykslanleg samkvæmt
biblíulegum mælikvörðum.
Andleg misnotkun nær yfir marg-
víslega tegund hegðunar, en í stuttu
máli má segja að það sé þegar andlegt
vald er notað til að lítillækka, ráðsk-
ast með eða hafa einhvern að féþúfu.
Þetta er raunverulegt vandamál sem
getur valdið klofningi í kirkjum, fjöl-
skyldum og í samfélagínu. Til eru dæmi
um fólk sem var hótað andlega yfirgæfi
það kirkjuna, varpað á dyr án viðræðu,
öðrum safnaðarmeðlimum og kirkjum
yrði bannað að eiga samskipti við það
eða minnt á fyrri syndir þegar efast var
um leiðtogana.
Hvernig svo sem það birtist, er mis-
beiting valds forstöðumanns gagnvart
19