Bjarmi - 01.12.2010, Side 22
Diulliamdall | Dreamstime.com
é
Misnotkun innan kirkjunnar veldur gríðarlegum skaða og skiljur eftir sig
djúp sár í lífi fórnarlambanna.
týnt þeirri gáfu eða í það minnsta ekki
notað hana sem skyldi.
Kristnir menn þurfa að hvetja hver
annan til að nota þær náðargjafir, sem
Guð hefur gefið þeim, á réttan og heil-
brigðan hátt.
Ábyrgð kristinna manna er einnig
sú að viðhalda jafnvægi og umgang-
ast leiðtoga af ábyrgð og heilindum,
en stunda ekki „nornaveiðar". Mikið
hefur verið ritað um mistök og rang-
færslur leiðtoga, en það getur einnig
snúist upp í andhverfu sína. Leiðtogar
geta orðið fórnarlömb og upplifað
mjög mannskemmandi hegðun safn-
aðarfólks síns. Eins og dr. Lisa Oakley
(sjá síðar í töflu) bendir á, þarf að skilja
vandamálið til að geta tekið á því.
Biblían kennir að allir kristnir menn
beri ábyrgð á því að vaxa og vera ekki
aðeins andlegir mjólkurneytendur,
heldur kristnir einstaklingar sem láta
ekki hrekjast af sérhverjum kenning-
arvindi og villu. Kirkjan á að halda sig
við sannleikann og sérhver trúaður
maður á að vaxa í ábyrgð, sem og náð
og þekkingu.
Þegar bannað er að ræða þessi mál
innan kirkjunnar er það vísbending um
að eitthvað sé í ólagi.
Hér að neðan er listi yfir aðvörun-
armerki sem safnaðarmeðlimir, hópar
og samfélög geta stuðst við til að forð-
ast misnotkun:
Einkenni óöruggrar kirkju, samfélags
eða félagsskapar:
• Það er ekki leyfilegt að vekja máls
á einhverju - sé það gert, verður
sá einstaklingur vandamál.
• Skortur á áreiðanleika.
• Áhersla á ytri ímynd-jafn-
vel þótt fölsk sé.
• Einokun valds, drottn-
unargirni eða valdahroki.
• Hlýðni er krafist undir
öllum kringumstæðum.
• Leynd - yfir fjármálum,
hegðun og ákvarðanatöku.
• Biblíuvers rangfærð, rang-
flutt og umorðuð.
• Leiðtoginn veit allt best sjálfur.
• Slúður, óeining, eineltí
innan safnaðarins við brott-
hvarf safnaðarmeðlims.
• Hroki - okkar kirkja
er alveg einstök.
Með allt þetta í huga er Ijóst að
íslensk kirkja gengur nú um stundir í
gegnum eins konar hreinsunareld og
í stað þess að kirkjan lamist er hægt
að líta á reynsluna sem tækifæri tíl að
koma með ferska leiðtoga inn í 21 öld-
ina. Að lokum er þetta ekki spurningin
um að finna byltíngakennda kenningu,
heldur að spyrja um gömlu götuna,
hver sé hamingjuleiðin og fara hana.
Að hverfa aftur tíl undirstöðunnar,
sem eru guðspjöllin, og temja okkur
þjónusturlund í lífi og starfi.
Þýðing: Bjarni Árnason
Mikið hefur verið ritað um mistök
og rangfærslur leiðtoga, en það
getur einnig snúist upp í andhverfu
sína. Leiðtogar geta orðið fórnarlömb
og upplifað mjög mannskemmandi
hegðun safnaðarfólks síns.
22