Bjarmi - 01.12.2010, Side 24
AGNES T. RAGNARSSON
Nú í nóvember kom út bókin Guð elskar mig. Höfundurinn
er Signý Gyða Pétursdóttir sem sjálf gefur bókina út ásamt
eiginmanni sínum. Bjarmi tók Signýju tali í tilefni af útkomu
bókarinnar, til að fræðast meira um hana. Hvernig stendur á því
að þessi bók varð til?
Bókin Guð elskar mig er hugmynd sem
ég fékk á samkomu sem ég var á fyrir
fimm árum. í lofgjörðinni spurði ég
Guð: „Er ekki eitthvað sem ég get gert
fyrir þig?" Og það stóð ekki á svarinu.
Ég upplifði mikið sköpunarflæði. í huga
minn kom setning eftir setningu, sem
sagt saga, sem flæddi sjálfkrafa fram.
Ég reyndi að finna blað og penna í
töskunni minni og ég byrjaði að skrifa
aftan á nokkra miða sem ég fann í tösk-
unni. Þegar heim var komið eftir sam-
komu setti ég textann upp og útbjó
lítið sýnishorn af bók. Þarna byrjaði
þetta allt saman fyrir fimm árum sem
varð til þess að bókin Guð elskar mig er
nú komin í bókabúðir á íslandi.
Um hvað fjallar bókin
og hver er boðskapurinn?
Bókin Guð elskar mig er skemmtileg og
fallega myndskreytt bók sem hjálpar
börnum að sjá sjálf sig á uppbyggi-
legan hátt. Sögupersónan er lítil stúlka
sem hefur ekki alveg rétta sjálfsmynd.
Bókin er byggð á kristnum grunni og
þar af leiðandi kemur í Ijós hvernig Guð
sér hana. í framhaldi af því koma í Ijós
hæfileikar sögupersónunnar og hvað
sem hún annars gerir af sér, þá er hún
samt elskuð.
Börn eiga það oft til að bera sig
saman við aðra, þeim finnst þau ekki
vera nógu góð og eiga stundum erf-
itt með að sjá kosti sína og hæfileika.
Það er því miður ótrúlega snemma
sem börn meðtaka höfnun inn í sitt líf
sem fylgir þeim síðan oft inn í fullorð-
insárin. Með þessari bók vil ég stuðla
að góðum grunni fyrir sjálfsmynd
barna og að þau sjái sjálfa sig á góðan
hátt, meðtaki sjálf sig eins og þau eru
og meti sína eigin verðleika. Ég legg
einnig mikla áherslu á að börnin finni
út þá hæfileika sem Guð hefur gefið
þeim, við erum jú öll sköpuð með mis-
munandi hæfileika og það er svo mik-
ilvægt að hver og einn viti hverjir þeir
eru og sé sáttur og ánægður með þá til
þess að þeir geti nýst til fullnustu. Það
veitir líka hverjum einstaklingi gleði og
hamingju innra með honum.
Bókin er tvískipt. Fyrri hlutinn
fjallar um sögupersónuna þar sem
börnin geta samsamað sig henni. í
seinni hlutanum fá börnin tækifæri til
að skrifa og teikna eigin hugmyndir og
uppgötva hæfileika sína.
Hvernig komstu þessu síðan í verk?
Þegar ég fékk þessa hugmynd þá hafði
ég ekki hugmynd um hvernig ég ætti
að snúa mér í þessu ferli. Ég hafði enga
þekkingu á því að gefa út bók. Mér
fannst þetta spennandi og skemmti-
legt verkefni sem Guð hafði falið mér
en jafnframt mjög ógnvænlegt, því
hvernig átti ég að vita hvernig maður
færi að þessu? Fyrir utan það að vera
frekar feimin (þó að margir sem þekkja
mig trúi því varla að ég fái feimniköst
eins og ég kalla það). Ég man meira
24