Bjarmi - 01.12.2010, Page 25
© hag
Signý Cyða Pétursdóttir.
að segja eftir því að ég hugsaði:„Guð
þegar ég spurði hvort það væri ekki
eitthvað sem ég gæti gert fyrir þig þá
meinti ég nú kannski eitthvað svona
mikið t.d. eins og að fara og tala við
nágranna og blessa viðkomandi." Það
var það sem ég hafði átt við þegar ég
spurði Guð, en hann hafði þetta í huga.
Fljótlega tók ég þó á mig rögg og fór
í eitt forlag með hugmyndina af bók-
inni — það tók mig reyndar nokkrar
vikur að telja kjark í sjálfa mig að ganga
þar inn, en ég fékk aldrei nein bein
svör frá því forlagi. Og nokkru seinna
fluttum við hjónin til Svíþjóðar þar sem
ég fór í biblíuskóla. En alltaf var þessi
bók ofarlega í huga mínum.
Fyrir þremur árum leitaði ég til
teiknarans Péturs Atla Antonssonar
sem myndskreytti bókina en á þeim
tíma gat hann ekki tekið þetta verkefni
að sér en sýndi því mikinn áhuga. En
núna í janúar 2010 náðum við samn-
ingum við hann og þá var í raun ekki
aftur snúið. Og það var loks í haust sem
Fjóla FHilmars byrjaði á umbroti bók-
arinnar. Flún er frábær, hæfileikarík og
vann mjög mikið og óeigingjarnt starf.
Á þessum fimm árum færði Guð
mig sífellt skrefi framar. T.d. fékk ég
mikla hvatningu frá Halldóri Pálssyni,
sem sjálfur er bókaútgefandi og Her-
dísi Hallvarðsdóttur hjá Hljóðbók.is
sem sér um dreifingu á bókinni í versl-
anir.
í október síðastliðnum snerist
þetta um að hrökkva eða stökkva. Alls
staðar stóðu opnar dyr fyrir okkur.
Þannig að við stukkum — og bókin
kom úr prentun 10. nóvember síðast-
liðinn.
Nú má segja að þitt eigið líf sé
heilmikil saga, ertu tilbúin að segja
okkur hvað hefur gengið á hjá þér?
Fyrir fimm árum gengum við í hjóna-
band, ég og maðurinn minn, Ófeigur
Sveinn Gíslason. Þegar við vorum að
kynnast greindist ég með góðkynja
æxli við vinstri eggjastokk. Ég þurfti
að fara í aðgerð og æxlið var fjar-
lægt. Hins vegar hafði þetta æxli
mun meiri neikvæð áhrif en talið var
í fyrstu. Þrátt fyrir það kom það ekki til
greina af minni hálfu að við myndum
ekki eignast börn. Það var svo fast í
huga mínum og gífurleg þrá í hjarta
mínu. Og ég hugsaði að ef Guð gæfi
mér þessa miklu þrá þá hlyti hann að
uppfylla hana. Stöðugt er prédikað í
kirkjum um það að Guð er hinn sami
og fyrir 2000 árum og að Biblían —
Orðið — virkar eins og fyrir 2000 árum
og af hverju ætti það þá ekki að eiga
við um mig?
Læknirinn okkar var ekki allt of hrif-
inn af því að við ætluðum að flytja til
Svíþjóðar því að hann vildi strax hjálpa
okkur að eignast barn með aðstoð
tækninnar en ég var ekki alveg á því. Ég
þurfti að velta því fyrir mér hvort það
væri vilji Guðs, og Guð vann með mig
þar til ég fékk jákvætt svar; það væri
vilji hans. Hann kom okkur í samband
við mjög góðan lækni í Svíþjóð sem
hélt rannsóknum og eftirfylgni áfram.
Hins vegar fengum við ekki leyfi til að
fara í glasafrjóvgun þar vegna þess að
ákveðin hormón hjá mér mældust ekki
nógu vel og einnig hafði aldur okkar
áhrif.
En síðan varðst þú ófrísk?
Hins vegargerðist það þegar við vorum
nýkomin til Svíþjóðar haustið 2006 að
við uppgötvuðum að ég væri ófrísk.
Það kom mjög á óvart því að það hefði
í raun ekki átt að ganga miðað það
sem á undan var gengið. Hins vegar
25