Bjarmi - 01.12.2010, Blaðsíða 27
ugt frá Guði. Ég leyfði mér að gráta í
sífellu því að það er ákveðið sorgarferli
sem maður þarf líka að fara í gegnum
þegar maður þráir börn og hefur misst
og þráir að eignast börn og það er ekki
að gerast.
En í dag höfum við fengið krafta-
verk. Við hjónin eigum von á barni, von
er á því í heiminn í byrjun næsta árs .
Þegar við fórum til læknisins okkar
til að fá staðfestingu á þunguninni
horfði hann bara á okkur með undrun
því að það var ekkert sem hann gatgert
meira fyrir okkur á sínum tíma. Hann
hafði samt alltaf sagt okkur að gefast
ekki upp þótt hann gæti ekki hjálpað
okkur — og það var yndislegt að geta
sagt við hann að kraftaverk hefði gerst.
Gefin var kostur ó því að fó bókina óritaða af höfundi
Hvað hefur þú að segja hjónum
sem glíma við ófrjósemi?
Það sem mig langartil að segja við hjón
sem berjast við ófrjósemi af einhverju
tagi er að gefast ekki upp. Leitíð Guðs,
hann hefur lausnina, á hvaða hátt sem
það er. Hann vill bara blessa, hann
vill veita vonaríka framti'ð. Farið og
þiggið fyrirbæn, treystið einhverjum
fyrir atvikunum og fáið aðra til að
biðja trúfastlega með og fyrir ykkur.
Horfið á Guð. Haldið áfram að gera
það sem Heilagur andi biður ykkur að
gera. Stígið inn í lækningarferli Guðs,
t.d. með því að fara á lækningadaga,
kyrrðarstundir og eiga persónulegt
og náið samfélag við hann. Gefist ekki
upp. Hann er trúfastur, en við þurfum
líka að vera trúföst. Skoðum Biblíuna
þar er frásagan um Abraham og Söru,
eða um Hönnu sem hægt er að lesa
um í Fyrri Samúelsbók og margar aðrar
frásagnir í Biblíunni.
Orð Guðs virkar eins og það gerði
fyrir 2000 árum.
Eitthvað að lokum?
Já, í Sálmi 37 stendur: Treyst Drottni
og gjör gott, ... þá munt þú gleðjast
yfir Drottni, og hann mun veita þér
það sem hjarta þitt girnist. Fel Drottni
vegu þína og treyst honum, hann mun
vel fyrir sjá. Hann mun láta réttlæti þitt
renna upp sem Ijós og rétt þinn sem
hábjartan dag. Ver hljóður fyrir Drottni
og vona á hann.
Signý og eiginmaður hennar Ófeigur Sveinn Gíslason.
27