Bjarmi - 01.12.2010, Síða 29
ÍÁTÍ
i
SIGURÐUR PÁLSSON
Og nú, ísrael, hvers krefst Drottinn, Guð þinn, annars afþér en að þú óttist
Drottin, Guð þinn, gangir á öllum vegum hans og elskir hann, að þú þjónir
Drottni, Guði þínum, aföllu hjarta þínu og allri sálu þinni og haldir boð
Drottins og lög sem ég set þér í dag svo að þér vegni vel?
Sjá, Drottni, Guði þínum, heyrir himinninn og himnanna himinn og jörðin
og allt sem á henni er. Eigi að síður beindist kærleikur Drottins aðfeðrum
þínum einum svo að hann elskaði þá. Síðan valdi hann ykkur, niðja þeirra,
úr öllum þjóðum og er svo enn í dag.
16Umskerið þvíforhúð hjartna ykkar... 5. Mós. 5. Mós. 10.12-16.
Skiptir okkur einhverju máli hverrar
þjóðar við erum? Áreiðanlega. Við
erum að öðru jöfnu stolt af því að vera
íslendingar, jafnvel þótt ástandið nú sé
eins og það er.
Samt held ég að við teljum okkur
ekki hafa neinu sérstöku hlutverki að
gegna í heiminum sem þjóð, nema þá
að styðja allt það sem má vera heims-
byggðinni til góðs að því marki sem
smáþjóð megnar.
NÝR SÁTTMÁU — NÝ ÞJÓÐ
ísraelsmenn trúðu því að þeir hefðu
sérstöku hlutverki að gegna sem
Guði hefði falið þeim. Textinn sem við
heyrðum er úr þeim hluta 5. Móse-
bókar sem fjallar um lög hinnar útvöldu
þjóðar, ísraelsmanna, hinnar útvöldu
þjóðar sáttmálans — hins gamla sátt-
mála. Hvert var hlutverk þessarar
þjóðar?„Afþér skulu allar þjóðir jarðar
blessun hljóta." Þeir væntu hans sem
koma skyldi, hins fyrirheitna Messí-
asar.
Hvert var innsigli þess að tilheyra
þessari þjóð? Það var umskurnin.
Umskurn sveinbarna á áttunda degi var
tákn þess að tilheyra hinum útvöldu.
Útvalningunni fylgdi skuldbinding. Að
hlýða lögmáli Guðs í hvívetna og þjóna
honum einum.
í fyllingu b'mans kom sá sem vænst
hafði verið. Orðið varð hold. Fyr-
irheitið varð hold. Orð sannleikans og
hjálpræðisins — Jesús Kristur. En hans
eigin menn tóku ekki við honum. Sé
því trúað að uppfylling fyrirheitanna
hafi verið Jesús Kristur má segja að
hinu sérstæða hlutverki ísraelsþjóð-
arinnar hafi verið lokið. Þeir eru nú
aðeins þjóð meðal þjóða, sem öllum er
boðið að verða hluttakendur í hinum
nýja sáttmála. Jesús sagði við síðustu
kvöldmáltíðina: Þessi kaleikur er hinn
nýi sáttmáli í mínu blóði, semfyrir yður
er úthellt. Og í Hebreabréfinu er þetta
undirstrikað: Þar sem hann nú kallar
þetta nýjan sáttmála, þá hefir hann
lýst hinn fyrri úreltan. En það sem er að
úreldast og fyrnast er að því komið að
verða að engu (Hebr. 8.13.).
Umskurnin, tákn hins gamla sátt-
mála, er þar meðfelld úrgildi. Umskurn
eða yfirhúð skipta engu, heldur að vera
ný sköpun. - (Gal. 6,15J íhonum voruð
þér einnig umskornir þeirri umskurn
sem ekki er með höndum gjörð, heldur
með umskurn Krists, við að afklæð-
ast hinum synduga líkama, þegar þér
voruð greftraðir með Kristi í skírninni.
I skírninni voru þér einnig með honum
uppvaktir fyrir trúna á mátt Guðs sem
29