Bjarmi - 01.12.2010, Blaðsíða 30
uppvakti hann frá dauðum. (Kól. 2.
11-12). Skírnin er tákn hins nýja sátt-
mála. Þeir sem skírðir eru í nafni Guðs,
föður sonar og heilags anda, eru hinn
nýi ísrael, hin nýi lýður Guðs, hin nýja
þjóð Guðs. - En þið eruð útvalin kyn-
sióð, konunglegur prestsdómur, heilög
þjóð, eignariýður, til þess að þið skuluð
víðfrægja dáðir hans, sem kallaði yður
frá myrkrinu til síns undursamlega
Ijóss. Þið sem áður voruð ekki lýður
eruð nú orðin Guðs lýður. Þið sem ekki
nutuð miskunnar hafið nú miskunn
hlotið. (1. Pét. 2. 9-10).
EINKENNIOG HLUTVERK
Hvert er lögmál hins nýja sáttmála,
hinnar nýju þjóðar Guðs, sem útvalin
er í Jesú Kristi?
Og þú skalt elska Drottin, Guð þinn,
aföllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum
huga þínum og öllum mætti þínum.
Annað er þetta: Þú skalt elska náunga
þinn eins og sjálfan þig. Ekkert boðorð
annað er þessum meira. (Mark. 12.
30-31).
Einkenni þessarar þjóðar eiga því
að vera: Kærleiki, gleði, friður, Ijúf-
mennska, gæska, góðvild, trúmennska,
hógværð og sjálfsagi. (Gal. 5,22)
Og hún á sér tungumál sem tengist
einkennunum. Tungumálið sem þessi
þjóð talar er kristneska (eins og ágætur
hvítasunnumaður orðaði það einhvern
tíma). Tungumál kærleikans.
Hefur þessi þjóð, sem útvalin er í
Kristi, sérstakt hlutverk? Farið út um
allan heim og gerið ailar þjáðir að læri-
sveinum, skírið þá í nafni föður, sonar
og heilags anda og kennið þeim að
halda allt það sem ég hef boðið yður.
- Sjá ég er með yður alla daga. (Matt.
28,18-20)
Konungur kærleikans. Hinn þyrni-
krýndi konungur.
Er þetta vopnuð þjóð? Já, hún er
vopnuð.
Takið því alvæpni Guðs til þess
að þið getið veitt mótstöðu á hinum
vonda degi og haldið velli þegar þið
hafið sigrað allt. Standið því gyrt sann-
leika um lendar ykkar og klædd rétt-
lætinu sem brynju og skóuð á fótunum
með fúsleik til að flytja fagnaðarboðin
um frið. Takið umfram allt skjöld trú-
arinnar sem þið getið slökkt með öll
logandi skeyti hins vonda. Setjið upp
hjálm hjálpræðisins og grípið sverð
andans sem er Guðs orð. (Efes. 6.
13-17)
Á þessi þjóð Guðs, lýður Guðs,
kirkja Krists, í stríði?
Já, hún á í stríði.
KIRKJA í STRÍÐI
Hér á okkar landi eru öfl sem markvisst
boða guðleysi og reyna með afger-
andi hætti að ýta kirkjunni til hliðar.
Nýjasta dæmi þess eru tillögur sem
Mannréttindaráð Reykjavíkur hefur
sent frá sér, þar sem banna á dreif-
ingu Gídeonmanna á Nýja testament-
inu til skólabarna og ekki megi kalla til
presta þegar áföll verða, nema þess
sé sérstaklega óskað. Og fleira mætti
telja úr þessu plaggi sem stuðlar að
því að rjúfa aldalangt samstarf skóla
og kirkju. Þessar tillögur eru teknar, lið
fyrir lið, upp úrtillögum sem Siðmennt
sendi Menntaráði Reykjavíkur fyrir
nokkrum árum, en Siðmennt, félag
siðrænna húmanista, er félag guðleys-
ingja. Nú var lag að fylgja þeim eftir
því að varaformaður Siðmenntar situr
nú í mannréttindaráði borgarinnar.
Siðmenntarmenn eru óþreytandi í sínu
30
Elpis loannidis