Bjarmi - 01.12.2010, Qupperneq 31
Það er því mikilvægt að kristið
fólk vígbúist, taki á sig alvæpni
Guðs og tali við andstæðinginn
á kristnesku# tungumáli kærleikans.
boðunarstarfi. Það gætum við lært af
þeim.
Annað ötult félag guðleysingja er
félagið Vantrú, sem er rangnefni, því
félagar þess eru ekki vantrúaðir heldur
róttækir guðleysingjar, sem m.a. hafa
gengið um með eyðublöð til að fá fólk
til að segja sig úr þjóðkirkjunni. Sé
farið inn á vef félagsins og fylgst þar
með orðaskiptum þeirra við málsvara
trúarinnar, má sjá að þeir eru stóryrtir
ogvanda mönnum ekki kveðjurnar.
Einn háværasti postuli guðleysis
í samtímanum er prófessor Rich-
ard Dawkins, virtur vísindamaður á
sínu sviði og snjall penni, en guðlaus
ofsatrúarmaður. Nýlega kom út á
íslensku þekktasta bók hans The God
Delusion; Ranghugmyndin um Guð, í
þýðingu formanns Vantrúar. Þar segir
Dawkins m.a.:
Færa má rökfyrir því að guð Gamla
testamentisins sé ein ónotalegasta
persóna í samanlagðri bókmenntasög-
unni: afbrýðisamur og stoltur af því;
smámunasamur, óréttlátur, miskunn-
arlaus eftirlitsharðstjóri; hefnigjarn,
blóðþyrstur þjóðernishreinsari; kven-
hatari; hommahatari; kynþáttahatari;
barnamorðingi; þjóðarmorðingi; sið-
spillandi, sadómasókískur, duttlunga-
fullur og meinfýsinn ofbeldisseggur
með mikilmennskubrjálæði. Þau okkar
sem hafa vanist honum frá barnæsku
geta orðið ónæm fyrir hryllingnum.
\ niðurstöðum bókarinnar lýsir
hann trúuðum þannig:
Trúaðir eru; truflaðir, ímyndunar-
veikir, blekktir og blekkjandi — vits-
munir þeirra skakkir og skældir af að
vera herleiddir af smitandi, illkynja
guðsvírusi.
Fyrir nokkrum árum var Dawkins
boðið hingað til lands til fyrirlestra-
halds og fékk drottningarviðtal í Kast-
Ijósi Ríkissjónvarpsins, þar sem heill
þáttur var lagður undir viðtal við hann.
Fyrir tveimur árum eða svo kom
hingað einn ötulasti andmælandi
Dawkins, líffræðingurinn og guðfræð-
ingurinn McGrath. Koma hans fékk
ekki sömu umfjöllun í fjölmiðlum, en
hann hélt hér fundi m.a. í Háskóla
íslands og einnig námskeið í Skálholti.
Rétt er að hvetja fólk til að lesa bók
hans Ranghugmynd Richard Dawkins,
sem komið hefur út á íslensku.
Á lýður Guðs í stríði? Já hann á í
stríði, ekki aðeins hér á landi heldur
um allan heim.
ISLAM OG SKEYTINGARLEYSIÐ
Tiltölulega lítill og hófsamur hópur
múslima hefur flust hingað tíl lands
og sest hér að. En blikur eru á lofti.
Vafi leikur á hvar rætur þeirra liggja
sem keypt hafa bygginguna Ými undir
menningarmiðstöð múslima. En þegar
litið er til Evrópu verður myndin önnur.
Mikill fjöldi múslima hefur flust til Evr-
ópu og sest þar að. Má nefna í því sam-
bandi Bretland, Frakkland, Þýskaland
og Norðurlöndin. Víða hefur þetta fólk
aðlagast evrópskri menningu illa og
hafa bæði Frakklandsforsetí og kansl-
ari Þýskalands látið þau orð falla að
aðlögun múslima í Evrópu hafi mistek-
ist. Þær kröfur eru farnar að heyrast
frá múslimum sums staðar í Evrópu
um að svonefnd sharíalög gildi um
þeirra mál en ekki viðkomandi lands-
lög, a.m.k. í sumum málum. Rétt er að
taka fram að ég er hér ekki að tala um
öfga- og hryðjuverkahópa Islamista.
Og múslimum í Evrópu fjölgar stöð-
ugt og fjölgar hraðar en öðrum Evr-
ópubúum, þar sem þeir eiga að jafnaði
mun fleiri börn en aðrir Evrópubúar. Er
þetta ógn fyrir hina kristnu Evrópu? Að
mínu matí, já! Ef við trúum því að Jesús
Kristur sé vegurinn, sannleikurinn og
lífið, þá eru bæði önnur trúarbrögð og
guðleysi ógn. Ef kristnum mönnum er í
mun að allir menn þekki Jesú Krist og
séu á valdi hans, þá blasirvið okkur bar-
átta. Skeytingarleysi er líklega mesta
ógnin. Kristíð fólk sem er skeytingar-
laust um stöðu kristinnar trúar í eigin
landi er jafnframt skeytingarlaust um
stöðu kristínnar trúar í öðrum löndum.
Skeytingarleysið skapar tómarúm sem
verður fyllt af öðrum, sem brenna fyrir
sínum lífsviðhorfum. En hvað með
umburðarlyndið? Eigum við ekki að
vera umburðarlynd? Jú, það eigum við
að vera, en umburðarlyndi á ekki að
þagga niður í fólki með ólíkar skoðanir.
Umburðarlyndi er m.a. fólgið í því að
málfrelsi sé virt. Okkur ber að umbera
fólk og sýna því virðingu og kærleika,
en okkur ber að vinna gegn viðhorfum
sem ógna kristinni trú af heiðarleika en
ákveðni.
Orðið stríð minnir á blóðug átök.
Þess vegna er mörgum illa við að nota
það um andleg átök, átök um lífsvið-
horf. En stríð er það engu að síður, þótt
ekki sé úthellt blóði.
Það er því mikilvægt að kristið fólk
vígbúist, taki á sig alvæpni Guðs og
tali við andstæðinginn á kristnesku,
tungumáli kærleikans. Sem aldrei fyrr
er brýnt að kristíð fólk standi saman og
látí' að sér kveða innan kirkju og safn-
aða og utan, í þjóðfélagsumræðunni
og reyndar hvar sem er á opinberum
vettvangi.
Ég lýk þessum hugleiðingum
mínum á tilvitnun í einn af söngvum sr.
Friðriks:
Sigrandi og til sigurfara,
sigurhetjan fer um storð.
Til að mölva myrkrahliðin,
máttugt á hann sigurorð.
Hann er krýndur sigursveigum
- sólin bliknar í hans glans. -
Fetum í hans fótspor glaðir,
frelsi og líf svo öðlumst hans.
31