Bjarmi - 01.12.2010, Side 34
KATRÍN GUÐLAUGSDÓTTIR
Ævintýrið hófst fyrir 5 árum þegar haft var samband
við KSF (Kristilegt stúdentafélag) í leit að læknanemum
sem hefðu áhuga á að koma til Noregs á kristilega ráðstefnu
fyrir læknanema. Ég greip tækifærið og þá var ekki aftur
snúið því ég fór ekki bara til Noregs á slíka ráðstefnu heldur
einnig til Englands, Austurríkis og nú síðast til Úrúgvæs
á alþjóðasráðstefnu ICMDA (International Christian Medical
and Dental Association) og þetta er aðeins byrjunin.
HVAÐ ERICMDA?
ICMDA stendur fyrir International
Christian Medical and Dental Asso-
ciation og eru regnhlífarsamtök kristi-
legra hópa/samtaka á meðal lækna og
læknanema úti um allan heim.
ÆVINTÝRALEG FERÐ
TIL S-AMERÍKU
Ferðin hófst með fimm flugferðum á
tveimur sólarhringum. Það má segja
að ég hafi farið í eins konar heims-
reisu á þessum tveimur dögum og náði
ég að kynnast nokkuð mörgum flug-
völlum á þessum stutta tíma. Þegar
komið var til Montevideo í Úrúgvæ
var haldið með rútu til Punta Del Este
þar sem alþjóðaráðstefnan var haldin.
Ég var ekki fyrr komin inn um dyrnar
á hótelinu þegar ég mætti um 10
vinum mínum sem ég kynntist á fyrri
ráðstefnum. Við féllumst í faðma og
spjölluðum fram á kvöld.
Ráðstefnan stóð í sjö daga þar
sem fyrri hluti hennar var miðaður
við stúdenta og unglækna. Síðari hluti
ráðstefnunnar var svo fyrir alla, jafnt
unga sem aldna sem og sérfræðinga.
Yfirskrift ráðstefnunnar var „Forgangs-
röðun í faglegu starfi. Fyrir hvern starf-
arðu?" Á morgnana voru biblíulestrar
og eftir hádegið voru ótal fyrirlestrar
sem hægt var að velja um. Þar var
fjallað um læknisstarfið, kristniboð,
siðfræðileg álitamál við upphaf og
endalok lífs, starf meðal stúdenta, og
margt fleira. Á kvöldin voru svo mis-
munandi uppákomur eins og skemmti-
kvöld, lofgjörðarkvöld og alþjóðlegt
kvöld. Á milli dagskrárliða gafst góður
tími til að kynnast fólki alls staðar að
úr heiminum og mynda vinabönd og
tengsl. Ég fór til að mynda með ólíkum
hópum út að borða, horfði á FIM í fót-
bolta á stórum skjá í ráðstefnusal, við
skemmtum okkur í karókí eitt kvöld en
sátum og spjölluðum önnur. Vikan var
full af fjöri og bæði trúarlegri og fag-
legri uppbyggingu sem ég tek með mér
út í kandídatsárið. Þrjú orð standa sér-
staklega upp úr eftir þessa ráðstefnu:
34