Bjarmi - 01.12.2010, Blaðsíða 35
International Christian Medical and Dental Association
Dr. David Stevens starfaði um árabil sem kristniboðslæknir m.a. í Súdan.
Hann var með biblíulestra á hverjum morgni
„Köllun - Heilindi - Þjónslund". Ég
vona svo sannarlega að þessi orð eigi
eftir að skína í gegnum starf mitt sem
læknir og bið þess að Guð noti mig þar
sem ég er hverju sinni.
Þó ráðstefnunni hafi lokið var
ævintýrið mitt í S-Ameríku ekki á enda.
Fimmtán vinir mínir höfðu ásamt mér
skipulagt ferð til Ríó í Brasílíu eftir
ráðstefnuna. Þetta var mjög alþjóð-
legur hópur, enda frá 10 mismunandi
löndum. Við skoðuðum Ríó borg og
sáum þar gríðarlegar andstæður í
afgirtum fátækrahverfum andspænis
glæsilegri borgarhlutum. Við borð-
uðum góðan mat, nutum sólarinnar á
ströndinni og fengum svo nokkra daga
með nánast stanslausri rigningu. Þetta
var stórskemmtilegur tími þar sem
vináttuböndin styrktust og hlökkum
við til að hittast aftur annars staðar
í heiminum. Stefnan er þegar sett á
heimsráðstefnu ICMDA í Rotterdam í
Hollandi, árið 2014.
TENGSLANET OG TÆKIFÆRI
Það dýrmætasta sem ég hef eignast
við kynni mín af ICMDA eru vinir sem
standa í nákvæmlega sömu sporum og
ég og vilja þjóna Guði með lífi sínu sem
læknar. Hér hef ég eignast vini sem
eru á mismunandi stigum læknaferils-
ins, allt frá læknanemum til sérfræð-
inga. Það er ómetanlegt að geta rætt
læknisfræðileg og siðfræðileg málefni
sem við mætum daglega í starfi okkar
og finna stuðning eða leita hans hvert
hjá öðru. Þetta er tengslanet sem er
engu líkt og nær út um allan heim. Ég
hef ekki aðeins eignast góða vini og
fyrirmyndir heldur hafa mér boðist
ótrúleg tækifæri sem ég hefði annars
aldrei fengið. Dæmi um þetta er ferð
sem ég fór til Líbanons sumarið 2009.
Vinur minn, Ralph Zarazir, er kjálka-
skurðlæknir frá Líbanon sem ég hitti
fyrst á ráðstefnu ICMDA í Austurríki
fyrir um tveimur árum. Að ráðstefn-
unni liðinni hafði hann samband við
mig og nokkra aðra sem hann hitti
þar og bauð okkur að koma til Líb-
anons í 4-5 vikur til að vinna sem
sjálfboðaliðar á leikjanámskeiði sem
hann hafði komið á fót. Markmiðið var
íþróttir voru vinsælar meðal eldri barnanna og þó sérstaklega fótbolti. (Líbanon)
35