Bjarmi - 01.12.2010, Síða 37
PAUL JOHANNSSON OG ELIN ELLERTSDOTTIR
Myndir: Passionplay Oberammergau 2010/ Myndir: Brigitte Maria Mayer.
Allar myndirnar sýna atriði úr Passion Play 2010.
Ferð til Oberammegau, The Passion Play Village,
8., 9. og 10. sept. 2010, á Píslarsögu Krists.
Á tíu ára fresti er þorpið Oberam-
mergau í Suður-Þýskalandi undirlagt
vegna stórfenglegrar leiksýningar sem
rekur píslarsögu Jesú. Nokkrir íslend-
ingar hafa heimsótt staðinn af þessu
tilefni, bæði nú í ár og áður fyrr, og
þar á meðal hjónin Elín Ellertsdóttir og
Paul Jóhannsson sem leyfa lesendum
Bjarma að skyggnast inn í ferð þeirra
og reynslu:
Þetta var þriðja ferð okkar hjónanna
þangað að sjá þetta stórfenglega leik-
verk. Farið var frá Dresden með lest
til Oberammergau gegnum Nurnberg,
Munchen og Murnau, ferð sem tekur
tæpar 9 klukkustundir.
Oberammergau er lítill bær í Ölpunum,
suðvestan við Múnchen, bærinn er í
835 metra hæð yfir sjávarmáli. Nán-
ast hvert einasta hús er myndskreytt á
einhvern hátt, sem er alveg ótrúlegt að
sjá! Og ekki er hægt að sjá að það vanti
viðhald á þeim neins staðar! Um 30%
íbúanna lifa á alls konar tréútskurði og
ýmsum öðrum listrænum verkum eins
og úr postulíni, vaxi og svo málverkum
og hafa gert þetta síðan um miðja 17.
öld.
TILHÖGUN OG KOSTNAÐUR
Við pöntuðum ferðina í gegnum enskt
fyrirtæki, Dertour, www.dertour.
co.uk, og fengum góða þjónustu þar.
Heildarkostnaðurinn í gegnum þá
var 765 pund, eða um 136 000,- kr. á
núverandi gengi. Svo bætist náttúru-
lega ferðakostnaðurinn við. Ekki má
panta meira en 6 miða fyrir hvern hóp.
Fleiri upplýsingar var að fá á www.
passionspiele2010.de.
Píslarsagan þetta ár er sú 41. frá
1634 en þá varð hún til vegna Svarta-
dauðaplágunar, sem gekk yfir þar árið
1632. Hún hefur sem sagt verið haldin
í 376 ár, en hún á sér stað á um það
bil 10 ára fresti. Þegar plágan gekk yfir,
lofuðu íbúarnir Drottni að halda þessa
háti'ð ef hann léti pláguna fara framhjá
þeim. Drottinn bænheyrði þá og bær-
inn slapp alveg við hana eftir það.
Leikurinn er sýndur í 102 daga,
byrjar 15. maí og endar 3. október.
Hann tekur rúmlega fimm klukku-
stundir en það er þriggja tíma hlé frá
um 17:00 til 20:00 og leikurinn er svo
búinn upp úr kl. 23.
Að leiknum koma um 2000 manns
og á leiksviðinu eru um 800 hverju
sinni, allt bæjarbúar, engir aðrir mega
taka þátt í þessu.
MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER
Farið stundvíslega kl. 11:44. Lestin
stoppaði á 19 stöðum á leiðinni, en
ferðin til Núrnþerg tók um 4 % klst.
Farið var með annarri lest frá Mún-
chen til Murnau og svo áfram til
Oberammergau. Þangað komum við
um klukkan hálfníu að kvöldi. Þaðan
tókum við bíl til Gastehaus Ethiko, í
Ettal, um 6 km sunnan við Oberam-
37