Bjarmi - 01.12.2010, Qupperneq 38
Jesús kemur til Jerúsalem.
mergau. Við fengum herbergi og gögn
um uppákomuna, svo sótti bíll okkur
í kvöldverð sem var í Bluo Gams,
skammt frá gistiheimilinu. Þar hittum
við hjón frá Bandaríkjunum. Bílstjórinn
keyrði okkur svo heim á hótelið. Hann
sagði okkur að það hefði rignt allan
maí, júní, júlí, ágústog það sem afværi
september!
FIMMTUDAGUR 9. SEPTEMBER
Þá var komið fínt veður! Við fórum á
fætur um áttaleytið til að að borða
og fórum síðan í bæinn að skoða hvar
Píslarsagan átti að vera. Gengið er inn
frá fimm dyrum, sínum á hvorri hlið
hússins og tveimur í gafli þess. Það
ræðst af því, hvar keyptu sætin eru
staðsett, en um fjóra möguleika er að
ræða og er verðið eftir því, frá 49,50
upp í 165 evrur. Ekkert er selt í húsinu
annað en aðgangur að leikritinu. Leik-
skrá er bæði á þýsku og ensku í sömu
bókinni, sitt hvorum megin. Að þessari
könnun lokinni borðuðum við hádeg-
isverð á Ammergau Hause, og fórum
svo á leikritið. Það byrjaði kl. 14:30 en
við þurftum að vera komin inn vel fyrir
þann tíma. Salurinn var alveg fullur en
húsið var byggt árið 1900 fyrir 4000
manns. Það var síðan endurbyggt og
stækkað árið 1930, og svo aftur árið
2000, og tekur núna 4720 manns.
Þetta er talið vera eitt stærsta útiieik-
hús í heiminum. Fyrri hlutanum lauk
klukkan rúmlega fimm. Eftir matarhlé
fórum við á Oberammergau Museum,
mjög fi'nt sögulegt safn um bæinn, en
það var innifalið í aðgöngumiðanum
frá ferðaskrifstofunni. Svo lá leiðin
aftur á leikritið sem byrjaði kl. 20:00
og lauk kl. rúmlega 23. Það verður ekki
annað sagt en að þetta er gríðarlega
sterkt leikrit! Ég keypti viðbótareintak
af leikskránni í hléinu, notaði hana
eins og sessunautar okkar gerðu með
„pínuvasaljósi". Einnig kom sér mjög
vel að hafa kíkinn með líka til að sjá
38