Bjarmi - 01.12.2010, Blaðsíða 39
betur sviðið. Þetta er eiginlega alveg
nauðsynlegt því það er enginn texta-
skjár. Sýningarhúsið er opið að ofan
þar sem leikurinn fer fram og sætin
óþægileg til setu svona lengi í einu. Og
varla er hægt að ganga framhjá sitj-
anda þótt hann standi upp. Full þörf
er á að taka með sér sessur og teppi
yfir hnén ef það gustar inn í húsið en
einnig er hægt að fá þetta lánað þarna.
Hljómgæðin eru mjög mikil. Leik-
atriðin, hljómlistin og söngurinn voru
oft mjög sterk. Börn voru önnum kafin,
mörg dýr á sviðinu, m.a. úlfaldar og
svo eru þarna eldingar með öllu! Þetta
er gríðarlega sterk og skilmerkileg lýs-
ing á lífi Jesú og allt annað að sjá þetta
leikið en að heyra sagt frá því. Rétt-
arhöldin yfir honum eru mjög minn-
isstæð fyrir hvað þau einkenndust af
því sem við köllum í dag einelti!
Það er ekki hægt að hugsa sér
sterkari upplifun á lífi Jesú en að sjá
það leikið á sviði, í tveimur orðum
sagt: Alvegstórkostlegt! Leikritið hefur
líka mjög sterk trúarleg áhrif, og hrein
andleg endurnýjun ef svo má að orði
komast. Við ætlum að gera þetta aftur
næst, held ég! Aðeins tíu ár þangað til.
Við komum heim á gistihúsið um
miðnætti og vorum fegin að dýrð-
arveður hafði verið allan daginn og á
miðnætti var átta stiga hiti. Við upp-
götvuðum of seint að það eru kláfar
sem fara um fjöllin þarna! Svo það voru
allar ástæður til þess að vera þarna
lengur en bara til að horfa á leikritið.
FÖSTUDAGUR10. SEPTEMBER
Við fórum á fætur um klukkan átta,
borðuðum morgunverð og kvöddum
um tíu Píslarsögufélaga sem höfðu
gist á sama stað. Síðan pökkuðum
við og kvöddum hótelstýruna. Enginn
viðbótarkostnaður var og rútan sem
við tókum niður á járnbrautastöðin
kostaði heldur ekkert. Þar fengum við
að geyma báðar töskurnar okkar hjá
konu á bensínstöðinni AGIP því engin
þjónustubygging var á staðnum. Við
fórum svo á flæking eða göngutúr upp
með Ammer ánni. Við komumst að
því að orðið ammer þýðir víst vatn og
gau svæði svo staðurinn er kenndur
við vatnasvæði. Við skoðuðum hand-
verkasafnið í Pontiusar Pilatusar hús-
inu frá 1784. Það vakti gríðarlega
athygli og vel að öllu staðið eins og
er með öll söfnin þarna. Við sóttum
svo töskurnar, keyptum okkur íspinna
og biðum eftir að lestin færi. Skipt
var um lest í Murnau, og svo í Mun-
chen, vorum þaðan á fyrsta farrými og
nutum hins gríðarlega fallega útsýnis í
dýrðarveðri alla leiðina til Frankfurth
(am Oder), austan við Berlin. Eftir sex
tíma lestarferð komumst við á hótelið
þar.
LAUGARDAGUR11. SEPTEMBER
Þennan dag var dýrðarveður, um 20
gráða hiti. Eftir morgunmat gerðum
við upp og héldum með rútu hótelsins
út á flugvöll. Við komum ti'manlega út
á flugvöll, en hann er eitt flóknasta
fyrirbæri sem ég hef nokkurn tíma
kynnst.
Við lentum síðan í Keflavík um hálf-
fjögur, ánægð með einstaklega vel
heppnaða ferð og stórkostlega reynslu
sem við hefðum ekki viljað missa af. Við
vorum andlega endurnærð og styrkari
í trúnni á frelsarann Jesú Krist sem gaf
sjálfan sig í sölurnar okkar vegna.
Jesús frammi fyrir Pontíusi Pílatusi
39