Bjarmi - 01.12.2010, Side 41
trúar, eftirfylgdar og heilags lífs. Kirkja
Guðs, fólkið sem trúir á Jesú Krist,
hefur eitt hlutverk ofar öðrum, þ.e. að
boða fagnaðarerindið um Guðs ríki í
orði og verki. „Því að það var Guð sem
í Kristi sætti heiminn við sig... og fól
okkur að boða orð sáttargjörðarinnarffl
(2. Kor 5.19), en þessi orð voru yfir-
skrift ráðstefnunnar í Höfðaborg.
Sérhver dagur ráðstefnunnar hafði
sitt þema auk biblíulestra á morgn-
ana, sem byggðu á Efesusbréfi. Þemu
daganna voru þessi: Sannleikur, sátt-
argjörð, trúarbrögð heimsins, for-
gangsröðun, heilindi og samstarf. Alla
morgna sátu þátttakendur við borðið
sitt, en alls 770 borð voru í salnum.
Þar voru ýmis mál rædd, skipst á við-
brögðum um biblíulestur morgunsins
og fólk bað saman. Flestir þátttakenda
voru afar ánægðir með þessa tilhögun.
Dagskráin hófst að morgni kl. 8:30
og lauk yfirleitt um kl. 22 á kvöldin. Þó
var alltaf einhver dagskrá í boði til kl.
23. Einn dag, um miðja ráðstefnuna
var þó frí sem var vel þegið. Hápunkt-
urinn var síðasta kvöldið þegar allir
tóku þátt í messu sem var annars
vegar mjög hefðbundin og hins vegar
mjög frjálsleg og nútímaleg. Mun sú
tilbeiðsla seint gleymast. Þetta var for-
smekkur að himninum svo vitnað sé í
orð Doug Birdsall, formanns undirbún-
ingsnefndar ráðstefnunnar.
Á ráðstefnunni vorum við minnt
á margt sem snertir samb'mann og
framtíðina. Hvert kvöld var helgað
ákveðnum heimshluta og fengum
við innsýn í stöðu kirkju, kristni og
kristniboðs á hverju svæði heimsins
fyrir sig undir yfirskriftinni: Guð er að
verki (God is on the move). En að öðru
leyti voru eftirtalin atriði, verkefnin
framundan, á dagskrá og við minnt á
að hlutverki okkar væri engan veginn
lokið:
STÆRSTU TRÚARBRÖGÐ HEIMS
86% múslima, hindúa og búddista
heimsins þekkja ekki persónulega
neinn sem fylgir Jesú Kristi. Þetta er ein
af staðreyndum lífsins sem blasir við
okkur og minnir okkur á að við eigum
margt eftir ógert þegar kemur að
boðun trúarinnar. Fjöldi fólks sem býr
í Norður-Afríku, Mið-Austurlöndum
og Asíu hefur aldrei heyrt fagnaðar-
erindið boðað beint af vörum fólks
eða af samfélagi fólks sem þekkir Jesú.
Einn þriðji hluti jarðarbúa er þannig án
aðgangs að lifandi vitnisburði um fagn-
aðarerindið og hefur ekki tækifæri til
að eignast hlutdeild í því. Við vitum
einnig að margir í þessum heimshluta
eru opnir fyrir fagnaðarerindinu. Við
heyrðum sögur um fólk sem Jesús
hefur birst í draumum og sýnum. Fagn-
aðarerindið berst einnig mörgum með
hjálp útvarps og sjónvarps. Má þar
nefna NOREA og Trans World Radio og
sjónvarpsstöðina SAT 7, sem Kristni-
boðssambandið styður. En samt sem
áður fækkar kristnu fólki í Mið-Austur-
löndum. Aðalástæðan er ofsóknir.
Auglýst var eftir nýjum aðferðum og
tækifærum til að segja múslimum frá
Jesú.
Talið er að á næstu 20 árum muni
kristnu fólki fjölga úr 33 í 34% og
múslimum úr 21% í 25%. Sú breyt-
ing verður á samsetningu kristinna
41