Bjarmi - 01.12.2010, Page 42
að evangelískum fjölgar úr 7 í 14% en
hinum fækkar. Þetta getur kallað á vax-
andi spennu, einkum milli evangelískra
manna og múslima.
HIN OFSÓTTA KIRKJA
Það sem snerti mig dýpst — og það átti
við um marga — var að komast nær
hinni ofsóttu kirkju. Á ráðstefnunni var
fólk sem vitnaði um baráttu sína vegna
ofsókna á hendur því. Það steig fram
með djörfung og æðruleysi og vitnaði
um trú sína og hve mikilvægur Jesús er
þeim. Við máttum ekki taka myndir af
þeim né nefna nöfn þeirra. Sum voru
með nafnspjöld sem á voru dulnefni.
í þessum hópi er fólk sem ferðast um
og fer til annarra landa eða land-
svæða til að bera frelsara sínum vitni.
Þannig kynntist ég ungri konu sem sat
við borðið mitt. Hún notar líf sitt til að
kenna fólki sögurnar um Jesú svo það
sjálft geti verið lifandi Biblía og miðlað
áfram boðskapnum um kærleika
Guðs, fyrirgefningu og eilíft líf í Jesú
Kristi. Þessi unga kona hættir lífi sínu
en veit um leið hvað hún vill. Önnur
ung kona, aðeins átján ára stefnir á
að fara til gamla heimalandsins síns,
Norður-Kóreu, til að segja frá Jesú.
Þetta gerir hún þrátt fyrir að pabbi
hennar hafi sjálfur verið hnepptur í
varðhald í nágrannalandinu og sendur
heim fyrir sex árum. Þar var hann í
varðhaldi í þrjú ár en trúlega tekinn af
lífi eftir það. Kristið fólk er myrt, því er
misþyrmt og mismunað, það er fang-
elsað, hneppt í þrældóm, því ógnað og
það beitt ofbeldi. Margir kristniboðar
hætta lífi sínu. Því kynntumst við
einnig í frásögu Libby Little. Hún og
maður hennar höfðu, þar til í sumar,
búið lengi í Kabúl í Afganistan. Boðun
trúarinnareróheimil en þau vildu samt
vera í landinu og þjóna fólkinu, lifa þar
sem hendur og fætur Jesú, þó svo að
þau mættu ekki vera munnur hans. Tíu
manna hópur fór í langferð og þurfti
að fara í erfiða fjallgöngu til að hjálpa
fólki með heilsugæslu á einangruðum
stað í byrjun ágúst sl. Á leiðinni heim
voru þau öll myrt. En það var ekki eft-
irsjá í Libby. Hún sagði að þetta hafi
alltaf verið yfirvofandi, alltaf ákveðið
öryggisleysi sem þau bjuggu við. Þau
höfðu rætt sín á milli um kostnaðinn.
Einhverjir höfðu komist að því að þau
væru þarna í nafni Jesú Krists og bundu
því endi á það.
ÞJÓÐIR OG ÞJÓÐARBROT
SEM ENN HAFA EKKITEKIÐ
VIÐ FAGNAÐARERINDINU
Á ráðstefnunni var afhent yfirlit yfir
632 þjóðir og þjóðarbrot þar sem
innan við 2% eru kristnir. Oft er miðað
við 2% þegar talað er um að enn eigi
eftir að ná tíl ákveðins hóps, því það
er talið vera það lágmark sem þarf tíl
að hafa áhrif á þjóðina. Sumir segja að
talan þurfi að vera hærri.
Flest þessara þjóðarbrota eru í
Asíu. Á Indlandi eru 2200 þjóðflokkar
og þjóðarbrot sem þekkja ekki tíl fagn-
aðarerindisins. í Kína, Bangladesh,
Pakistan og Nepal og annars staðar
í hinum svonefnda 10/40 glugga
(breiddargráður á norðurhveli jarðar)
er fjöldi þjóðflokka sem hefur ekki
heyrt og tekið við boðskapnum um
Jesú. í skrá um heiminn er listí yfir
tæplega 7000 þjóðarbrot, sem mörg
hafa flutt frá heimalandi sínu, og
þekkja ekki fagnaðarerindið. í lista
sem birtur er á www.ioshuaproiect.
net og www.FinishingTheTask.com
er fólk af 11 þjóðum og þjóðarbrotum
skráð á íslandi, eitt frá norðausturhluta
Tælands . Kristniboðsakur á íslandi.
42
Noel Foutz