Bjarmi - 01.12.2010, Page 43
BORGIR, FÓLKSFLUTNINGAR
(HELMINGUR í STÓRBORGUM
ÁRIÐ 2030), FÁTÆKRAHVERFI
Liðin öld einkenndist af miklum fólks-
flutningum, bæði milli landa og heims-
álfa og ekki síst innan landa þar sem
fólk flykktist úr sveitum í borgir í leit
að atvinnu og þægilegra lífi. Fyrir
100 árum bjuggu um 3% íbúa jarðar
í stórborgum, nú eru það um 50% og
allt útlit er fyrir að hlutfallið aukist á
næstu árum og áratugum. Þarna er því
einn stærsti kristniboðsakur framtíð-
arinnar. í borgunum er menningarleg
fjölbreytni og ný tækifæri til boðunar
þrátt fyrir veraldarhyggju, guðleysi,
afstæðishyggju og alþjóðavæðingu.
BÖRNIN OG UNGUNGARNIR
— SEM ÞEKKJA EKKIJESÚ
Sjónum okkar var einnig beint að ungu
kynslóðinni en þriðjungur mannkyns er
undir 15 ára aldri. Það eru rúmir tveir
milljarðar og helmingur þeirra lifir í
sárri fátækt. Helmingur alls mannkyns
er undir 25 ára aldri. Þessi staðreynd
minnir okkur á mikilvægi þess að vinna
hverja kynslóð til trúar á Jesú. Án þess
mun uppvaxandi kynslóð ekki læra að
þekkja Jesú Krist sem frelsara sinn.
Ungt fólk er að mörgu leyti í hættu,
oft afskipt, vanmetið og ruglað í rím-
inu. Þessi hópur er í mikilli þörf fyrir að
upplifa og skilja kærleika Guðs í Jesú
Kristi.
FÉLAGSLEGT RÉTTLÆTI
Kristniboð snertir alltaf manninn allan
og þær aðstæður sem hann býr við.
Oft hefur verið spurt hversu ráðandi
barátta fyrir félagslegu réttlæti eigi að
vera innan Lausanne-hreyfingarinnar
en hún kom upphaflega frá evang-
elískum kirkjum í Rómönsku Ameríku.
Á ráðstefnunni í Höfðaborg fengum
við innsýn í kjör fólks um víða veröld
og hvað kirkja Jesú Krists gerir til að
vinna gegn mansali og þrælkun, fátækt
og hungri, spillingu og mismunun sem
og öðru óréttlæti. Við fengum að sjá
hvernig kirkjan annast HIV smitaða og
munaðarlaus börn, hvernig unnið er
að umhverfis- og loftslagsmálum og
þannig má áfram telja. Boðun fagnað-
arerindisins hefur alltaf og mun áfram
vera sinnt samfara margvíslegri kær-
leiksþjónustu. Við vorum minnt á að
láta ekki deigan síga í því efni, hvorki
nær né fjær. Richard Stearns, höfundur
bókarinnar Gatið í fagnaðarerindinu
okkar (The Hole In Our Gospel) benti
okkur, ásamt öðrum, á mikilvægi þess
að ganga veg kærleikans.
BIBUUFÁTÆKT, BIBUUÞÝÐINGAR
OG FRÁSÖGUR BIBUUNNAR
Undanfarna áratugi hafa menn æ
betur gert sér grein fyrir því að margir
eru ólæsir á frásögur og boðskap
Biblíunnar. Ólæsi er mikið í heiminum
og jafnvel svo að sumt fólk sem sagt er
læst er illa læst eða ólæst. Margir hafa
hætt námi og ekki fengið neina örvun.
Aðrir þurfa að læra að lesa eða kunna
bara að lesa annað tungumál en sitt
eigið. Enn er ekki til ritmál fyrir mörg
tungumál heims. Biblían hefur aðeins
verið þýdd á hluta þeirra tungumála
sem til eru. í því sambandi er talað um
ritningarfátækt. 2252 þjóðir og þjóð-
arbrot hafa enn ekki aðgang að Heil-
agri ritningu eða hlutum hennar á eigin
tungumáli. Hvað er þá til ráða?
Svarið er, að byggja á þeirri menn-
ingu og hefð sem fólk þekkir, munn-
mælahefðinni. Fólk lærir sögur Biblí-
unnar utanbókar og þjálfar aðra í að
vera biblíusögufólk eða biblíuþulir.
Fyrir bragðið verða til margar lifandi
Biblíur, sem ganga um og tala. Boðun-
43
James Krabill