Bjarmi - 01.12.2010, Side 44
arstarfið er unnið á þeim forsendum
sem fólk er vant og þekkir. Þar með
verður smám saman tryggt að allir fái
aðgang að fagnaðarerindinu og geti
brugðist við því. Jesús dó fyrir alla. Þar
á meðal er fólk munnmælahefðar, það
sem ekki kann að lesa. í þeirra menn-
ingu er ekki sama lestrarhefð og hjá
okkur, heldur frásöguhefð, að heyra
sögur sagðar. Fólk þarf að geta brugð-
ist við á sínum forsendum.
HEIUNDI
Einn dagur ráðstefnunnar hafði heil-
indi sem yfirskrift. Reyndar var það
ákveðinn undirtónn í mörgu sem kom
fram, hvort sem það var áminning til
værukærra Vesturlandabúa eða spurn-
ing um líf og dauða þeirra sem hætta
lífi sínu vegna fagnaðarerindisins.
Heilindi snúast um að við séum
samkvæm sjálfum okkur og trúverð-
ugir eftirfylgjendur Jesú Krists í dag-
legu lífi okkar, framkomu og því sem
við segjum eða sendum frá okkur.
Hið sama á við um kristniboðssamtök
og kirkjur. Þar vorum við m.a. spurð
hvernig við kynntum starf okkar, væru
allar tölur réttar og sannar? Ákveðið
uppgjör var við einhæfa áherslu svo-
nefndrar velgengniguðfræði þar sem
áhersla er á fjárhagslegri velgengni,
án þess þó að hafna því að Guð vilji
gjarnan blessa okkur. Kallað var eftir
guðfræði blessunar í stað guðfræði
velgengni, þar sem áhersla er á and-
legt líf og samfélag okkar við Guð. Við
vorum minnt á að við erum Guðs, við
erum hans. (HIS, sem stendur fyrir
Honesty (heiðarleika), Integrity (Heil-
indi) og Simplicity (einfaldleika).
SAMSTARF
Síðasta dag ráðstefnunnar var hvatt til
aukins samstarfs þvert á kirkjudeildir
og kristniboðssamtök. Þær tvær ráð-
stefnur sem áður voru haldnar ýttu
undir og hvöttu til aukins samstarfs og
var það sannfæring þeirra sem undir-
bjuggu þessa að hún myndi bera þann
ávöxt. Þátttakendur voru hvattir til að
mynda ný tengsl og fylgja þeim eftir
þegar heim kæmi. Dagskrá ráðstefn-
unnar gaf okkur góða yfirsýn yfir það
sem gert er víða um heim og hvatt var
til þess að menn færu ekki að endur-
taka það sem aðrir væru búnir að gera
eða vera í samkeppni, heldur miklu
frekar vinna saman.
LOKAORÐ
Kirkja Jesú Krists er ein og köllun allrar
kirkjunnar er að fara með allt fagnað-
arerindið til alls mannkyns. Við erum
kölluð, við getum ekki vænst þess að
aðrir fari með boðin, kallið kemur til
okkar. Verum trú og tilbúin að feta
nýjar slóðir svo fleiri fái að kynnast
Jesú Kristi ogtaki við honum sem frels-
ara sínum. Drottinn þarf á okkur að
halda. Hann hefur heitið því að vera
með og gefa okkur kraftinn sem við
þurfum. Kirkjan á sér aðeins framtíð ef
hún er boðandi kirkja.
Mikið af dagskrá ráðstefnunnar
er aðgengilegt á www.lausanne.
org/cape-town-2010 og verður þar
aðgengilegt í 18 mánuði frá ráðstefn-
unni. Þar er margt gott efni í boði sem
einstaklingar, kirkjur, stofnannir og
samtök geta nýtt sér í starfi sínu.
44
Frank Oosthuizen