Bjarmi - 01.12.2010, Side 46
Viltu koma góðu kristilegu lesefni, tónlist eða myndefni á framfæri?
Ýmislegt gott kristilegt efni, bækur, mynddiskar, tónlist og fleira ergefið út ár hverthér á
landi og er mikið fagnaðarefni. Ritnefnd Bjarma nær þó ekki, þrátt fyrir góðan ásetning,
að hafa yfirlit þess alls en vill gjarnan kynna gott efni. Við hvetjum útgefendur til að sýna
frumkvæði og senda okkur upplýsingar og eintak afþví sem kynna á og eins hvort óskað
er eftir að umfangsmeiri umfjöllun en kynningu (ritdómi, viðtali eða öðru).
Út er k<£Jfn\n Ijóðabókin Nánd eftir Ragnhildi Ásgeirsdóttur djákna. I bókinni eru frumort
Ijóð höfundar um lífið og tilveruna, trúna og Guð. Á kápu segir: „Ferskur skáldskapur,
hvort sem litið er til fortíðar eða framtíðar. Tilfinning kvæðanna djúp og sánnfærandi,
málfarið traust og tónninn persónulegur," segir Kristján Karlsson bókmenntafræðingur
og skáld á bókarkápu. Bókin er 48 blaðsíður og útgefandi Gunnar Haukur Ingimund-
arson.
Nánd
Ragnhildur Ásgeirsdóttir
Bókaútgáfan Tihdí/r hefur sént frá sér bókina Áef fyrir lífið í þýðingu Péturs Björgvins
Þorsteinssonar djákna. I bókinni eru 40 hugleiðingar og er hugsuð þannig að hún sé
lesin á jafnmörgum dögum og að lesendur skrái niður eigin reynslu í lok hvers dags til
þess að styrkja ástina og hjónabandið. Bókin er tæki til að mýkja hjörtun með því að
styrkja ástina svo að hún brenni ekki upp í logum ótta, hroka og freistinga. Ástin fyrir
lífið auðgar bæði og styrkir hjónabandið, kallar aftur á ástina sem horfin er og byggir á
kristnum grunni og speki þess sem talaði ekki aðeins um kærleika sem fórnar heldur lifði
í takt við hann allt til enda.
Ekki er sjálfgefið að ástin lifi og sambandið haldist. Margt vinnur gegn góðu hjónabandi
og þess vegna þurfum við að vera vakandi og varðveita það sem okkur er gefið. í bók-
inni er fjallað um þætti sem geta auðveldlega eyðilagt hjónabandið og má þar nefna
bæði spilafíkn og klámfikn. Einnig erfjallað um muninn á samningi og sáttmála og bent
á hvað Guð hafði í huga. Fólki er hjálpað til að vinna úr ágreiningi og sýna hvort öðru
virðingu. Einnig er lesandinn hvattur til að láta ekki hjartað stjórna heldur að stjórna
sjálfur hjartanu, þ.e. að elska þegar hvatvísi okkar segir okkur að gera annað.
Gotterað fá bóksem þessa ísafn góðra hjónabandsbóka sem byggja á kristnum grunni.
2011
Lykilorð vfrir komandi ár, 2011 eru nú komin út. Þetta er í fimmta sinn sem þessi hand-
gengna og einfalda bók er gefin út á íslensku en kemur jafnframt út í 280 sinn í Þýska-
landi og í ár er bókin gefin út á 50 tungumálum. Fyrir hvern dag ársins er ritningarstaður
og bænarorð, Ijóð eða sálmur. Bókin er í handhægu broti og auðvelt að taka hana með
sér hvert sem er. Útqefandi er Lífsmótun.
F.h. ritnefndar Bjarma, Ragnar Gunnarsson ritstjóri