Bjarmi - 01.09.2013, Blaðsíða 31
„SINU VERRAVAR
EINELTIVANHÆFU
SIÐANEFNDARINNAR
ÞAR SEM
MANNRÉTTINDI
MÍN VORU FÓTUM
TROÐIN"
en að þau væru sótt úr eldri grein sem
ég hafði skrifað um þessi viðhorf. Ég
viðurkenni það hins vegar fúslega að ég
fel skipta máli hvernig menn haga trúar-
bragðagagnrýni sinni og sé nauðsynlegt
að taka þar mið af reynslu sögunnar. í
greininni þaðan sem atriðin af glærunni
eru sótt segi ég í beinu framhaldi að
varast beri „að alhæfa um guðleysingja
út frá herskáum trúboðssinnuðum bók-
stafstrúarhreyflngum sem kenna sig við
guðleysi. Eins og í öllum trúarbrögðum
er til fjöldi hófsamra og málefnalegra
guðleysingja sem hafa margttil málanna
að leggja og láta gott af sér leiða, hvort
heldur sem þeir halda viðhorfum sínum
út af fyrir sig eða koma á fót samtökum
í tengslum við þau. Á íslandi er f jöldi mál-
efnalegra guðleysingja og efahyggju-
manna sem eiga fullt erindi í umræður
um trúmál." Þetta var mitt viðhorf og svo
er enn.
Hwinig Inciit þú vicL þaja.1
jaú vrnit lceexcLun?
Fyrstu viðbrögð mín þegar deildarforseti
tilkynnti mér um kæruna var að hlæja því
að ekkert sem ég sagði eða gerði i nám-
skeiðinu gaf tilefni til þess að vantrúar-
félagar hefðu eitthvað að óttast. Eins og
nemendur mínir m.a. úr röðum yfirlýstra
trúleysingja hafa staðfest var ég full-
komlega málefnalegur og hlutlægur í
kennslunni. Meira að segja Teitur Atlason,
sem átti eftir að verða stjórnarmaður hjá
Vantrú, hafði hrósað mér opinberlega
eftir að hafa setið námskeiðið þegar ég
kenndi þaðfyrst.
Vantrúarfélagar eru aðgerðarsinnar
sem beita fyrir sig kærum þannig að við
því mátti búast að þeir myndu fyrr eða
síðar beina spjótum sínum að guðfræði-
og trúarbragðafræðideildinni. Þeir hafa
talað á þeim nótum á liðnum árum að
kærumál gætu grafið undan trúverðug-
leika hennar innan Háskólans. í umræðu-
þræðinum sem var lekið til mín ræða
vantrúarfélagar um það hvort þetta eigi
að leiða til þess að ég verði rekinn. Sumir
vilja það en þó ekki allir og tala aðrir um
að þetta snúist þvert á móti um public
relation, þ.e. að ef minnsti áfellisdómur
náist frá siðanefnd, deild eða rektor þá
verði alltaf hægt að nota það gegn mér
og deildinni í allri frekari umræðu. Þeir
töldu að þetta gæti jafnvel orðið stærsti
sigur félagsins frá upphafi og talaði einn
september 2013
31