Bjarmi - 01.09.2013, Blaðsíða 12
Contemplðtiue
Outreech é íslandi
Höfundur: Rrndís G. Bernhardsdóttir Linn
Áhugafélag um eflingu KyrrSarbænar
(Centering prayer) sem ber heitið Contemplative
Outreach á Islandi var stofnað í Guðríðarkirkju
í Grafarholti 2. maí síðastliðinn.
Félagiö er aö fyrirmynd og í samstarfi
við aiþjóðleg samtök í Bandaríkjunum
sem kallast Contemplative Outreach
Ltd (www.contemplativeoutreach.org)
og eru samtök sjálfboöaliöa sem hafa
það hlutverk að stuðla að útbreiðslu
Kyrrðarbænar og kristinnar íhugunnar
um allan heim. Stofnendur samtakanna
voru Thomas Keating, William Meninger
og Basil Pennington og eiga þau 30 ára
starfsafmæli á næsta ári.
Kyrrðarbœnin er eitt einfaldasta
form íhugunarbænar sem um getur og
geta allir lært það og stundað. Tilgangur
Kyrrðarbænarinnar er að dýpka sam-
bandið við Guð með því að játast nær-
veru og verkan Guðs hið innra í daglegu
lífi.Bænin byggir ^/orðlausri nálgun við
Guð og þjálfunin felst síðan í því að læra
að leiða hjá sér truflanir sem sækja á,
þann tíma sem bænin stendur yfir.
Segja má að skipulögð iðkun
Kyrrðarbænarinnar hafi í raun ekki
hafist á íslandi fyrr en árið 2008 en þá
var stofnaður stýrihópur um útbreiðslu
og eflingu bænarinnar. Ýmsir erlendir
aðilar höfðu þó komið til íslands fyrir
þann tíma og kynnt bænina. Má í því
sambandi nefna að bæði Thomas
Keating og William Meninger upphafs-
menn bænaiðkunarinnar, hafa komið til
íslands, kynnt bænina og haldið kyrrðar-
daga í Skálholti. Stýrihópurinn hefur á
síðustu árum verið ötull við að halda
kynningar á Kyrrðarbæninni og annarri
iðkun tengdri henni. Má þar nefna lengri
og skemmri kyrrðardaga í Skálholti
og styttri kyrrðardaga, kynningar og
námskeið í ýmsum kirkjum landsins.
Hópurinn hefur einnig staðið fyrir nám-
skeiði fyrir leiðbeinendur og komu tveir
þaulreyndir kennarar frá Bandaríkjunum
til íslands síðastliðið haust til að hafa
umsjón með því.
Iðkunin hefur smátt og smátt
eflst í landinu og í dag eru starfandi 7
bænahópar á höfuðborgarsvæðinu,
Suðurlandi og á Akureyri sem hittast
vikulega og eru þeir öllum opnir. Hóp-
arnir eru í Guðríðarkirkju í Grafarholti,
Dómkirkjunni í Reykjavík, Grensáskirkju,
12
september 2013