Bjarmi - 01.09.2013, Blaðsíða 24
Bjarni Randver Sigurvinsson, stunda-
kennari við Háskóla íslands, átti sér
einskis ills von þegar Pétur Pétursson,
þáverandi forseti guðfræði- og trúar-
bragðafræðideildar, hringdi í hann 5.
feþrúar 2010 til að tilkynna honum að
Vantrú hefði kært hann til deildarinnar
fyrir umfjöllun hans um félagið í nám-
skeiðinu Nýtrúarhreyfíngar sem hann
hafði kennt á haustmisserinu 2009. Þótt
kæran sé ítarleg er hún að sögn Bjarna
Randvers alfarið þyggð á getgátum
vantrúarfélaga um hvað hann gæti sem
guðfræðingur hafa mögulega sagt eða
látið ósagt í tengslum við tilvitnanir á
nokkrum glærum sem félagsmenn höfðu
náð að útvega sér fljótlega eftir kennslu-
stundina. Enginn vantrúarfélagi sat
námskeiðið og enginn þeirra hafði heldur
samband við Bjarna fil að spyrjast fyrir
um kennsluna, en næstu rúma þrjá mán-
uði skipulögðu þeir með leynd umfangs-
mikla kæru- og greinaherferð gegn
honum sem átti eftir að taka tæp þrjú ár.
Óhætt er að fullyrða að Bjarni hafi verið
lagður í einelti að yfirlögðu ráði með það
að markmiði að koma höggi bæði á hann
og guðfræði- og trúarbragðafræðideild
Háskólans.
KaaxcLux cJh jýjnm iinnum
Þann 18. mars 2010 frétti Bjarni Randver
að hann hefði í byrjun febrúar einnig verið
kærður til Siðanefndar HÍ en nefndin
sniðgekk hann með öllu. Siðanefndin
afhenti Bjarna ekki kæruna fyrr en 10.
maí 2010, rúmum þremur mánuðum
eftir að hann hafði verið kærður og eftir
að nefndin hafði reynt árangurslaust að
fá guðfræði- og trúarbragðafræðideild
til að sakfella hann opinberlega með
skriflegri yfirlýsingu. Bjarni segir að síðar
hafa komið í Ijós að þáverandi siðanefnd
hafi tekið upp nána samvinnu við kær-
andann bak við tjöldin um hvernig best
væri fyrir Háskólann að losa sig við hann.
Síðar kom einnig í Ijós að Vantrú hafði
kært Bjarna til rektors í byrjun febrúar
en kærunum þremur fylgdi félagið eftir
með gríðarlegum fjölda greinaskrifa víðs
vegar um netheima og þrýstiaðgerðum á
fjölmiðla og stofnanir.
Eftir hörð átök í á annað ár dró Vantrú
kæruna til siðanefndar til baka 28. apríl
2011 en þá höfðu 40 háskólakennarar
kært siðanefndina til háskólaráðs vegna
málsmeðferðarinnar og krafist þess að
óháð rannsóknarnefnd yrði skipuð til að
yfirfara störf hennar. Háskólaráð féllst á
þessa kröfu og skilaði rannsóknarnefnd
undir formennsku aðallögfræðings
Alþings frá sér ítarlegri skýrslu þá um
haustið þar sem komist var að þeirri
niðurstöðu að siðanefndin hefði gerst
brotleg við allar meginstarfsreglur sínar
í málsmeðferðinni. Löngu áður hafði
forseti guðfræði- og frúarbragðafræði-
deildar afgreitt kæruna til deildarinnar
með bréfi til Vantrúar 9. mars 2010
þar sem trausti var lýst á Bjarna sem
háskólakennara. Rektor afgreiddi loks
þriðju kæruna með bréfi til starfsmanna
Háskólans 15. febrúar 2012 en þar segir
um málið í heild: „ekkert hefur komið
fram í meðferð málsins sem bendir til
þess að viðkomandi stundakennari hafi
gerst brotlegur i starfi".
Kæruherferðinni var samt enn ólokið.
Vantrú hafði einnig kært Bjarna Randver
til lögreglu 27. maí 2011 fyrir brot á fjar-
skiptalögum með öflun gagna af innra
24 september 2013 bjarmi