Bjarmi - 01.09.2013, Blaðsíða 6
Við nútímamenn þurfum ekki langan
tíma til að átta okkur á hvernig ástatt er
í heimi sem er fullur af ranglæti og sjálf
erum við öll þátttakendur í því að viðhalda
ranglætinu. Börn deyja úr hungri meðan
okkar vandi er allir ruslagámarnir af mat
sem við hendum. Mæður, feður og börn
vinna í þrælabúðum til þess að við getum
keypt okkur ódýrar vörur,- föt, blóm,
súkkulaði og kaffi. Fötin og skóna sem
við erum orðin leið á að nota sendum við
til baka í góðgerðarskyni eða fáum greitt
fyrir. Bilið milli ríkra og fátækra hefur
aldrei verið meira og fer stöðugt stækk-
andi. Sjálf tilheyrum við langríkasta
hluta heimsins og höfum það sem þarf
til að breyta ástandinu. Daglega deyja
þúsundir barna af völdum sjúkdóma sem
mætti auðveldlega fyrirbyggja. Ungt fólk
og börn eru hneppt í þrældóm í kynlífs-
iðnaði sem teygir anga sína inn á íslensk
heimili og skemmtistaði. Stríð, kúgun og
valdníðsla halda fólki í fjötrum ótta og
vonleysis. Það er engin furða að Guð vildi
afmá illskuna og ranglætið. Þegar við
þorum að horfast í augu við staðreyndir
óréttlætisins og leyfum hryggð Guðs að
snerta okkur í göngunni með Guði þá
getum við ekki annað en hrópað á að jesú
komi aftur til að bjarga þessum heimi
sem hann skapaði. En óréttlætið, syndin,
er fyrst og fremst það að við höfum
snúið baki við skapara okkar og afleið-
ingin er heimur sem er afvegaleiddur í
illsku. „Gegn þér einum hef ég syndgað"
(Sálmur 51.6), sagði Davíð konungur eftir
að hann fylltist græðgi og oflæti, tók sér
konu annars manns og lét myrða hann.
Syndin er að virða að vettugi fórnardauða
jesú Krists í okkar stað, að við tökum ekki
við hina nýja lífi og frelsuninni sem Guð
býður okkur. „Syndin er að þeir trúðu ekki
á mig, réttlætið að ég fer til föðurins og
þér sjáið mig ekki lengur og dómurinn
að höfðingi þessa heims er dæmdur,"
sagði Jesús (Jóh. 16.9-10). Dómur Guðs er
tortíming illskunnar. Eins og flóðið náði
yfir allt nær dómur Guðs til allra. Allir
hafa syndgað, öll erum við sek. En aðeins
þeir sem hafa fundið náð hjá Guði eins
og Nói munu bjargast. En „Nói fann náð
í augum Drottins" (I. Mós. 6.8) og það var
úrslitaatriðið sem skar úr um björgun eða
glötun þegar vatnsflóðið kom. Aðeins
þeir munu bjargast í dóminum þegar
Jesús kemur aftur sem hafa fundið náð
hjá Guði og hafa stigið inn í örkina sem er
Jesús.j3a&-er aðeins fyrir trú á Jesú Krist
sem við björgumst undan dómi Guðs yfir
óréttlætinu og illsku heimsins.