Bjarmi - 01.09.2013, Blaðsíða 25
„AFÞJOÐKIRKJUNNI
DRAGA ÞEIRÞÁMYNDAÐ
HÚN SÉ GLÆPASAMTOK
SEM SPORNA ÞURFI
GEGN OG UPPNEFNA
HANATILDÆMIS
NAZISTAFLOKK ÍSLANDS"
mönnum hennar. Allt sem félagiö telur
vera trú eða trúarbrögð er kallað hindur-
vitni og er sú hugtakanotkun lýsandi fyrir
málflutning félagsmanna. Meðal þess
sem vantrúarfélagar hafa gagnrýnt hvað
mest er tilhögun kennslu í kristinfræði í
grunnskólum, samskipti kirkju og skóla
og tilvist guðfræði- og trúarbragða-
fræðideildar í HÍ sem þeir gefa sér að
hljóti að vera óakademísk enda sé guð-
fræði grænsápu- og moðhausafræði. Af
þjóðkirkjunni draga þeir þá mynd að hún
sé glæpasamtök sem sporna þurfi gegn
og uppnefna hana til dæmis Nazistaf lokk
íslands. Jesúm kalla þeir skíthæl.
Á innra spjallborði Vantrúar á vef
félagsins er að finna umræðuþráð sem
helgaður er mér einum en fyrsta færslan
á honum er frá 2. september 2009 á
nákvæmlega þeirri stundu þegar ég var
að kenna fyrsta tímann í námskeiðinu
Nýtrúarhreyfingar það misserið. Fyrstu
um það bil 600 blaðsíðunum af þessum
umræðuþræði var lekið til mín upp úr
miðjum september 2010. í fyrstu færsl-
unni tilkynnir þáverandi formaður Van-
trúar, Óli Gneisti Sóleyjarson, að hann
bjarmi | september 2013 | 25
spjallborði Vantrúar og fengið málið tekið
upp á nýjan leik um haustið eftir að því
hafði verið vlsað frá. Eftir að Bjarni hafði
verið kallaður til yfirheyrslu var kæran
hins vegar felld niður af lögreglunni 26.
júlí 2012 þar sem engin brot höfðu verið
leidd ( Ijós. Nokkru áður, 18. júní 2012,
ákvað Vantrú að leggja upphaflegu kær-
una til siðanefndar fram á nýjan leik. Ný
sérskipuð siðanefnd undir formennsku
Bjargar Thorarensen lagaprófessors
ákvað hins vegar 4. október 2012 að vísa
kærunni frá á þeirri forsendu að hún væri
með öllu tilefnislaus og fylgdi úrskurð-
inum ítarlegurrökstuðningur.
'JLairi áfoelliód&ni&T yfjh
iLdana.j^nd oj l/antru
Alls voru kærurnar fimm á hendur Bjarna
Randveri til meðferðar í samfleytt tvö ár
og átta mánuði. Þó svo að Vantrú hafi
tapað öllum kærumálunum hafa van-
trúarfélagar haldið áfram að birta greinar
og færslur gegn honum. Fjöldi greinar-
gerða og yfirlýsinga á annað hundrað
háskólakennara, sem kannað hafa málið
vandlega, hefur hins vegar verið lagður
fram þar sem komist er að þeirri niður-
stöðu að hann hafi á engan hátt gerst
brotlegur við siðareglur Háskólans. Félag
prófessora við ríkisháskóla sendi jafn-
framt frá sér ályktun 3. apríl 2012 þar sem
segir að í kærumálinu fyrir upphaflegu
siðanefndinni hafi akademískt frelsi
Bjarna sem háskólakennara ekki verið
virt, félagið Vantrú hafi gerst brotlegt við
reglur Háskólans um góða starfshætti og
séu allir siðanefndarfulltrúarnir ábyrgir
fyrir brotum nefndarinnar.
Sj&rrd fóandiwx Awt/u^ itócL
& því CjcL þú vexit kcexcLæt?
Meginástæðan fyrir öllum þessum
kærum er sú að Vantrú er félag sem er
í baráttu gegn áhrifum trúar og trúar-
bragða í samfélaginu og kærurnar voru
einfaldlega liður í þeirri baráttu. Van-
trúarfélagar eru aðgerðarsinnar í þágu
guðleysis og andtrúarbragðahyggju og
hafa beitt sér sem slíkir núna í rúman
áratug. Þeir hafa beitt sér fyrir fjölda
baráttumála með markvissum hætti í
samfélaginu og staðið að fjölda kæru-
mála á hendur þjóðkirkjunni og starfs-