Bjarmi - 01.09.2013, Blaðsíða 35
„VANTRÚ ER NEFNILEGA
EKKIFULLTRÚI
GUÐLEYSINGJA,
TRÚLEYSINGJA EÐA
EFAHYGGJUMANNA
HÉRÁLANDI"
á ráöin með félögum sínum, lak trún-
aðarupplýsingum og greindi meira að
segja frá því hvaða gögn um kærumálið
lægju á skrifborði lögfræðings Háskól-
ans. Umræður vantrúarfélaga sýna að
þeir töldu sjálfir siðanefndina vanhæfa
vegna þess hversu „dúbíus" vinnubrögð
hennar hefðu verið frá upphafi en þeir
voru samt hæstánægðir með að hún
skyldi vera á þeirra bandi. Þess vegna
ákváðu þeir að verja vanhæfu siða-
nefndina fram í rauðan dauðann opin-
berlega þegar brot hennar voru upplýst
og börðust því gegn því að ný hæf siða-
nefnd yrði skipuð í stað hennar veturinn
2010-11.
Þó svo að kærumálið ætti eftir að
taka rúm tvö ár í viðbót með tilheyrandi
kostnaði skipti lekinn sköpum í
framvindu málsins sem nú hafði
snúist við í höndum vantrúarfélaga og
siðanefndarinnar vanhæfu en þessir
aðilar lögðu allt kapp á að koma í veg fyrir
að ég gæti framvísað gögnunum mér til
varnar. Síðari siðanefndin, sem vísaði
kærunni að lokum frá á þeirri forsendu
að hún væri tilefnislaus, úrskurðaði
þessi gögn hins vegar gild og hafði
þau til hliðsjónar. Lögfræðiþjónusta
Ragnars Aðalsteinssonar hrl. reyndist
mér bráðnauðsynleg en hann tók málið
að sér eftir að hafa fengið gögnin í
hendur. Þessi gögn varða almenning
og eru því opinber eins og sjá má af
hæstaréttardómum 541/2005 og
472/2008 um hliðstæð mál. Það
varðar almenning hvernig siðanefnd
Háskólans hagar störfum sínum og það
varðar sömuleiðis almenning þegar
félagasamtök skipuleggja heilagt stríð
og einelti gegn starfsmanni hans.
I/&X héx um baenAttifcilu aaL XGttcLa.
acL faú ikulix hajyí foanjid. jöjnin?
Menn geta túlkað það eins og þeir vilja
en staðreyndin er sú að atburðarásin var
þessi.
■HvcjcL haldwz jaú &cL v&nhaefou
iiabínttftncíinni h&foi jenjicL til?
Veit það ekki. Fagmennska hennar hefur
verið gagnrýnd af fjölda háskólakennara.
Þess má þó geta að löngu eftir að Vantrú
dró fyrri siðanefndarkæruna til baka fékk
ég í hendur gögn frá héskólayfirvöldum
sem sýna að allt frá sumri 2010 var tekist
á innan vanhæfu siðanefndarinnar um
hvernig afgreiða ætti málið. Minnihluti
nefndarinnar leit svo á að hér væri um
einelti að ræða í minn garð.
■hjvexnij lauk mdlinú?
Ég vann öll kærumálin fimm með ótví-
ræðum hætti. Fullar sættir hafa náðst
milli mín og Háskólans og er ég afskap-
lega þakklátur fyrir allan þann mikla
stuðning sem ég fékk innan úr Háskól-
anum. Ég er háskólaráði þakklátur að
það skyldi skipa óháða rannsóknarnefnd
til að yfirfara störf fyrri siðanefndar-
innar. Sömuleiðis er ég þakklátur öllum
þeim mikla fjölda aðila utan Háskólans
sem auðsýndi mér velvild og stuðning,
þ.m.t. fjölda trúfélaga af ýmsum trúar-
brögðum. Meðal þeirra sem studdu mig
hvað mest er fjöldi yfirlýstra trúleysingja.
Vantrú er nefnilega ekki fulltrúi guðleys-
ingja, trúleysingja eða efahyggjumanna
hér á landi. Félagið er aðeins fulltrúi eigin
félagsmanna sem margir hverjir eru
róttæklingar.
bjarmi | september 2013 35