Bjarmi - 01.09.2013, Blaðsíða 46
sem gegnir hlutverki bænaturns fyrir
sólarhrings fyrirbæn. „Allan sólarhring-
inn erum við að biðja fyrir kirkjum í Indó-
nesíu, öllum prestunum og leiðtogum
leikmanna. Það er ekki einn klukkutími
eða dagur sem líður án bænar þar sem
landinu okkar er lyft upp til Drottins,"
segir jeffrey Petrus. Petrus er umsjón-
armaður bænaturnsins. í 12 ár hefur
fábrotið herbergi með nokkrum kojum
verið heimili hans að heiman. „Við tökum
fjögurra tíma vaktir á hverjum degi.
Þegar fólk þreytist kemur það hingað inn
og leggur sig í stutta stund í einni kojunni,
síðan heldur það aftur til þæna," segir
hann. Dedi Purwanto vinnur með Petrus
sem bænaleiðtogi. Hann segir að bæna-
herbergin séu full af fólki allan sólar-
hringinn. Purwanto trúir að bænirnar
sem hér er lyft upp til Guðs frá þessum
stað og öðrum stöðum um alla Indónesíu
séu að hrista upp í undirstöðum þjóðar
hans. „Það er kraftur þegar hundruð
þúsunda trúaðra hittast, annaðhvort í
litlum bænahópum, í bænahúsum eða
svona bænaturnum eins og þessum,"
segir Purwanto.
Mesti fjöldi múslima í heiminum
Nærri því 13 % af múslimum í heiminum
búa í Indónesíu sem gerir þessa eyjaþjóð
að stað þar sem flestir múslímar búa.
Indónesía, sem er á milli Indlandshafs
og Kyrrahafs í Suðaustur-Asíu, getur
státað af blómstrandi efnahagslífi og
er eitt aðalstjórnmálaveldið á svæðinu.
„Árum saman höfum við beðið fyrir ríkis-
stjórn okkar, fjölmiðlum og unga fólkinu.
Við höfum einnig beðið fyrir betri sam-
skiptum á milli kristinna manna og mús-
lima. Guð er að svara þessum bænum,"
segir Petrus. Kristnin breiðist út þrátt fyrir
einstakar, harkalegar árásir múslima.
Kristið fólk eignar þessari stóru bæna-
hreyfingu það að tengja saman 500
indónesískar borgir við meira en 5 millj-
ónir fyrirbiðjenda með því að gefa þeim
dýpri ástríðu fyrir því að sjá þessa þjóð
og heiminn allan unninn fyrir Jesú. „Ég
trúi því að það sé máttur í bæninni, sér-
staklega í sameinaðri bæn, eins og líkami
Krists er í þessu tilfelli," sagði Daniel
Pandji, prestur sem fer fyrir indónesísku
þjóðlegu bænahreyfingunni. í fáheyrðri
einingu, fylltu kristnir þjóðarleikvanginn
á síðasta ári ásamt fleiri milljónum sem
horfðu á viðkomandi þátt í sjónvarpinu
þar sem þetta fólk lofar því að ná til hvers
þorps, bæjar og borgar í Indónesíu með
fagnaðarerindið um Jesú Krist. „Allir í
kirkjunum hér í Indónesíu trúa því að
Jesús sé eina svarið fyrir þessa þjóð,"
sagði Dr. Widjaya. í bænaturninum eru
Petrus og trúföstu bænahermennirnir
hans á hnjánum. „Dag og nótt, um helgar
og á frídögum, verðum við hér hrópandi
til Guðs fyrir landinu okkar og heiminum
öllum," sagði hann. „Þetta er köllun
okkar, að vera varðmenn Indónesíu."
http://www.cbn.com/cbnnews/
world/2013/August/Historic-Non-Stop-
Prayer-Sweeps-Muslim-lndonesia/
Kriitnum m&nni
xaant, ilappt ffkth
Jn&fttaMr/ccInaetn
MINDANAO, Filippseyjum. - Mjög fáum
einstaklingum, sem hefur verið rænt af
Abu Sayyaf sem er róttækur múslímskur
hópur tengdur Al-Qaeda, hefur verið
sleppt en kynni við Guð breyttu lífi eins
gíslanna sem að lokum slapp lifandi úr
haldi. Raymund, sem er ekki hans rétta
nafn, mun aldrei gleyma síðdeginu
þegar þungvopnaðir uppreisnarmenn
Abu Sayyaf hrifsuð(u hann úr bíl sínum.
„í tvær klukkustundir spurði ég Guð: Af
hverju ég, Drottinn?" „Ég óttaðist um
líf mitt vegna þess að nokkrum dögum
áður höfðu nokkur fórnarlömb ekki
komist lífs af. Abu Sayyaf drap þetta
fólk," sagði hann. Raymund bað til
Guðs að örlög hans yrðu ekki þau
sömu og hinna fórnarlambanna. „Ég
sagði, Guð, ég er ólíkur þeim, ég mun
komast lífs af vegna þess að þú hefur
áætlun með það af hverju þú leyfðir
þessu að gerast," sagði hann við CBN.
Raymund er kristinn maður sem býr í
stærsta múslímabænum á Mindanao.
Það að ganga um göturnar þar vekur
óöryggistilfinningu, vegna þess að þetta
er staður þar sem kristnir eru skotmörk
mannræningja. Fyrrum félagí í Abu
Sayyaf, Almer - sem er ekki hans rétta
nafn - er nú uppljóstrari fyrir filipps-
eyska herinn. Hann sagði að íslam og
peningar stjórnuðu þessum múslímska
hryðjuverkahópi. „Þeir eru kristnu fólki
mjög reiðir, sérstaklega erlendum
ferðamönnum. Ef lausnargjaldið er ekki
greitt er fólk drepið," sagði hann. Hann
varaði við því að „þeir vilji gera allan
eyjaklasann að múslímaríki." „En þetta
er ekki hægt þar sem kristnir og mús-
límar búa hér saman." Raymund varð
mjög þreyttur eftir meira en mánuð í
haldi í frumskóginum en bænir og upp-
lifun hans af Guði héldu í honum lífinu.
„Drottinn, ef þú ert virkilega hér, gefðu
mér þá merki. Láttu rigna," man hann
eftir að hafa beðið. Hann sagði að þó að
þetta hafi verið mjög sólríkur dagur hafi
skyndilega byrjað að rigna eftir að hann
bað þessarar bænar. „Ég varð glaður
og það styrkti mig aftur því að ég vissi
að Guð var með mér þarna í frumskóg-
inum," sagði hann. „Ég héf því að ef ég
slyppi myndi ég þjóna Guði, sama hvað
það kostaði." Mannræningjarnir leystu
Raymund úr haldi, ómeiddan nokkrum
vikum seinna, eftir að fjölskyldan hans
borgaði lausnargjaldið. í dag vinnur
Raymund með Gideonmönnum og
hjálpar til við að dreifa Biblíum, jafnvel til
múslímskra lögreglumanna. „Þakka þér
fyrir að gefa lögreglumönnunum okkar
þessar Biblíur. Ég er múslími en ég sam-
þykki Biblíuna vegna þess að sumt af
kennslunni þar er einnig að finna í Kór-
aninum og sú kennsla hjálpar mér mjög
mikið," sagði Mendin lögreglumaður. Þó
að Raymund hafi verið það lánsamur að
vera sleppt þá eru enn 5 útlendingar og
3 Filippseyingar í haldi. Hann biður þess
að björgunaraðgerðir af hálfu banda-
rískra hermanna eða jafnvel upplifun af
Guði frelsi þá. í þessum mánuði dóu 7
filippseyskir hermenn í tilraun sinni til að
bjarga gíslum frá Abu Sayyaf.
http://www.cbn.com/cbnnews/
world/2013/July/Kidnapped-Christian-
Released-after-Miraculous-Prayer/
46 september 2013 bjarmi