Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.04.2018, Qupperneq 4

Bjarmi - 01.04.2018, Qupperneq 4
I dagsóns önn HARALDUR JÓHANNSSON Líf kristins manns snýst um samband hans við Guð, trúarþroska og samfélag við trúsyskin en einnig daglegt líf í þessum heimi. Hvernig á daglegt líf kristins manns að vera? Mörg svör hafa verið gefin við þeirri spurningu. Sumir segja að kristið fólk eigi að hegða sér eins og aðrir í þjóðfélaginu, falla inn í hópinn og skera sig ekki úr. Aðrir hafa dregið sig út úr samfélagi manna og hvatt fleiri til hins sama, gerst einsetumenn, gengið í klaustur eða tilheyrt trúarhópum sem hafa haldið samskiptum við þá sem fyrir utan standa í lágmarki. Pétur postuli ritar fyrra bréf sitt til kristinna safnaða í Litlu-Asíu. Þeir sættu þrengingum og bréfið er gagnsýrt af alvöru trúarlífsins. í 2. kafla, versum 11-25, útskýrir Pétur hvernig lærisveinar Jesú eiga að hegða sér gagnvart yfirvöldum og samborgurum. Segja má að hann gefi svar við fjórum spurningum: Hver erum við? Hvað eigum við að gera? Hvað getur það kostað? Hvers vegna skyldum við leggja þetta á okkur? HVER ERUM VIÐ? „Þið elskuðu, ég áminni ykkur sem gesti og útlendinga...", segir Pétur. Sá sem er gestur eða útlendingur er ekki heima hjá sér. Hann er á ferð eða ferðalagi en lögheimilið er annars staðar. Hann sest ekki að vegna þess að hann tilheyrir öðru landi, annarri þjóð, jafnvel annarri menningu. Eins þótt margt jákvætt megi segja um landið sem er heimsótt þá er það útland eftir sem áður. Hið sama má segja um lærisveina Jesú, við tilheyrum Guðs ríki og hinni komandi öld þannig að ríki þessa heims og þessarar aldar geta aldrei orðið endanleg heimkynni okkar. Hins vegar eru gestir og útlendingar gjarna fulltrúar þjóðar sinnar, annaðhvort með formlegum hætti eins og sendiherrar og erindrekar eða á óformlegan hátt og jafnvel án þess að gera sér grein fyrir því. Þá skiptir máli að gefa rétta mynd af þjóð sinni, koma boðskap stjórnvalda rétt til skila og vera landi og þjóð til sóma í hvívetna. Þetta á ekki síður við um fylgjendur Jesú, við erum fulltrúar hans hér í heimi, okkur ber að koma boðskap hans til skila og hegða okkur eins og honum er samboðið. ..að halda ykkur frá holdlegum girndum sem heyja stríð gegn sálunni." Þannig áminnir Pétur lesendur sína. Holdlegar girndir í þessu samhengi snúa ekkert sérstaklega að líkamanum eða kynhvötinni heldur fremur þeirri tilhneigingu mannsins að lifa fyrir sjálfan sig. Sjálfshyggja er það kallað sums staðar í nýju biblíuþýðingunni þar sem áður var talað um hold. Við eigum ekki að láta eigin langanir og þrár stjórna okkur heldur leitast við að lifa samkvæmt vilja Guðs, jafnvel þó að hann gangi þvert á siði og venjur. Maður nokkur lenti í fjárhagskröggum en tókst að bjarga sér með aðferð sem var utan ramma laganna en hann var þó stður en svo einn um að nýta sér hana. Hann tilheyrði kristnu samfélagi og eitt sinn barst þetta í tal við einn vin hans þar. „Ég 4 | bjarmi | apríl 2018

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.