Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.04.2018, Qupperneq 8

Bjarmi - 01.04.2018, Qupperneq 8
Miiming §éra Friðríks Friðrikssonar á 150 ára afmælisári han§ SYNODUSERINDI FLUTT í ÚTVARP 21. JÚNÍ1968 PÁLLV. G. KOLKA, LÆKNIR Flestir íslendingar hafa augum litið myndastyttuna af séra Friðriki Friðrikssyni við Lækjargötu, séð sitjandi öldung, nokkuð lotinn í herðum, en með mildan svip og haldandi í hönd stálpaðs drengs, sem stendur við hné hans. Fyrir hugskotssjónum mínum er þó önnur mynd af séra Friðriki miklu minnisstæðari. Hún er af fertugum manni, grannvöxnum og í meðallagi að hæð, með mjög dökkt alskegg, vökul og vingjarnleg augu, stórstígum og hraðstígum, nokkuð háleitum og með bolinn lítið hallandi fram á við, eins og fæturnir hefðu varla við að bera hann áfram. Þannig kom séra Friðrik mér fyrir sjónir, þegar ég sá hann í fyrsta sinn fyrir nærri 60 árum, sveitadrengur við inngöngu í 1. bekk Menntaskólans, forvitinn og athugull á allt nýtt, sem fyrir augun bar í höfuðstaðnum. Ég á einnig þriðju myndina af séra Friðriki og hún er mér kærust. Hún er af innra manni hans, lífsskoðun og trúarlífi, ekki aðeins eins og hún birtist í elskulegu viðmóti hans, ræðum hans og félagsstarfi, heldur á mörgum samverustundum með honum einum eða í fámennum hópi, þegar ég, ungur maður, var að glíma við ráðgátur lífs míns og tilverunnar. Ég átti heima svo að segja í næsta húsi, hitti hann að heita mátti daglega í nokkur ár, ræddi við hann, fræddist af honum, og beitti þó gegn honum þeirri efagirni og gagnrýni, sem unglingum er tamt gagnvart sér eldri mönnum, jafnvel þótt þeir standi þeim nærri. Síðar hittumst við oft, þegar báðir voru samlendis og á elliárum sínum dvaldist hann nokkrum sinnum langdvölum hjá mér á Blönduósi á sumrum. Það er vegna þessarar löngu viðkynningar og nánu vináttu okkar sem ég hef orðið við tilmælum herra biskupsins um að flytja þetta erindi í tilefni aldarafmælis séra Friðriks. HÆFILEIKAMAÐUR Enginn verður meiri maður en þau efni standa til, sem hann hefur tekið að arfi, þótt umhverfið og áhrif þess ráði oft miklu um það, hvernig sá arfur nýtist honum og samtíð hans. Séra Friðrik var mörgum góðum gáfum búinn og hafði t.d. svo frábært minni, að hann þekkti oft með nafni aftur að árum liðnum menn, sem hann hafði aðeins talað einu sinni við, og gat þájafnvel alloft tilgreint stað og mánaðardag, hvenær þau kynni höfðu tekizt. Hátt á níræðisaldri og orðinn blindur á bók orti hann Ijóðabálk um sögu íslands, 456 Ijóðlínur, og gat þulið þær yfir mér í réttrí röð. Hann hefði því getað unnið námsafrek í skóla, ef hann hefði beitt sér að því og ekki þurft að stunda mikla kennslu til að vinna fyrir sér jafnframt námi. Hann var ágætt skáld, þegar andinn kom yfir hann, og fljótur að yrkja, en allmarga sálma sína og Ijóð orti hann á nóttunni, þreyttur eftir dagsins 8 | bjarmi | apríl 2018

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.