Bjarmi - 01.04.2018, Page 17
Yfirgengilegar ofsóknir Mjög miklar ofsóknir Miklar ofsóknir
1 Norður-Kórea 12 Sádí-Arabía 24 Mjanmar 36 Palestínsk svæði Palestínu 48 Barein
2 Afganistan 13 Maldíveyjar 25 Nepal 37 Malí 49 Kólumbía
3 Sómalía 14 Nígería 26 Brúnei 38 Indónesía 50 Djibúti
4 Súdan 15 Sýrland 27 Katar 39 Mexíkó
5 Pakistan 16 Úsbekistan 28 Kasakstan 40 Sam. arab. fd.
6 Eritrea 17 Egyptaland 29 Eþíópía 41 Bangladesh
7 Líbýa 18 Víetnam 30 Túnis 42 Alsír
8 írak 19 Túrkmenistan 31 Tyrkland 43 Kína
9 Jemen 20 Laos 32 Kenia 44 Sri Lanka
10 íran 21 Jórdanía 33 Bútan 45 Aserbaísjan
11 Indland 22 Tadsíkistan 34 Kuveit 46 Óman
23 Malasía 35 Mið-Afr.l. 47 Máritania
Af þeim 50 ríkjum, þar sem erfiðast er
að vera kristinn, eru 34 ríki múslíma. Af
þessum 34 ríkjum falla 9 undir ríki þar sem
ofsóknir eru verstar, 14 þar sem ofsóknir
eru mjög miklar og 11 ríki þar sem ofsóknir
eru miklar. í viðbót eru nokkur lönd með
hlutfallslega stóran hóp múslíma sem
ofsækja kristna, sbr. Nígeríu, Eþíópíu og
Keníu.
OFSÓKNIR MÚSLÍMA
Hér verður einungis fjallað um ofsóknir
múslíma gegn kristnum enda eru þær
langumfangsmestar. Þótt talað sé um
ofsóknir múslíma, þá eru mjög margir
múslímar mótfallnir þessum ofsóknum og
mörg dæmi eru um að þeir hafi hjálpað
kristnu fólki. Því miður eru þeir ekki leiðandi
íheimi íslams. Kóraninn, Hadeeth (frásögur
af orðum og gerðum spámannsins) og
andlegir leiðtogar múslíma og fylgjendur
þeirra eru oftast meginorsök ofsóknanna.
Skoðum aðeins söguna og það sem að
baki liggur.
Frá dögum Múhameðs og allt fram á
þennan dag hafa múslímar linnulítið ofsótt
kristna menn og útrýmt þeim að miklu
leyti úr löndum sem áður voru kristin, sbr.
Norður-Afríku, Tyrkland og Mið-Austurlönd.
Um helmingur kristins fólks (heiminum á 7.
öld bjó á þessu svæði. Eftir innrás múslíma
fækkaði kristnum mönnum jafnt og þétt þar
sem þeir voru drepnir, þvingaðir til að gerast
múslímar eða flúðu land. í dag lifir einungis
örlítill hópur kristinna í þessum löndum. Á
síðustu 10 árum er talið að kristnu fólki hafi
fækkað um 80% í Mið-Austurlöndum, sbr.
grein eftir Stoyan Zaimov fréttaritara The
Christian Post 30. ág. 2017.
AFARKOSTIR
Múslímar gáfu þeim sem þeir sigruðu þrjá
kosti: í fyrsta lagi gátu þeir gerst múslímar
og voru þá í þokkalega góðum málum. í
öðru lagi gátu þeir haldið lífi og trú sinni,
en þurftu að borga skatt sem kallaðist
jizyi og voru kallaðir dhimmis. Þetta val
átti aðallega við fólk bókarinnar sem var
kristið fólk og gyðingar. Dhimmis voru í
raun réttlausir gagnvart múslímum og voru
þriðja flokks þegnar. Kóraninn ætlast til
að múslímar auðmýki dhimmis þegar þeir
borga skattinn og var það gert. Dæmi eru
um að þeir hafi þurft að koma skríðandi
á fjórum fótum til að greiða skattinn. Jizyi
skatturinn var lagður af um miðja 19. öld,
en meðferð dhimmis eða kristins fólks
er enn víða sú sama.í þriðja lagi voru
karlmenn drepnir, konur þeirra gerðar að
kynlífsþrælum eða þær og börn þeirra seld
sem þrælar.
Frá dögum kalífanna og fram á
daginn í dag er farið með kristið fólk eftir
svokölluðum skilyrðum Omars. Hann
var kalífi frá 634-644 e.Kr. Skilyrðin eru í
samræmi við kenningar Kóransins og
Hadeeth og viðurkennd af flest öllum
kennimönnum íslams. í löndum þar sem
saríalög eru í gildi er algerlega farið eftir
skilyrðunum. í löndum íslams þar sem
saríalög eru ekki meginlög landsins er
þó farið eftir þeim í minni mæli. Einungis
verður minnst á nokkur skilyrða Omars og
nefnd eitt til tvö nýleg dæmi um hvert efni
þótt hundruð og stundum þúsundir slíkra
tilvika hafi átt sér stað á síðustu árum.
TAKMARKANIR Á
KIRKJUSTARFSEMI
Kristnu fólki var og er bannað að byggja
nýjar kirkjur og bannað að gera við eldri
kirkjur. Kristið fólk mátti ekki koma saman
á páskum, pálmasunnudegi eða öðrum
kristnum hátíðum. Árásum múslíma á
kirkjur og kristið fólk má skipta í þrjú stig.
1. íslömsk yfirvöld ofsækja
kristna með því að neita kirkjum um
nauðsynleg leyfi til að starfa sem
kirkjur. Þau banna byggingar á nýjum
kirkjum og neita að leyfa viðgerðir
á eldri kirkjum. Einnig er kirkjum
sem hafa starfað í áratugi neitað um
endurnýjun á starfsleyfi. Aðrar kirkjur
eru sektaðar um háar fjárhæðir fyrir
minniháttar víðgerðir á húsnæði án
heimildar.
Yfirvöld í Alsír lokuðu kirkju í bænum
Ain Turk þann 9. nóv. 2017 í viðbót
við aðrar kirkjur sem áður hafði verið
lokað og ásökuðu kirkjuna um að
prenta kristilegt efni til kristniboðs. í
febrúar 2018 var L'Oratoire kirkjunni í
borginní Oran í Alsír og þorpskirkju í
Layayda lokað með ásökunum um að
hafa ekki starfsleyfi.(l)
bjarmi | apríl 2018 | 17