Bjarmi - 01.04.2018, Síða 19
hinn ásakaði er tekinn höndum og oftast
dæmdur til dauða, þótt ásökunin sé alger
uppspuni. Oft á tíðum eru þeir teknir af lífi
án dóms. Samkvæmt saríalögum hefur
vitnisburður dhimmis gegn múslíma ekkert
gildi.
Háskólastúdent var hengdur af hópi
múslíma sakaður um guðlast í Pakistan 13.
apríl 2017 og tveir aðrir barðir illa.(8)
Asia Bibi er fimm barna pakistönsk
móðir sem var dæmd til dauða 2010 vegna
ásakana vinnufélaga um að hafa móðgað
nafn spámannsins. Hún hefur verið 8 ár í
fangelsi fyrir guðlast og á enn á hættu að
vera hengd.
Það er dauðasök fyrir dhimmish
að valda dauða músima. Auk þess er
dhimmish bannað að slá til múslíma, þótt í
sjálfsvörn sé og jafngildir það dauðadómi.
Það er hins vegar ekkí dauðasök hjá
múslímum að drepa kristið fólk. Múslímar
eru aldrei dregnir fyrir dóm fyrir að myrða
kristið fólk ílöndum íslams. í þeim fjölmörgu
árásum múslíma á kristið fólk, heimili þess
og kirkjur þá er lögreglan yfirleitt aldrei til
staðar. Þótt kallað sé á hana, þá kemur
hún ekki fyrr en eftir 3-4 klukkustundir eða
löngu eftir að atburðurinn er yfirstaðinn og
gerir yfirleitt aldrei neitt. Ef hún er til staðar,
þá gerir hún ekki heldur neitt.
GIFTING BÖNNUÐ OG EKKI
BÖNNUÐ
Múslímskir karlmenn mega kvænast
kristnum konum og mega eiga 4 konur.
Múslímskar konur mega ekki giftast
kristnum karlmönnum. Það þarf 4 vitni
til að sanna að karlmaður hafi nauðgað
konu. Þeir fá yfirleitt aldrei dóm fyrir slíkt.
Ef kona verður barnshafandi eftir nauðgun,
þá er hún ásökuð um hórdóm og dæmd til
dauða. Maðurinn getur skilið við konu sína
með því að segja þrisvar: „Ég er skilinn við
þig.“
Heiðursmorð á konum fyrir að giftast
eða vera í sambandi við karlmenn sem
fjölskylda hennar hefur ekki samþykkt eru
mjög algeng í ýmsum löndum múslíma. í
Pakistan er talið að um árlega séu um eitt
þúsund konur myrtar af þessum sökum. í
mörgum öðrum ríkjum íslams er ástandið
svipað.(9)
í Pakistan var 24 ára kona höggvin til
dauða með exi af fjölskyldu sinni fyrir að
giftast gegn vilja fjölskyldunnar þann 15.
ág. 2017.(10
Á Indlandi var ólétt kona brennd lifandi
af fjölskyldu sinni fyrir að giftast manni sem
var hindúi þann 3. júní 2017.(11)
HÓPREFSINGAR
Ef kristinn einstaklingur gerir á hlut eða
móðgar múslíma fyrir hvaða sök sem er,
þá er oft ráðist á næsta kristna einstakling,
fjölskyldu, kirkju eða hvað annað sem
tengist kristinni trú, þótt engin tengsl séu
á milli þess sem móðguninni olli og þeirra
sem verða fyrir refsingunni. Þetta viðhorf á
rætur til skilyrða Omars. Ef einhver kristinn
braut eitthvert af skilyrðum Omars, þá varð
allur sáttmálinn og réttarstaða allra þeirra
sem voru dhimmis fallin úr gildi. Kristið fólk
var því réttlaust og réttdræpt. Múslímar
gátu ráðist á það og gert að þrælum, rænt
eigum þess eða eyðilagt þær og nauðgað
konum þeirra og dætrum.
Vesturlönd eru kristin í augum múslíma
og ef þau móðga íslam hvort sem það
er með hernaðaraðgerðum, móðgandi
teiknimyndum eða einhverju öðru þá er
hinum kristnu í löndum múslíma refsað
þótt þeir hafi ekkert með þessar aðgerðir
að gera, sbr. dönsku teiknimyndir af
Múhammeð í Jyllands Posten 2005.
Verulegar árásir á kristna menn, heimili
þeirra og kirkjur fylgdu í kjölfarið.(12)
Svokallað Imbala uppþot var í maí
2011 í Egyptalandi vegna orðróms um
að kristin stúlka hefði gerst múslími og
að koptíska kirkjan væri að pína hana til
að afneita íslam. Um 3.000 manna reiður
múslímalýður réðist með skothríð að
nokkrum kirkjum og heimilum kristinna
manna og brenndi til grunna.(13)
Af öðrum skilyrðum Omars má nefna að
kristið fólk má hvorki hringja kirkjuklukkum
né biðja upphátt ef múslími er nálægur og
má ekki jarðsetja dána nálægt múslímum
hvort sem þeir eru lífs eða liðnir. Það má
ekki eiga né bera vopn, þarf að sýna
auðmýkt gagnvart múslímum, standa upp
fyrir þeim, má ekki klæðast eins og þeir og
ekki vera yfirmenn múslíma o.s.frv.
Af hverju eru ofsóknir múslíma á
hendur kristnum svo lítið þekktar á
Vesturlöndum? Ástæðurnar tengjast að
bjarmi | apríl 2018 | 19